Morgunblaðið - 23.04.2020, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 51
Umsóknarfrestur er til og með 11. maí 2020
Umsókn, ásamt ferilskrá og ýtarlegu kynningarbréfi, skal senda í gegnum heimasíðu
FAST Ráðninga, www.fastradningar.is. Óskað er eftir einnar blaðsíðu kynningarbréfi
þar sem á skipulegan hátt er gerð grein fyrir reynslu viðkomandi af helstu verkefnum
sem fylgja starfinu. Nánari upplýsingar veitir Lind Einarsdóttir hjá FAST Ráðningum,
lind@fastradningar.is, eða í síma 552-1606.
Hrafnista Laugarás Hraunvangur Boðaþing Nesvellir Hlévangur Ísafold Sléttuvegur Skógarbær
Hrafnista starfrækir átta öldrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ.
Hjá Hrafnistu starfa tæplega 1.500 manns, ýmist í fullu starfi eða hlutastarfi.
Veitt er sólarhringsþjónusta alla daga ársins til aldraðra skjólstæðinga heimilanna.
Óskum eftir að ráða öflugan og jákvæðan mannauðsstjóra til að stýra og taka þátt í áframhaldandi
eflingu mannauðs Hrafnistuheimilanna.
Mannauðsstjóri stýrir mannauðsdeild og ber ábyrgð á þróun og framkvæmd mannauðsstefnu
Hrafnistu, stuðningi við stjórnendur varðandi mannauðsmál og eftirfylgni mannauðsverkefna.
Mannauðsdeild er stoðdeild innan Hrafnistu sem vinnur náið með stjórnendum og starfsmönnum
Hrafnistuheimilanna. Mannauðsdeild heyrir beint undir forstjóra og á mannauðsstjóri sæti í
framkvæmdaráði Hrafnistu sem er teymi lykilstjórnenda heimilanna.
Menntunar- og hæfnikröfur
• Framhaldsnám á sviði mannauðsstjórnunar
• Starfsreynsla á sviði mannauðs-
stjórnunar nauðsynleg
• Frumkvæði og metnaður til að ná árangri
• Mikil skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
• Framúrskarandi hæfni í
mannlegum samskiptum
• Þekking á lagalegum hliðum
mannauðsstjórnunar
• Þekking og/eða reynsla af úrvinnslu
tölfræðilegra gagna
• Rík þjónustulund
Starfssvið
• Alhliða ráðgjöf til stjórnenda á sviði mannauðsmála
• Skipulag og yfirumsjón með mönnun og ráðningu starfsfólks
• Stuðla að góðum samskiptum og góðum starfsanda
• Ábyrgð á verkefnum á sviði viðverustjórnunar og vinnuverndar
• Framkvæmd kannana meðal starfsmanna og eftirfylgni úrbóta-
verkefna þeim tengdum
• Yfirumsjón og ábyrgð á skjalagerð s.s. ráðningarsamningum
og starfslýsingum
• Áætlanagerð varðandi mönnun og launakostnað
• Samskipti við stéttarfélög, túlkun kjarasamninga og
þátttaka í samningagerð
• Skipulag og yfirumsjón með þjónustu mannauðsdeildar
• Yfirumsjón með tölfræðigreiningu á sviði mannauðsmála
Ert þú meistari í mannauðsmálum?