Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 42
Emotion fitness, motion cycle 600 • Hjartaendurhæfing • Æfingaálag 15-500 Wött í 5 Watta skrefum • Hraði 20-120 snún/mín • Litaskjár með bakljósi • Stærð: 120 x 65 x 155cm • Hámarksþyngd notanda 150 kg en fáanlegt með styrkingu fyrir 200 kg notendur Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is GaitKeeper GKS22 • Hannað fyrir endurhæfingu • Vinnur vel með LiteGait upphengi • Hraði 0,2 – 16 km /klst áfram og 0,2 – 5 km/klst aftur á bak • Halli 0-15% • Gönguflötur: 142 x 56 cm • Stærð: 185 x 75 cm • Hæð á belti: 18 cm • Lengd handfanga: 94 cm, mesta hæð 102 cm (stillanleg) • Fáanlegur aukahlutur: GaitSens hugbúnaður til göngugreiningar GÖNGUBRETTI ENDURHÆFING ÞREKHJÓL Heilbrigðissvið Fastus býður upp á heildarlausnir í endurhæfingar-, hjúkrunar- og hjálpartækjum. Sérhæft starfsfólk leggur metnað sinn í að finna réttu vörurnar fyrir þig. Hollt mataræði stuðlar að bættri heilsu. Ávextir og grænmeti eru stútfull af góðum vítamínum og bætiefnum sem gera kroppnum gott. Það er hressandi að byrja daginn á frískandi þeytingi sem fyllir á tankinn og hleður orkuna. Hér eru tvær gómsætar uppskriftir. Epla- og spínatþeytingur 2 lúkur af spínati ½ sellerístöngull ½ bútur engifer 100 ml appelsínusafi ½ grænt epli Allt sett í blandara og blandað vel saman. Hindberjaþeytingur 1 lítil dós bláberjaskyr 50 g frosin hindber 1 dl trönuberjasafi 0,5 dl eplasafi 6-8 ísmolar Endurnærandi orkuskot Hindber eru holl og góð í þeyting. 20 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RENDURHÆFING Sundæfingar eru góðar til að auka jafnvægi hjá eldra fólki sem öðrum. Mjög mikilvægt er að gera jafnvægisæfingar með öldruðum til að koma í veg fyrir fall. Þessar æfingar er einfalt að gera heima, fái aldraðir heim- sókn frá sjúkraþjálfara. Fall meðal aldraðra er stórt alþjóðlegt vanda- mál. Allt að 30-40 prósent aldraðra detta að minnsta kosti einu sinni á ári með alvarlegum afleiðingum. Jafnvægisæfingar hafa reynst árangursríkar til að vinna gegn þessu. Þessi slys eru mjög kostnað- arsöm fyrir samfélagið. Fall getur haft mikil áhrif á líkamlega heilsu. Algengust eru mjaðma- og fótbrot. Slík slys geta haft varanleg áhrif á gamla fólkið jafnt líkamlega sem andlega. Algengt er að aldraðir búi heima, f lestir einir. Mikilvægt er að koma í veg fyrir slys í heimahúsum. Fall er alvarlegt Það er í eðli okkar að teygja okkur. Allt frá smæstu nagdýrum til stærstu og virðulegustu kattardýra, við teygjum okkur öll og það er góð ástæða fyrir því. Teygjur er tegund af líkamlegri áreynslu þar sem einangraður vöðvi, vöðvahópur eða sin er teygð af ásettu ráði til þess að auka teygj- anleika og hreyfanleika svæðisins sem og að öðlast heilbrigða tónun vöðva. Teygjuæfingar eru einn- ig notaðar í meðferðartilgangi til þess að auka hreyfanleika, milda krampa og bæta virkni í daglegum störfum. Einnig geta reglubundnar teygjur komið í veg fyrir meiðsl og álagsmeiðsl. Algengt er að við fáum óstjórn- lega löngun til þess að teygja okkur og sveigja, þá ósjaldan eftir langa setu og oftar en ekki í slagtogi við góðan og girnilegan geispa. Margir veigra sér við að láta það eftir sér af ótta við að samfélagið dæmi það fyrir að birta óvart smá hold milli buxnastrengs og skyrtu. En slíkur ótti er ekki á rökum reistur því hver hefur orðið verri af því að líta beran ökkla? Teygjuæfingar ættu augljóslega að vera hluti af daglegri rútínu okkar allra og við ættum aldrei að stilla okkur um að gefa eftir í djúsí kálfa- eða axlateygju á skrif- stofunni. Kisur gera það – hestar gera það
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.