Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 20
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@ frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Björn Víglundsson Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103. Kolbrúnu er margt til lista lagt. „Ég er myndlistarkona, útskrifaðist frá konunglegu listaakademíunni í Den Haag árið 2017 og hef aðallega verið að vinna með myndbönd síðan þá. Undanfarið hef ég verið að safna efni, myndböndum, hlutum, ljós- myndum og hugmyndum sem eiga svo eftir að raðast einhvern veginn saman.“ Pólitíska og heilagleiki Hún er nýkomin úr ferðalagi og tók nýverið ákvörðun um að hætta að prjóna. „Ég var að koma frá Bolungarvík þar sem ég var í tvær vikur að taka upp og flandra. Annars er ég með breitt áhugasvið, sem virkar ekki nema að þú getir einbeitt þér að einhverju einu í einu. Ég er nýbúin að fullkomna mig í prjónaskap og hef ákveðið að hætta á toppnum og er farin að einbeita mér að öðru.“ Hefurðu mikinn áhuga á tísku? „Já, mér finnst skemmtilegt hvað tíska er alltaf í þróun og hvað hún segir mikið um ákveðinn tíðar- anda. Ég held að hugmyndir um tísku verði alltaf til einhvers staðar annars staðar en hjá henni sjálfri. Tíska getur líka verið pólitísk en getur svo líka verið notuð gegn fólki að ákveðnu leyti og ég held að það sé mikilvægt að þekkja muninn.“ Kolbrún segir áhugann á tísku hafa kviknað á sínum yngri árum. „Ég held að tískuáhuginn hafi byrjað þegar við vinkonur mínar byrjuðum að klæða okkur upp saman og ég fattaði að það væri heilög athöfn.“ Töfrar í hverjum þræði Kolbrún segir uppáhaldsflíkina sína búa yfir miklum töframætti. „Uppáhaldsflíkin er svartur sam- festingur sem mamma keypti handa mér í Berlín fyrir kannski tíu árum síðan. Hann virkar mjög venjulegur við fyrstu sýn en er svo allt nema og allir sem fara í hann verða á einhvern hátt ómótstæðilegir. Ég hef aldrei átt leiðinlegan dag í þessum sam- festingi og hann varð á tímabili eign vinkonuhópsins. Vinkona mín útskrifaðist í honum og önnur kynntist manninum sínum þegar hún var í honum þannig að það eru svo sannarlega töfrar í hverjum einasta þræði.“ Hvaðan færðu innblástur? „Innblástur getur komið hvaðan sem er en ef ég ætla að nefna eitt- hvað þá verð ég alveg ástfangin af bíómyndum. Ég var með þrá- hyggju fyrir bíómyndinni The Color of Pomegranates, sem er sovésk mynd frá 1969, í langan tíma sem ég fékk alls konar tísku- tengdan innblástur frá,“ segir Kol- brún dreymin. „Svo er ég með leikstjóra sem heitir Rainer W. Fassbinder á heilanum. Sérstaklega mynd eftir hann sem heitir The Bitter Tears of Petra Von Kant, sem er æðisleg mynd frá 1972 þar sem fatnaðurinn leikur risastórt hlut- verk í allri persónusköpuninni. Ég held líka að maður taki meira eftir því hverju aðrir klæðast heldur en maður gerir sér grein fyrir. Ég fæ mikið af mínum innblæstri frá fólkinu í kringum mig.“ Áttu þér einhverja tískufyrir- mynd? „Já, Winonu Ryder.“ Áttu þér uppáhaldshönnuð? „Ég er mjög hrifin af belgískum hönnuði sem heitir Walter Van Beirendonck. Hann er einhvers staðar mitt á milli þess að vera hönnuður og listamaður. Ég er líka sérstaklega hrifin af Soniu Rykiel af því að hún er svo frábær, Rei Kawakubo hjá Comme Des Garcons og svo mætti áfram telja.“ Ljót og óviðunandi snið Blaðamaður spyr Kolbrúnu hvort hún eyði miklu í föt. „Já og nei. Smekklegt fólk getur fundið sér föt alls staðar og gerir það. Mér finnst hins vegar ekki leiðinlegt að eyða peningum í föt, það er eiginlega eitt af því skemmtilegasta sem ég geri, en það verða þá að vera skemmtileg föt og þess virði, mér finnst ég aldrei finna mér neitt í búðum sem selja skynditísku, mér finnast sniðin ljót og efnin ömur- leg og við það get ég ekki unað,“ segir Kolbrún, alvarleg í bragði. „Síðast keypti ég mér hvít galla- jakkaföt, Bonne Suits, frá Amster- dam. Þú getur verið í buxunum allan daginn og farið svo í jakkann yfir og þú ert tilbúin fyrir leikhús, út að borða eða á barinn.“ Hver er þinn helsti veikleiki þegar kemur að tísku og útliti? „Minn helsti veikleiki þegar kemur að tísku eru fallegir skór. Þegar ég sé hið fullkomna skópar er það eins og að verða ástfanginn og allt annað hættir að skipta máli. En svo er ég líka ilmvatnsfíkill og safna alls konar ilmvötnum sem fara mér vel. Það er mjög gaman þar sem ég á heima í göngufæri við Madison sem er ein uppáhalds búðin mín í heiminum.“ Notar þú fylgihluti og skart? „Ég geng með úr og eyrnalokka. Það allra flottasta sem ég veit er þegar fólk á úr til skiptanna. Ég stefni að því. Get heldur ekki beðið eftir því að geta byrjað að nota gleraugu.“ Hvar kaupir þú helst föt? „Mér finnst alltaf gaman að róta í second hand-búðum og finn flest betri fötin mín þannig. Finnst sérstaklega gaman að róta í Belgíu og gerði mikið af því þegar ég var í námi og held að mikið af mínum uppáhaldsflíkum hafi ég fundið þar. Ég prjóna líka og sauma mikið á mig sjálf og breyti fötum sem ég er ekki alveg sátt við.“ Hvað er fram undan hjá þér? „Fram undan hjá mér í haust er að hella mér í listina. Vinkona mín var að flytja til Íslands og ætlar að deila með mér vinnurými og það verður eitthvað spennandi. Er með fullt af verkefnum og hugmyndum sem þurfa að komast í framkvæmd og hlakka til að fara inn í veturinn full af innblástri og orku.“ Kolbrún Lilja segir sinn helsta veikleika vera skó. Þegar hún finnur hið fullkomna par verði hún ást- fangin og allt annað hætti að skipta máli. Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Framhald af forsíðu ➛ Kolbrún Lilja segist ekki geta unað sér við ljót snið sem gjarnan einkenni skynditísku. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR Ég held að tísku- áhuginn hafi byrjað þegar við vin- konur mínar byrjuðum að klæða okkur upp saman og ég fattaði að það væri heilög athöfn. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.