Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 68
af öllum
sumarvörum
og 20% af öllum
vörum í apríl
ILVA Korputorgi, s: 522 4500 - www.ILVA.is
Mánudaga - Sunnudaga 12-18
Frí heimsending
Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU
FYRIR ÞÁ SEM VERSLA
FYRIR 5.000 EÐA MEIRA
WWW.ILVA.IS
GILDIR Í VEFVERSLUN Í APRÍL
25%Sparadu-
LIONI garðstóll. Ýmsir litir. 16.900 kr. Nú 12.675 kr.
Kvikmynd Hlyns
Pálmasonar, Hvítur,
hvítur dagur, hefur
vakið athygli í Banda-
ríkjunum en myndin
var frumsýnd þar í
landi um nýliðna helgi
í svokölluðu sýndar-
bíói. Dreifingaraðili
myndarinnar á í sam-
starfi við fjölda kvik-
myndahúsa í Banda-
ríkjunum með svo-
kallað „virtual
cinema“ eða sýndar-
bíó sem þýðir að hægt er að kaupa myndina á netinu í
gegnum hvert og eitt kvikmyndahús og fær hvert kvik-
myndahús þá helming kaupverðsins. Hefur myndin
hlotið jákvæða dóma víða, m.a. í Variety, New York Tim-
es, Los Angeles Times og Washington Post og er hún nú
í 11. sæti yfir bestu kvikmyndir ársins á vefnum meta-
critic sem tekur saman gagnrýni hinna ýmsu miðla.
Kvikmynd Hlyns í sýndarbíói vestra
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 114. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Benedikt Guðmundsson, landsliðsþjálfari kvenna í
körfuknattleik, segir til skoðunar hafa verið að lands-
liðið fengi vináttuleiki síðsumars til að undirbúa sig
fyrir næstu leiki í undankeppni EM sem eiga að fara
fram í nóvember. Kórónuveiran og áhrif hennar riðluðu
þessum fyrirætlunum og nú er óvíst hvort liðið getur
spilað vináttuleiki áður en að mótsleikjunum kemur.
Benedikt vonast jafnframt til þess að hægt verði að
taka æfingatörn með landsliðinu þótt enn sé of
snemmt að slá því föstu. »58
Óvíst hvort hægt verður að spila
vináttulandsleiki fyrir mótsleikina
ÍÞRÓTTIR MENNING
Margrét Þóra Þórsdóttir
Akureyri
Vaxandi hópur fólks á Akureyri og í
nágrannasveitarfélögum hefur leitað
eftir aðstoð hjá þeim Sigrúnu Stein-
arsdóttur og Sunnu Ósk Jakobs-
dóttur sem halda úti facebooksíðunni
Matargjafir á Akureyri og nágrenni.
Um 2.000 manns eru skráðir á síðuna
sem hefur verið í gangi frá því í ágúst
árið 2014 eða á sjötta ár. Aldrei hafa
fleiri leitað eftir aðstoð en einmitt nú.
Óskir fyrir páska voru álíka margar
og að jafnaði tíðkast fyrir jólin.
Sigrún og Sunna segja greinilegt
að víða er að harðna á dalnum. Í
mars hafi um 120 einstaklingar eða
fjölskyldur óskað eftir liðsinni þeirra
varðandi
matargjafir
og hafa aldrei
verið fleiri í
einum mán-
uði. „Við tók-
um eftir því
þegar leið að
páskum að æ
fleiri sendu
inn beiðni um
aðstoð og við reyndum að gera það
sem við gátum,“ segja þær. Töluvert
er nú um að fólk stundi hlutastarf
eða hafi alveg misst atvinnu sína.
Mikil óvissa sé ríkjandi í samfélaginu
og víða á fólk í verulegum vandræð-
um með að ná endum saman.
Sigrún og Sunna hafa sjálfar um
tíðina fjármagnað verkefnið ásamt
þeim sem bjóða þeim ýmist matar-
gjafir eða leggja pening inn á reikn-
ing sem notaður er til matarkaupa.
„Það er hópur fólks í samfélaginu
sem gefur af sínu fé og fyrir það
kaupum við ýmist gjafakort í mat-
vöruverslunum eða mat og færum
þeim sem lítið hafa,“ segir þær. Þeir
sem aflögufærir eru og vilja leggja
málefninu lið geta lagt inn á reikning
Matargjafa á Akureyri og nágrenni
en númer hans má finna á facebook-
síðu hans. Eins er hægt að hafa beint
samband við þær stöllur.
Leitað hefur verið til fyrirtækja á
svæðinu en þær segja undirtekir
ekki sérlega jákvæðar og þær hafi
gefist upp á að óska eftir aðstoð þar.
Undanfarið hafi þó aðeins borið á því
að fyrirtæki hafi gefið matvæli, m.a. í
tengslum við lokun matsölustaða
vegna samkomubanns.
Margir nýir bætast við
Sigrún og Sunna segja að undan-
farnar vikur hafi margir nýir bæst í
hóp þeirra sem óska eftir matar-
aðstoð. Ungt barnafólk á leigumark-
aði sé áberandi í þeim hópi sem og
einstæðir ungir karlmenn. „Undan-
farið hafa um 60 nýir bæst við hjá
okkur og eins er svolítið um að fólk
sem áður var á lista sé að koma
aftur,“ segja þær. „Staðan hefur á
margan hátt snarversnað hjá fólki,
það er eflaust stærsta skýringin á
þeirri aukningu sem við sjáum
núna.“
Þó svo að flestir sem þiggja mat-
argjafir séu búsettir á Akureyri
neita þær stöllur engum sem til
þeirra leita. Þannig hafa þær sent
matarpoka til nágrannabyggðarlaga,
Siglufjarðar, Sauðárkróks og allt
vestur á Blönduós svo dæmi séu
tekin.
Þakklæti í samfélaginu
„Við finnum fyrir miklu þakklæti.
Þeir sem þiggja gjafirnar eru afar
sælir með það sem þeir fá og oft
skiptir það sköpum fyrir rekstur
heimilisins að fá smá aukaaðstoð.
Eins höfum við fundið að fólk í sam-
félaginu, þeir sem eru að hjálpa okk-
ur og almennir borgarar í bænum, er
ánægt með framtakið. Við erum auð-
vitað glaðar yfir því,“ segja þær og
bæta við að sér renni blóðið til skyld-
unnar. Sjálfar hafi þær í eina tíð ver-
ið í þeirri stöðu sem margt fólk sé í
nú og þegar þær geti látið eitthvað af
hendi rakna til þeirra sem minna
mega sín geri þær það með glöðu
geði.
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Veita aðstoð Sigrún Steinarsdóttir og Sunna Ósk Jakobsdóttir hafa lengi
veitt fólki á Akureyri og nágrenni aðstoð með matargjöfum.
Harðnar á dalnum og
margir óska eftir aðstoð
2.000 hafa skráð
sig á síðuna Matar-
gjafir á Akureyri
og nágrenni