Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 27

Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 27
Heimavellir hf. – Hluthafafundur Stjórn Heimavalla hf. boðar til hluthafafundar í félaginu og verður hann haldinn fimmtudaginn 14. maí 2020 á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2, 108 Reykjavík. Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 15:00 á annarri hæð í sal H en húsið opnar klukkan 14:30. Dagskrá fundarins er svohljóðandi: 1. Breyting á samþykktum félagsins 2. Stjórnarkjör 3. Önnur mál Fredensborg ICE ehf. hefur lagt fram neðangreinda tillögu að breytingu á sam- þykktum Heimavalla hf. Lagt er til að 18. gr. samþykkta Heimavalla hf., sem í dag hljóðar svo: Stjórn skal skipuð fimm einstaklingum kjörnum á aðalfundi til eins árs í senn. Um hæfi þeirra fer að lögum. Við stjórnarkjör skal tryggja að kynjahlutföll innan stjórnar séu sem jöfnust og að hlutfall hvors kyns sé ekki lægra en 40%. Við stjórnarkjör skulu tveir efstu frambjóðendur af hvoru kyni, sem flest atkvæði hljóta teljast réttkjörnir auk þess frambjóðanda sem flest atkvæði fær af þeim frambjóðendum sem eftir standa. Þeir sem hyggjast bjóða sig fram til stjórnar skulu tilkynna félaginu um fram- boð sitt a.m.k. fimm sólarhringum fyrir hluthafafund. Tilkynning skal uppfylla ákvæði laga um hlutafélög. Jafnframt skulu frambjóðendur greina frá því hvort þeir telji sig óháða félaginu og stórumhluthöfumþess samkvæmt skilyrðum íLeið- beiningum um stjórnarhætti fyrirtækja eins og þær eru samþykktar á hverjum tíma. Þeir einir eru kjörgengir á aðalfundi sem þannig hafa gefið kost á sér. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kenni- tölu og heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Félagsstjórn skal fara yfir framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi, með sannanlegum hætti, kost á því að bæta úr þeim göllum sem eru á tilkynningunni innan tiltekins frests. Ef ekki er bætt úr göllum á fram- boðstilkynningunni innan hins tiltekna frests, úrskurðar félagsstjórn um gildi framboðs. Unnt er að skjóta niðurstöðu félagsstjórnar til hluthafafundar sem fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs. Upplýsingar um frambjóð- endur til stjórnar skulu lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt ef framboð berast frá fleirum en í stjórn eru. Ef hluthafar félagsins eru 200 eða fleiri geta hluthafar sem ráða yfir minnst 1/10 hlutafjárins krafist þess að beitt sé hlutfalls- eða marg feldiskosningu við kjör stjórnarmanna. Ef hluthafar eru færri en 200 þurfa hluthafar sem ráða yfir 1/5 hluta hlutafjárins að standa að kröfunni. Komi fram krafa frá fleiri en einum hluthafahópi og krafist er bæði hlutfalls- og marg feldiskosninga skal beitt marg feldiskosningu. Krafa um hlutfalls- eða marg feldiskosningu þarf að hafa borist stjórn að lágmarki fimm sólarhringum fyrir hluthafafund. Muni eftirleiðis hljóða svo: „Stjórn skal skipuð þremur einstaklingum. Frambjóðendur skulu tilkynna félaginu um framboð sitt a.m.k. fimm sólar- hringum fyrir hluthafafund. Í tilkynningu um framboð til stjórnar skal gefa, auk nafns frambjóðanda, kenni- tölu og heimilisfang, upplýsingar um aðalstarf, önnur stjórnunarstörf, menntun, reynslu og hlutafjáreign í félaginu. Þá skal einnig upplýsa um hagsmunatengsl við helstu viðskiptaaðila og samkeppnisaðila félagsins, sem og hluthafa sem eiga meira en 10% hlut í félaginu. Félagsstjórn skal fara yfir framboðstilkynningar og gefa hlutaðeigandi, með sannanlegum hætti, kost á því að bæta úr þeim göllum sem eru á tilkynningunni innan tiltekins frests. Ef ekki er bætt úr göllum á fram- boðstilkynningunni innan hins tiltekna frests, úrskurðar félagsstjórn um gildi framboðs. Unnt er að skjóta niðurstöðu félagsstjórnar til hluthafafundar sem fer með endanlegt úrskurðarvald um gildi framboðs. Upplýsingar um frambjóð- endur til stjórnar skulu lagðar fram hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins eigi síðar en tveimur dögum fyrir hluthafafund.“ Hluthafa er heimilt að sækja fund ásamt ráðgjafa, sem hvorki hefur málfrelsi, tillögurétt né atkvæðisrétt. Hluthafa er þó heimilt að gefa ráðgjafa sínum orðið fyrir sína hönd. Einnig getur hluthafi falið umboðsmanni sínum að sækja fyrir sig fund og skal hann þá leggja fram skriflegt og dagsett umboð sem gildir aldrei lengur en eitt ár frá dagsetningu þess. Sökum samkomubanns sem verður í gildi á þeim tíma er fundurinn verður haldinn (eingöngu verður heimilt að halda samkomur þar sem færri en 50 manns koma saman) eru hluthafar sem hyggjast mæta á fundinn vinsam- legast beðnir um að skrá sig á fundinn með því að senda staðfestingu þess efnis á erlendur@heimavellir.is þar sem fram kemur nafn og kennitala hluthafa. Heimavellir mælast til þess að hluthafar sameinist um umboðsmann til að mæta fyrir þá, til að takmarka fjölda fundarmanna á fundinum. Fyrir þá hluthafa sem hyggjast samþykkja breytingartillögu Fredensborg ICE ehf. og hyggjast kjósa þá aðila sem bjóða sig fram í stjórn Heimavalla og tilgreindir eru í umboðinu hafa Heimavellir fengið Bjarka Diego hjá BBA//Fjeldco til að vera umboðsmann fyrir þá hluthafa sem vilja og er hægt að sækja umboðið á heimasíðu Heimavalla hf. og senda það á bjarki@bbafjeldco.is. Sé hluthafi sem veitir umboð, einstaklingur, skal með undirrituðu umboði fylgja afrit að lögmætu skilríki hluthafans. Ef um er að ræða umboðsmann hluthafa sem er lögaðili, skal með undirrituðu umboði fylgja afrit af gildandi skráningu úr Fyrirtækjaskrá til að staðfesta réttmæti umboðsins. Umboðs- maður skal einnig mæta með lögmæt persónuskilríki. Athygli er vakin á því að samkvæmt samþykktum félagsins ber að tilkynna um framboð til stjórnar skriflega minnst 5 sólarhringum fyrir fundinn eða fyrir klukkan 15:00 laugardaginn 9. maí 2020. Framboðum skal skila á skrifstofu Heimavalla hf. í Lágmúla 6, 108 Reykjavík (b.t. Erlendar Kristjánssonar, fjár- festatengils). Einnig má senda fjárfestatengli félagsins tilkynningu um framboð til stjórnar á netfangið erlendur@heimavellir.is. Framboðseyðublað má finna á vefsíðu félagsins www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur.Upp- lýsingar um framboð til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir fund sbr. 4. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins auk þess sem þær verða aðgengi- legar á fyrrgreindri vefsíðu félagsins. Á hluthafafundum félagsins fylgir eitt atkvæði hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf félagsins njóta ekki atkvæðisréttar. Hluthafi á rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi, ef hann gerir um það skriflega rafræna kröfu til félagsstjórnar (erlendur@heimavellir.is)með nægilega miklum fyrir- vara til að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins. Stjórnarkjör skal jafnan vera skriflegt, ef tillögur koma fram um fleiri menn en kjósa skal um. Varð- andi heimild til að krefjast hlutfalls- eða margfeldiskosningar við kjör stjórn- armanna vísast til 5. mgr. 18. gr. samþykkta félagsins. Krafa um hlutfalls- eða margfeldiskosningu þarf að hafa borist stjórn að lágmarki fimm sólarhringum fyrir hluthafafund, eða fyrir klukkan 15:00 laugardag 9. maí 2020. Atkvæða- greiðslur um þaumál sem eru á dagskrá hluthafafundar verða skriflegar á fund- inum ef einhver atkvæðisbærra fundarmanna krefst þess. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthafar geta þó óskað eftir því að fá atkvæðaseðla senda til sín og skal skrifleg beiðni þar um hafa borist á heimili félagsins fimm dögum fyrir auglýstan hluthafafund, Heimavellir hvetja hluthafa til að nýta sér framangreind réttindi ef umboð er ekki veitt. Einnig geta hluthafar vitjað atkvæðaseðla sinna á heimili félagsins frá sama tíma eða greitt þar atkvæði. Hluthafafundur er lögmætur ef hann er löglega boðaður. Hluthafafundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn og atkvæðaseðlar, sem verða afhent á fundarstað, einnig á íslensku. Hluthafar og umboðsmenn geta skráð sig á hluthafafundinn á fundarstað frá klukkan 14:30 á fundardegi. Gögn vegna fundarins eru aðgengileg á skrifstofu félagsins í Lágmúla 6, 108 Reykjavík og á vefsvæði tengdu hluthafafundinum á heimasíðu félagsins: www.heimavellir.is/is/fyrir-fjarfesta/hluthafafundur Reykjavík, 23. apríl 2020 Stjórn Heimavalla hf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.