Morgunblaðið - 23.04.2020, Qupperneq 48
48 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
✝ ArnheiðurRagnarsdóttir
fæddist í Reykjavík
4. september 1960.
Hún lést 6. apríl
2020. Foreldrar
hennar voru Sig-
ríður Erla Jóns-
dóttir, f. 12.3.
1933, d. 17.2. 1999
og Ragnar Berg-
steins Henrysson,
f. 31.3. 1927, d.
9.11. 1987. Systkini Arnheiðar
voru Páll Arnar, f. 17.3. 1954,
d. 16.10. 1983. Jón Ingi, f. 3.10.
1956, d. 27.6. 2005. Ragnar Sig-
urður, f. 27.8. 1958, d. 27.4.
1981. Arnheiður var gift Sig-
urþóri Heimi, f. 14.8. 1960, en
þau skildu. Börn þeirra eru Sig-
ríður Ragna, f. 25.9. 1984, maki
Sigurður, f. 6.5. 1982. Börn
þeirra eru Ólafur Breki, f.
10.10. 2010 og Embla Dís, f.
20.4. 2016. Sigurþór Arnar, f.
1.12. 1990, Börn
hans eru Anton
Jökull, f. 12.1. 2017
og Alexander
Magnús, f. 20.3.
2019. Guðbjörg
Ósk, f. 23.5. 1992.
Arnheiður eða
Adda eins og hún
var alltaf kölluð
bjó öll sín uppvaxt-
arár við Otrateig í
Laugarneshverf-
inu. Hún hóf skólagönguna í
Laugarnesskóla og hélt þaðan í
Laugalækjarskóla. Eftir að
Adda lauk skólagöngunni lá
leiðin út á vinnumarkaðinn, þar
sem hún fór að vinna við bók-
hald. Vann hún lengst af á ýms-
um bókhaldsskrifstofum auk
þess sem hún starfaði mikið
sjálfstætt, þar sem hún sá um
bókhald fyrir ýmsa aðila. Útför
Arnheiðar hefur farið fram í
kyrrþey.
Elsku mamma mín, ég trúi því
ekki að ég fái ekki að knúsa þig
aftur eða tala við þig. Ég sakna
þín óendanlega mikið og mun
ætíð minnast þín og allra góðu
minninganna okkar saman.
Mér varð hugsað til þess þeg-
ar ég var ólétt að ömmustelpunni
þinni og hélt að ég væri farin af
stað, hugsaði þá með mér að af-
mælisdagur hennar yrði 16. apríl
en var hún bara að stríða okkur.
En núna mun ég minnast þess-
arar dagsetningar um ókomna
tíð þar sem þetta er dagurinn
þegar ég þurfti að kveðja þig í
hinsta sinn. Ég hefði kosið að
minnast hans á annan hátt, en
maður fær ekki alltaf að hafa
hlutina eins og maður vill, því
miður. Þá væri ég líka ekki að
skrifa þetta heldur myndi ég
hringja í þig og segja þér hvað ég
elska þig rosalega mikið.
Núna hugsa ég um allt sem
hefði getað orðið, eins og afmælið
þitt í september þar sem þú hefð-
ir orðið sextug. Ferðina sem við
hefðum getað farið saman í til-
efni þess.
Afmælisveislu dóttur minnar
sem þú hefðir komið í núna í apr-
íl. Ég gæti haldið endalaust
áfram.
En á móti er ég svo þakklát
fyrir það að þú hafir fengið að
upplifa börnin mín og þau þig,
mun ávallt deila með þeim minn-
ingum um Öddu ömmu sína.
Ég kveð þig með sorg í hjarta
en jafnframt þakklæti fyrir að
hafa auðnast sá heiður að vera
dóttir þín.
Læt að lokum fylgja hér með
það sem fer endalaust í gegnum
huga minn á þessum erfiða tíma.
Guð, gefðu mér æðruleysi
til að sætta mig við það
sem ég fæ ekki breytt,
kjark til að breyta því
sem ég get breytt
og vit til að greina þar á milli.
Að lifa einn dag í einu,
njóta hvers andartaks fyrir sig,
viðurkenna mótlæti sem friðarveg,
með því að taka syndugum heimi
eins og hann er,
eins og Jesús gerði
en ekki eins og ég vil hafa hann
og treysta því að þú munir færa allt
á réttan veg
ef ég gef mig undir vilja þinn
svo að ég megi vera hæfilega
hamingjusamur í þessu lífi
og yfirmáta hamingjusamur með þér
þegar að eilífðinni kemur.
Amen.
(Reinhold Niebuhr)
Þín að eilífu
Ragna.
Elsku Adda vinkona er dáin.
Fréttin um skyndilegt fráfall
hennar kom eins og reiðarslag,
svo snöggt og ótímabært. Engin
orð geta lýst því sem býr innra
með mér núna, tómleiki, sársauki,
spurningar, hugsanir, minningar,
allt flækist saman og skilur eftir
sig holrúm í hjarta mínu.
Oft virðast undarleg örlögin
og mörg svo ósanngjörn atvikin,
á leið um lífsins braut
ef lögð er ókleif þraut.
Eitt atvik ávallt í huga býr
sem aldrei dofnar né burtu flýr,
dæmd voru vorsins blóm
vægðarlausum dóm.
Í gáska enginn að endingu spyr,
óvægin sorgin oft knýr þá á dyr.
Augu hrópa, enginn segir þá neitt
því orð fá engu breytt.
Öll skulum trúa og treysta því
sá tími komi að enn á ný
við getum glöð í lund
átt góðan endurfund.
Þá fái sérhver er sorgina bar
svarið við því til hvers hún var
og veitist veröld blíð
er varir alla tíð.
(Ólafur Þórarinsson)
Ég man ekki hvenær við Adda
hittumst í fyrsta sinn, hún hefur
einfaldlega alla tíð fundist mér við
hlið. Hugurinn leiðir mig til æsku-
áranna þegar við vorum í tíma-
kennslu, fimm eða sex ára gamlar,
við bjuggum þá hlið við hlið á Ot-
rateignum. Við höfðum engan
tíma fyrir tímakennslu, földum
skólatöskurnar í ruslageymslunni
og leituðum uppi eigin ævintýri. Á
Otrateignum lögðum við grunn-
inn að ævilangri vináttu. Æsku-
árin, unglingsárin, fullorðinsárin
alltaf hlið við hlið bundnar
tryggðaböndum er við ráfuðum
eftir braut lífsins. Ég er svo þakk-
lát fyrir þessa djúpu og tryggu
vináttu sem umlukti okkur í gleði
og sorg. Þó vegalengdin hafi verið
mikil á milli okkar var Adda alltaf
svo nálægt mér, við töluðum sam-
an mörgum sinnum í viku um allt
og ekki neitt. Við notuðum öll
tækifæri sem gáfust til að hittast,
stundum hér í Svíþjóð, stundum á
Íslandi og stundum í Kaupmanna-
höfn. Adda var alltaf á leiðinni til
mín og ég á leiðinni til hennar. Við
töluðum um að fara að slaka á og
finna stað í sólinni til að vera sam-
an þegar við værum tilbúnar að
hætta að vinna. Ég sakna yndis-
legrar vinkonu, ég sakna að heyra
ekki rödd hennar. Það verður
ekkert spjall með morgunkaffinu
um helgar. Það verður ekkert
spjall um allt og ekki neitt eftir
vinnu. Ég sakna samverustund-
anna sem aldrei verða. Engar
fleiri heimsóknir, enginn hittingur
í Danmörku og engin samvera í
sólinni þegar við hættum að vinna.
Elsku vinkona, ég kveð þig með
sorg í hjarta. Ég er svo þakklát
fyrir öll árin sem við upplifðum
saman og allar ljúfu minningarnar
sem þú skilur eftir þig sem munu
ylja mér um ókomna tíð. Það sem
huggar á þessari erfiðu stundu er
vitneskjan um að vel verði tekið á
móti þér af öllum góðu englunum,
foreldrum þínum og bræðrum
sem þú misstir á unga aldri. Guð
gefi börnunum þínum, sem þú
unnir svo heitt, styrk á þessum
erfiðu tímum.
Lifðu í ljósinu.
Ásta Ómarsdóttir.
Elsku Adda mín.
Það er svo óraunverulegt að
skrifa þessi orð um svo hlýja og
fallega sál sem kvaddi allt of
snemma. Ég man ennþá þegar ég
hitti þig fyrst og mér þykir svo
vænt um að hafa fengið að kynn-
ast þér.
Ég kynntist Rögnu þinni þegar
við vorum rétt um bílprófsaldur-
inn og eyddum við endalausum
tíma á rúnti um bæinn og nutum
lífsins í botn. Þegar ég svo kom
fyrst í heimsókn til þín mættir þú
mér af svo mikilli hlýju og um-
hyggju og alla tíð síðan hefur þú
tekið mér sem þinni eigin dóttur,
þú varst boðin og búin að gera allt
fyrir mig.
Þegar ég svo eignast frum-
burðinn minn, óvænta púkann
minn, þá varðst þú strax eins og
amma fyrir hann og hefur alltaf
fylgst vel með honum og allt viljað
fyrir hann gera. Mér er sérstak-
lega minnisstætt þegar við Ragna
vorum að ræða það að okkur lang-
aði svo að skella okkur saman á
þjóhátíð en ég sá ekki fram á að fá
pössun fyrir þá tæplega 2 ára
guttann. Þú hélst nú heldur betur
ekki að við færum að láta það
stoppa okkur og skipaðir mér að
koma bara með drenginn og leyfa
þér að dekra við hann á meðan, al-
gjörlega ómetanlegt. Ég átti erfitt
með að þiggja boðið, en þú hlust-
aðir ekki á það heldur rakst okkur
í að panta okkur miða, þetta yrði
ekkert mál og þið tvö mynduð
skemmta ykkur svo vel saman,
sem þið gerðuð.
Ég verð þér ævinlega þakklát
því á þessari þjóðhátíð breyttist
deitið mitt yfir í alvarlegt sam-
band sem hefur gefið mér tvö
börn í viðbót, hund, hús og ham-
ingjuríkt hjónaband, fyrir utan
skemmtunina sem þjóðhátíðin
var.
Ég er þér svo þakklát fyrir
þessa frábæru stelpu sem þú átt,
betri vinkonu er ekki hægt að
hugsa sér og hún býr yfir sömu
hlýju og góðvild og ég fékk að
kynnast hjá þér, takk. Það er líka
svo dásamlegt að eiga minn-
inguna síðan í haust þegar við
hittumst í afmæli Rögnu, við
skemmtum okkur svo vel, þú
varst svo stolt og glöð yfir stelp-
unum þínum og við áttum ómet-
anleg samtöl þetta kvöld sem ég
mun geyma í hjartanu mínu að ei-
lífu.
Ég kveð þig með þessum fal-
lega texta sem snertir hjarta mitt
í dag og ég lofa að passa upp á
stelpurnar þínar út ævina.
Sérhver draumur lifir aðeins eina nótt
sérhver alda rís en hnígur jafnan skjótt
hverju orði fylgir þögn
og þögnin hverfur alltof fljótt.
En þó að augnablikið aldrei fylli stund
skaltu eiga við það mikilvægan fund
því að tár sem þerrað burt
aldrei nær að græða grund.
Líttu sérhvert sólarlag,
sem þitt hinsta væri það.
Því morgni eftir orðinn dag
enginn gengur vísum að.
Þú veist að tímans köldu fjötra enginn
flýr
enginn frá hans löngu glímu aftur snýr.
Því skaltu fanga þessa stund
því fegurðin í henni býr.
(Bragi Valdimar)
Hvíldu í friði fallegi engill,
þín vinkona
Jóna Guðrún.
Við hjá BDO höfum ráðið til
okkar marga góða bókara. Það
hefur þó aldrei komið fyrir að við-
skiptavinur hringi í okkur og
hreinlega bæði okkur um að ráða
tiltekna manneskju. Sú var þó
raunin með hana Öddu okkar.
Samband hennar við viðskiptavini
sína einkenndist af miklu meira
en eingöngu viðskiptasambandi
þeirra. Hún vann hratt og örugg-
lega fyrir viðskiptavinina sína,
hélt utan um, passaði þá og um-
gekkst þá af virðingu, trú-
mennsku og ræktarsemi. Á móti
sýndu viðskiptavinir henni þá
sömu ræktarsemi, vinskap og
virðingu og hún sýndi þeim. Þeir
pössuðu upp á hana eins og hún
passaði þá.
Þegar Adda kom til okkar í
BDO á síðasta ári varð samband
hennar við okkur eins og við hefð-
um þekkst í mörg ár. Þannig per-
sóna var hún bara. Öllum leið vel í
kringum hana, hún var opin og
hlý. Við hefðum svo gjarnan viljað
þekkja hana mikið lengur og
kynnast henni enn betur.
Það varð okkur þess vegna
mikið áfall þegar hún féll frá,
missir sem við höfum ekki al-
mennilega áttað okkur á ennþá.
Við finnum líka að viðskiptavinir
hennar sakna hennar og hafa
misst mikið. Fráfall hennar er
missir margra og verður skarð
hennar vandfyllt. Innilegar sam-
úðarkveðjur til fjölskyldunnar
vegna fráfalls yndislegu og fallegu
Öddu.
Megi ljós og hlýhugur umvefja
ykkur fjölskylduna og kærleikur-
inn ykkur vernda.
F.h. samstarfsfélaga hjá BDO,
Þorlákur Björnsson.
Arnheiður
Ragnarsdóttir
Nú er elsku
mamma mín dáin
og þótt hún hafi
náð 91 árs aldri er
samt erfitt að sjá
á eftir henni. Ég deildi
mömmu minni með sjö systk-
inum auk pabba og ömmu, svo
það var alltaf margt um mann-
inn á heimilinu og fjörugt.
Mamma var heimavinnandi
húsmóðir, sem hefur verið full
vinna og vel það með svona
stórt heimili. Hún var listræn
og sem ung kona málaði hún á
stramma sem aðrar konur
saumuðu í eða á flauel í púða
og veggteppi yfir dívana. Hún
sótti námskeið, málaði málverk
og átti erfitt með að slíta sig
frá penslinum svo hún nýtti
tímann á nóttunni til að mála á
meðan börnin sváfu. „Ég þráði
svo að mála, ég bara varð að fá
að mála,“ sagði hún mér ein-
hverju sinni. Hún hvatti okkur
börnin til að skapa og hélt að
okkur efnivið, t.d. þegar við
sátum við eldhúsborðið að bíða
á meðan hún eldaði matinn
bauð hún okkur að teikna,
leira eða annað og hún vakti
athygli okkar á listinni í sjálfri
náttúrunni eins og andlitunum
í fjöllunum. Á gostímanum ’73-
’74 fluttum við mörgum sinn-
um um höfuðborgarsvæðið og
það hefur reynt mikið á for-
eldra mína, ekki síst fjárhags-
lega. Hörður bróðir spurði
mömmu af hverju hún færi
ekki aftur að mála púða eins
og í gamla daga. Þá hugmynd
greip hún og málaði og seldi
um allt land í mörg ár. Örn
bróðir var eitt sinn spurður
hvar mamma hans ynni og
svaraði hann um hæl:
„Mamma, hún vinnur ekki
neitt, hún málar bara púða.“
Um tíma bjuggum við í lítilli
kjallaraíbúð í Reykjavík og
Alda
Björnsdóttir
✝ Alda Björns-dóttir fæddist
4. júlí. 1928. Hún
lést 18. mars 2020.
Útförin fór fram
í kyrrþey 28. mars
2020.
þennan ískalda vet-
ur var hitaveitan
oft að fara en
mamma hamaðist
þá við að baka svo
íbúðin hitnaði.
Mamma hafði
mikla kímnigáfu,
sá alltaf hið spaugi-
lega í aðstæðunum
og hafði stundum á
orði að maður yrði
að geta hlegið þótt
aðstæður væru erfiðar. Hlát-
ursköstin hennar voru bráð-
smitandi og ekki hægt annað
en að skellihlæja með henni. Á
Hraunbúðum, þar sem mamma
bjó síðustu árin sín, gantaðist
hún líka við starfsfólkið sem
henni þótti afar vænt um, enda
var mjög vel hugsað um hana
þar og er ég þeim óendanlega
þakklát fyrir. Mamma var
hjartahlý kona, með stórt
hjarta eins og sagt er og hafði
pláss fyrir alla. Hún lagði ríka
áherslu á að öllum liði vel og
mikilvægi þess að standa sam-
an, hjálpa hvert öðru og þeim
sem áttu erfitt. Hún var til-
finninganæm kona sem mátti
ekkert aumt sjá en gat líka
tárast við það eitt að sjá eitt-
hvað fallegt gerast og átti auð-
velt með að samgleðjast öðr-
um. Mamma var opin gagnvart
fjölbreytileika mannlífsins og
gott dæmi um það var þegar
eitt barnabarn hennar opin-
beraði samkynhneigð sína fyr-
ir fjölskyldunni. Þá sagði hún:
„Já er það ekki allt í lagi, mér
þykir alveg jafn vænt um hann
fyrir það.“ Þegar ég tók að
mér fósturdóttur sagði hún:
„Það er svo gott að geta elskað
barn, þótt maður eigi það ekki
sjálfur.“ Mömmu þótti vænt
um börnin sín og afkomendur
og var óspör á að segja okkur
það þegar við hittumst. Í sím-
tali stuttu áður en hún dó var
einmitt það síðasta sem hún
sagði við mig: „Mér þykir svo
vænt um þig.“ Takk elsku
mamma fyrir allt sem þú hefur
gefið mér.
Þín
Inga Jóna.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undirbúnings og
framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju
að leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Elskulegur bróðir okkar og frændi,
PÁLL M. JÓNSSON
bóndi,
Ástúni, Seyluhreppi,
Skagafirði,
andaðist á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki
fimmtudaginn 16. apríl. Hann verður jarðsunginn
í Glaumbæjarkirkju 25. apríl klukkan 14. Jarðarförinni verður
útvarpað við kirkjuna og streymt á netinu.
Ættingjar þakka starfsfólki á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki sem og
vinum hans fyrir alúð og hlýju við umönnun hans.
Fjóla F. Jónsdóttir
Guðrún Jónsdóttir
María Jónsdóttir
makar, börn og ættingjar
Okkar ástkæra,
SVAVA KRISTÍN ALEXANDERSDÓTTIR
frá Vestmannaeyjum,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn
19. apríl. Útförin fer fram í kyrrþey
mánudaginn 27. apríl. Fjölskyldan þakkar
starfsfólki á deild 3N fyrir kærleiksríka umönnun.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Alzheimersamtökin.
Gylfi Tryggvason Margrét Rósa Jóhannesdóttir
Aldís Tryggvadóttir Vilhjálmur Waage
Guðmundur Ási Tryggvason Auður Traustadóttir
Sveinn Orri Tryggvason Steinunn Ósk Konráðsdóttir
Soffía Vala Tryggvadóttir Vilhjálmur Ólafsson
Bylgja Tryggvadóttir
ömmubörn og fjölskyldur þeirra