Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 38
38 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Dáið er allt án
drauma. Fjölnismaður-
inn Tómas Sæmunds-
son segir í bréfi til
Jónasar vinar síns
Hallgrímssonar 1.
október 1828 um heim-
sóknir sínar í leikhús
Kaupmannahafnar:
„Ég tek ekki það fríða
sjónleikahús og allar
þessar fögru útsjónir –
gullna sali, skóga, sjó,
sól og tungl, skruggur
og eldingar og alt það
sem konstin hefur get-
að upp fundið til jafns
við … Bessastaða-
svefnloftið á meðal
ykkar.“ Þar höfðu þeir
félagar sett saman
leiksýningar.
Draumur um sjón-
leikahús fyrir Íslend-
inga er samofinn
fyrstu hugmyndum um
sjálfstætt menningar-
starf þjóðarinnar.
Hann var hluti af
endurreisn sjálfstæðishugsjóna
rómantíkurinnar og það var Sig-
urður málari sem festi hana fyrstur
á blað árið 1862. Í minnisblaði telur
hann upp nokkur verkefni sem
hrinda þurfi í framkvæmd; minnis-
varða um Ingólf Arnarson, alþingis-
hús, þjóðsafn eða forngripasafn, og
leikhús. Í janúar 1873 segir hann á
fundi í Kveldfélaginu: „Það þyrfti
að byggja hús sem haldnar yrðu í
comedíur“ og veltir upp raunhæfum
möguleikum um rekstur þess. Það
kom í hlut lærisveina hans að fylgja
málinu eftir og fór þar fremstur
Indriði Einarsson leikskáld, hag-
fræðingur og fjárhaldsstjóri Land-
sjóðs. Árið 1917 gaf Leikfélag
Reykjavíkur ágóða af sýningu á
Nýjársnótt Indriða fyrsta framlagið
í byggingarsjóð Þjóðleikhússins.
Pólitísk breiðfylking um
byggingu leikhúss
Til að hrinda þessu mikla mann-
virki, þessum draumi, í framkvæmd
þurfti pólitíska breiðfylkingu sem
teygði sig yfir miðju stjórnmálanna:
bandalag Jónasar Jónssonar frá
Hriflu og Jakobs Möller, tengda-
sonar Indriða, dugði til að ná þeim
þingstyrk svo lög um skemmtana-
skatt, gjald á allar skemmtisam-
komur landsmanna, böll og bíó,
tóku gildi 1923 og skyldi hann
renna til byggingar Þjóðleikhúss.
Ungur arkitekt, Guðjón Samúels-
son, birti 1924 hugmyndir sínar um
háborg íslenskrar menningar á
Skólavörðuholti og þar var gert ráð
fyrir „samkomuhúsi“ og eru það
fyrstu drög hans að Þjóðleikhús-
byggingunni sem tók að rísa
fáeinum árum síðar við hlið Lands-
bókasafnsins við
Hverfisgötu sem við
köllum nú Þjóðmenn-
ingarhús.
Bygging Þjóðleik-
hússins var fullveldis-
tákn fátækrar þjóðar.
Á klöppum Skugga-
hverfisins þar sem
aumustu kot bæjarins
stóðu hnípin reis
hamrahöll, klædd
glitrandi hrafntinnu
sem skein í sólinni og
þannig var húsið lengi
fullbúið hið ytra en hið
innra tómt gímald.
Kreppan lamaði fram-
kvæmdaviljann. Stóð
skelin óupphituð í tvo
áratugi.
Sumardagurinn
fyrsti markar
táknrænt upphaf
Efnahagsupp-
gangurinn eftir seinni
heimsstyrjöldina
breytti efnahag
þjóðarbúsins. Leiksvið
þjóðarinnar voru víða,
í bæjum og sveitum
um allt land þar sem alþýða manna
lék sér til ánægju og lífsfyllingar,
og ekki síður í útvarpi allra lands-
manna þar sem leikið efni var fyrir-
ferðarmikið. En okkur vantaði
Þjóðleikhús. Í stríðslok steig fram
ný kynslóð sem sótti sér fullgilda
menntun í sviðslistum til skóla á
gömlum grunni í Lundúnum og
Kaupmannahöfn og vestur um haf
til yngri menntastofnana; leikarar,
dansarar, söngvarar, leikmynda-
smiðir.
Í ráðherratíð Eysteins Jónssonar
1948 voru samin sérlög um Þjóð-
leikhúsið og nú skyldi lokið við
bygginguna. Draumurinn var að
rætast. Þjóðleikhúsið var vígt
sumardaginn fyrsta árið 1950 og
var vandað til lokafrágangs hússins
sem best varð á kosið. Auk aðal-
salar hússins sem tók á sjöunda
hundrað í sæti var í austurálmu til-
raunasvið sem snemma var breytt í
æfingasal fyrir listdansara en þegar
á fyrsta starfsári hússins var boðið
upp á listdans og óperuflutning ís-
lenskra listamanna. Þar var vagga
listdansins og óperulistarinnar, þar
birtust á sviði glæný samtímaverk,
íslenskar frumsmíðar í bland við
eldri verk, auk sígildra heims-
bókmennta. Sinfónían átti þar skjól
um hríð.
Listskógur sprottinn
úr frjóum farvegi
Nú eru liðin 70 ár frá þessum
merku tímamótum í menningu þjóð-
arinnar. Sprotar frá starfi lista-
manna Þjóðleikhússins hafa fest
rætur víða; leiknar kvikmyndir,
sjónvarpsverk, dans, brúðuleikhús,
óperusýningar, ný og glæsileg leik-
hús nyrðra og hér fyrir sunnan. Í
landinu starfa tugir sjálfstæðra
sviðslistahópa. Á öllum stigum
skólakerfisins er leikið og sýnt. Um
allt land standa félög áhugamanna
fyrir leiksýningum í sinni sveit.
Þjóðleikhúsið er kjölfestan í ís-
lenskum sviðslistum, grunnurinn
sem sviðsmenning okkar stendur á,
svo kær sem hún er öllum lands-
mönnum, stórum og smáum, lærð-
um og leikum. Engin þjóð austan
hafs og vestan sækir leikhús jafn
oft og við Íslendingar. Við höfum
átt vaska sveit sviðslistamanna,
þjóðkunna menn, konur og karla,
sem hafa veitt okkur óblandna
ánægju í þessi sjötíu ár. Um þessar
mundir sjáum við okkar fólk í er-
lendum verkefnum á hvíta tjaldinu
og í sjónvarpsmiðlum streyma til
heimsins okkar leiknu sögur.
Menning þarf andlega
og
veraldlega ræktun
Þjóðleikhúsbyggingin hefur
þróast og breyst með tímanum, rétt
eins og hið listræna starf sem fylgir
kröfunni um stöðuga nýja ferska
sýn á mannlífið og örlög okkar,
skömm okkar og sigra. Hinn langi
byggingartími heimtaði viðhald sem
oft var vanrækt og kom loks að því
á níunda áratug síðustu aldar að
ráðist var í umfangsmiklar endur-
bætur. Ytra byrði Þjóðleikhússins
var lagað og verulegar breytingar
gerðar á almenningsrýmum og að-
alsal hússins. Byggingin krefst
stöðugs viðhalds, bæði í innrétt-
ingum og tækjabúnaði. Útihús
Þjóðleikhússins eru nú skrifstofu-
aðstaða og tveir litlir sýningarsalir í
níutíu ára gömlu íþróttahúsi, nær
aldar gömul bygging hæstaréttar er
líka nýtt, í gamla kolakjallaranum
er nú lítið leiksvið. Engin þessara
rýma voru hugsuð til leiksýninga.
Endurbyggingu Þjóðleikhússins
sem hafin var 1990 er ekki lokið. Ít-
arlegar áætlanir voru unnar og
birtar 2006 um endurbætur, breyt-
ingar og viðbyggingu við Þjóðleik-
húsið.
Því hef ég á þessum tímamótum
óskað eftir að fram fari á endur-
skoðun á þeim áætlunum sem unn-
ar voru 2006. Markmiðið er að móta
nýjar tillögur um viðbyggingu við
Þjóðleikhúsið til að svara kalli nýrr-
ar aldar og búa sviðslistamönnum
og gestum leikhússins bætta að-
stöðu til framtíðar.
Erindi lista og
menningar aldrei brýnna
Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur. Um þessar mundir
komum við ekki saman til að fagna
afmælinu, því Þjóðleikhúsið og aðrir
samkomustaðir þar sem við höfum
mæst og glaðst, fagnað og syrgt,
eru lokaðir. Starfsfólk Þjóðleikhúss-
ins hefur eins og margir aðrir lista-
menn stytt okkur stundir og biðina
eftir því að mannlíf okkar verði eins
og áður eftir öðrum leiðum. Sá tími
er nærri þótt okkur þyki biðin löng.
Maður er manns gaman og sú stund
rennur upp að við getum aftur kom-
ið saman í Þjóðleikhúsinu okkar og
séð í sviphendingu list sviðsins,
þennan einstaka fund við okkur
sjálf sem við njótum öll saman í
myrkum sal leikhússins sem lýsir
upp sálina og gleður sinnið.
Ég óska okkur öllum til hamingju
með Þjóðleikhúsið okkar. Megum
við um ókomna framtíð njóta listar-
innar í því húsi.
Eftir Lilja
Alfreðsdóttir
» Þjóðleik-
húsið er
kjölfestan í ís-
lenskum sviðs-
listum, grunn-
urinn sem
sviðsmenning
okkar stendur á,
svo kær sem
hún er öllum
landsmönnum.
Lilja Alfreðsdóttir
Höfundur er mennta- og
menningarmálaráðherra.
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Afmælissýning Draumur á Jónsmessunótt eftir William Shakeapeare var
hátíðarsýning Þjóðleikhússins í tilefni af 50 ára afmæli leikhússins árið 2000.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Fjölbreytt Sjö milljónir áhorfenda hafa séð leiksýningar Þjóðleikhússins, sem hefur talað til þjóðarinnar í 70 ár með fjölbreyttu verkefnaval fyrir alla aldurshópa.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Dimmalimm Dansarar úr ballettinum Dimmalimm, í nóvember 1954.
Fremst fyrir miðju eru Anna Guðný Brandsdóttir og Helgi Tómasson.
Draumur þjóðar
Ljósmynd/Hörður Sveinsson