Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Páll Vilhjálmsson dregur uppaðra mynd en þá einfeldn- ingslegu sem rétttrúnaðurinn hengir pottlok sitt á:    Löngu fyrir kór-ónuveiruna var fullljóst að al- þjóðavæðingin eyðilagði samfélög.    Mýrarljós fjöl-menningar taldi fólki trú um að mannréttindi væru að hlamma sér niður á hvaða byggða bóli sem er, eink- um á Vesturlöndum, og heimta lífskjör og þjónustu fyrir sig og sína.    Samfélög strituðust við aðmæta meintu kalli tímans og klifuðu á ímyndinni um hugaða nýja veröld þar sem öll dýrin í skóginum væru vinir.    Löngu gleymt var innsæi forn-gríska Aristótelesar að maðurinn væri pólitískt dýr er þrifist best með sínum líkum.    Mannréttindi eru einskis virðinema einhver nenni að verja þau. Þjóðarheimilið sér um sína, það er frumkrafan.    Farsóttin gerir kröfur á þjóð-ríkið en ekki einhverja langt í burtu alþjóðastofnun sem ekkert kann og getur til að verja fólk fyrir smiti.“    Páll gefur sér svo til gamans aðtrúaðir myndu sennilega segja að almættið stæði með far- sóttinni sem kennslustund um hvaða skipan samfélagsins sé far- sælust og til að árétta við mann- fólkið að alþjóðagötur leiða til glötunar. Páll Vilhjálmsson Hljómar sennilega STAKSTEINAR Fyrirhugað er að fara í talsverðar endurbætur á bryggjunni í Flatey á Breiðafirði í sumar. Reykhólahrepp- ur og Vegagerðin hafa óskað eftir tilboðum í verkið og á því að vera lokið 1. ágúst. Stækka á ferjubryggj- una um 45 fermetra, reka niður staura, byggja burðarvirki, klæða bryggjudekkið og endurnýja skemmda hluta á bryggjunni. Þá á að steypa um 30 metra sjóvarnar- garð í Þorpinu, út frá Stóragarði. Í Flatey er búið á tveimur bæjum, en fjöldi fólks dvelur þar í lengri eða skemmri tíma og eru húsin í Flatey flest frá blómatíma eyjarinnar í lok 19. aldar og byrjun 20. aldar. Í nokkur ár hefur Framfarafélag Flateyjar þrýst á um endurbætur á bryggjunni, sem heimamenn hafa jafnvel talið hættulega. Á vef Reykhólahrepps skrifar Gunnar Sveinsson athugasemd í síð- ustu viku þar sem hann fagnar því að fara á í endurbæturnar. „Við Flateyingar erum búnir að berjast fyrir þessu í mörg ár. Löngu er orðið tímabært að fara í þessar viðgerðir og endurbætur enda bryggjan bein- línis hættuleg. Það hriktir og brakar í bryggjunni allri þegar þetta þunga skip, Baldur, leggst að og togað er í springinn,“ skrifar Gunnar. aij@mbl.is Bryggjan Heimafólk í Flatey hefur lengi þrýst á um lagfæringar. Hafnarbætur og sjó- vörn í Flatey í sumar „Spár benda til þess að í ágústmánuði verði um 17.000 manns á atvinnuleys- isskrá og um 6.000 manns hafi náð því óæskilega tímamarki að teljast langtímaatvinnulaus,“ segir í frum- varpi til fjáraukalaga fyrir yfirstand- andi ár, sem lagt hefur verið fram sem hluti af öðrum aðgerðapakka stjórnvalda vegna kórónuveirunnar. Fjárveitingar til atvinnuleysis- tryggingasjóðs verða auknar og hækkar heildarframlagið á fjárheim- ildinni vegna atvinnuleysis og fjölg- unar starfa um 4,2 milljarða króna. 15 þúsund í námi og þjálfun samhliða atvinnuleit Í greinargerð kemur fram að óljóst sé þegar líður á árið hversu margir þeirra sem nú eru atvinnulausir verði langtímaatvinnuleysi að bráð en þá er átt við þá sem hafa verið atvinnu- lausir lengur en í sex til tólf mánuði. Ráðast á í átak í náms- og starfs- úrræðum fyrir atvinnuleitendur og að því stefnt að sú fjárhæð sem ráð- stafa á til þessa úrræðis „geti stutt við og stuðlað að virkri atvinnuleit með námi og þjálfun um 15.000 manns á árinu, sé miðað við að um 130 þús. kr. séu til ráðstöfunar fyrir hvern einstakling“, eins og segir í greinargerð frumvarpsins. omfr@mbl.is 17 þúsund án atvinnu í ágúst  Spáð er að sex þúsund verði skráðir langtímaatvinnulausir eftir 3-4 mánuði Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Við störf Í lok mars voru nálægt 38.600 á atvinnuleysisskrá. SMÁRALIND – KRINGLAN DÚKA.IS Frí heimsending í netverslun Sendum um allt land Lóan er komin að kveða burt... Lóa lítil 7.500,- Lóa stór 10.900,- Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.