Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 41
Hreyfing er númer
eitt, tvö og þrjú hjá
okkur og virkar á okkur
eins og annað lyf.
Samtök lungnasjúklinga voru stofnuð árið 1997 af lungna-sjúklingum og öðrum áhuga-
mönnum um velferð þeirra. Þau
berjast fyrir velferðar- og hags-
munamálum lungnasjúklinga og
sinna margvíslegu starfi þrátt fyrir
að vera ekki stór. Heimsfaraldur-
inn hefur bitnað mikið á þessum
hópi, en sem betur fer hefur
enginn lungnasjúklingur veikst
alvarlega svo vitað sé. Eitt helsta
baráttumálið um þessar mundir er
að auka aðgengi að vatnsleikfimi
með súrefniskúta, en æfingarnar
gera sjúklingunum mikið gagn og
almennt er líkamsrækt jafn brýn
og lyfjagjöf.
Fræðslufundir um lungnasjúk-
dóma og málefni sem tengjast
þeim eru reglulega á vegum
samtakanna og þeir hafa verið vel
sóttir. Samtökin gefa líka út eitt
fréttabréf á ári tengt lungnasjúk-
dómum sem inniheldur viðtöl
við sérfræðinga og sjúklinga, sem
og bæklinginn Lungnapésa, sem
fjallar um lungnasjúkdóma og
hvernig hægt er að lifa með þeim.
Lítil samtök en
fjölbreytt starf
„Samtökin berjast fyrir hagsmun-
um lungnasjúklinga á ýmsan hátt
og beita sér í ýmsum málefnum.
Við erum lítið félag, en gerum
samt ýmislegt,“ segir Gunnhildur
Hlöðversdóttir, varaformaður
samtakanna. „Fyrir faraldurinn
vorum við alltaf með fund einu
sinni í mánuði og skiptum því upp
í fræðslu einn mánuðinn, þar sem
sérfræðingar komu og miðluðu
góðum upplýsingum til okkar
félagsmanna, og svo fengum við
skemmtikraft hinn mánuðinn.
Þetta hefur gefist mjög vel og
fólk er ekki ánægt með að það hafi
ekki verið fundur síðan í mars, en
fyrir suma er þetta fastur punktur
í tilverunni og tækifæri til að
hittast,“ segir Gunnhildur. „Við
erum líka aðili að Öryrkjabanda-
laginu og ýmsum innlendum og
erlendum samtökum sem tengjast
lungnasjúklingum. Við tökum þátt
í starfi þeirra og erum almennt
að reyna að vera sýnilegri og fá
f leiri félagsmenn inn. Við höfum
til dæmis gert það með því að
hafa kynningar á starfseminni á
Reykjalundi einu sinni í mánuði.“
Auðveldara saman
„Sjálf var ég ekki tilbúin að ganga
í samtökin fyrst, mér leist ekkert
á eitthvert sjúklingatal, en ég var
dregin á fund af góðri vinkonu og
eftir það dauðsá ég eftir að hafa
verið fordómafull gagnvart þessu
og sá eftir öllum þessum árum
þar sem ég hafði ekki farið,“ segir
Gunnhildur. „Ég reyni nú eins og
ég get að fá fólk til að koma.
Þetta er erfiður sjúkdómur.
Maður missir allt þrek og þol og
mörg okkar þurfa að vera tengd
súrefni. Þannig að þetta er ekki
auðvelt, en þetta hefst og verður
auðveldara ef fólk kemur saman
og hlustar á aðra sem hafa verið í
sömu sporum.“
Faraldurinn mjög erfiður
„Við höfum sem betur fer ekki
heyrt af því að neinn lungna-
sjúklingur hafi veikst alvarlega
af COVID-19, en við erum vön
að passa okkur gagnvart öllum
sýkingum og förum varlegar en
margir aðrir. Mörg okkar lokuðu
sig inni alveg í tvo til þrjá mánuði í
vor og jafnvel lengur. Allt bendir til
að það sé næst á dagskrá hjá mörg-
um, þó að við vonum auðvitað
ekki,“ segir Gunnhildur. „Það getur
Æfingar jafn brýnar og lyf
Samtök lungnasjúklinga sinna hagsmunum þeirra og berjast nú fyrir því að gera sjúklingum kleift
að koma með súrefniskúta í vatnsleikfimi, en líkamsrækt er þeim jafn nauðsynleg og lyfjagjöf.
Gunnhildur
Hlöðvers-
dóttir, varafor-
maður Samtaka
lungnasjúkl-
inga, segir að
samtökin geri
ýmislegt þó að
þau séu ekki
stór. Samtökin
berjast fyrir
hagsmunum
lungnasjúklinga
á ýmsan hátt og
beita sér í ýms-
um málefnum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
verið erfitt að vera svona mikið
heima hjá sér, sérstaklega ef fólk er
eitt. Þú hefur engan fastan punkt
í tilverunni og engar æfingar og
maður missir mjög mikið mjög
fljótt. Hreyfing er númer eitt, tvö
og þrjú hjá okkur og virkar á okkur
eins og annað lyf.
Ég var til dæmis búin að vera
að byggja mig upp á Reykjalundi í
fjórar vikur rétt áður en faraldur-
inn skall á,“ segir Gunnhildur. „Ég
var orðin hress og tilbúin að taka
vel á heilsunni, en þá hrundi allt.
Þá var allt f ljótt að fara aftur í sama
farið.
Það er hrikalegt að missa bæði
heilsuna og það sem heldur manni
á f loti. Þeir sem geta hafa reynt
að bæta það upp með heima-
æfingum og göngutúrum, en það
er ekki alltaf auðvelt og það þarf
mikinn sjálfsaga til að rífa sig upp
á hverjum morgni og fara í göngu
eða taka æfingu. En það eru samt
margir sem gera þetta. Sumarið
var líka ágætt fyrir okkur. Ég nýtti
það til dæmis til að dútla mér í
golfi, sem gerði mér mjög gott.
En það er misjafnt hvernig þetta
fer í fólk og þeir sem eru einir eru
almennt verst settir og það er
mjög slæmt þegar þau geta ekki
einu sinni fengið heimsóknir. Þá
er hætta á að fólk falli í þunglyndi,
sem má alls ekki gerast,“ segir
Gunnhildur.
Vilja hafa súrefni
í vatnsleikfimi
„Það baráttumál sem er efst á
baugi hjá okkur núna er að auka
aðgengi lungnasjúklinga að vatns-
leikfimi, en víða geta þeir ekki
enn haft súrefniskúta með sér í
vatnsleikfimi, sem er gríðarlega
hollt fyrir lungnasjúklinga,“ segir
Gunnhildur.
Vatnsleiksfimi með súrefni er í
boði á Reykjalundi og í Grensáslaug
og það er dásamlegt að æfa í vatni.
En það er svo mikil aðsókn á þessa
tvo staði að það er mjög erfitt að
komast að. Ég fékk nýlega upplýsing-
ar um að sundlaugin í Sjálfsbjargar-
húsinu í Hátúni leyfi súrefniskúta
og hef heyrt að sundlaugar úti á
landi séu opnari fyrir þessu,“ segir
Gunnhildur. „En við ætlum að reyna
að koma þessu inn víðar á höfuð-
borgarsvæðinu og á fleiri stöðum úti
á landi. Það að hafa súrefnið gefur
frelsi til að gera miklu meira.“
Að lokum vill Gunnhildur hæla
þeirri meðferð sem henni býðst. „Á
HL-stöðinni fer fram endurhæfing
fyrir hjarta- og lungnasjúklinga
sem er yfirleitt framhald af með-
ferð á Reykjalundi eða fólk fær
tilvísun frá lækni. Þangað fer fólk
yfirleitt í tvo daga í viku í þrek- og
styrktaræfingar og þetta er ómiss-
andi þáttur í lífi margra lungna-
sjúklinga,“ segir hún. „Það er
frábær staður og það er einfaldlega
ekki hægt að dásama starfsemina
þar of mikið.
Það sama gildir um Reykja-
lund og ekki má gleyma að nefna
A-3 Göngudeild lungnasjúklinga,
sem hefur reynst okkur lungna-
sjúklingum virkilega vel. Þetta eru
fimm stjörnu staðir.“
Nánari upplýsingar um Samtök
lungnasjúklinga er að finna á
vefnum lungu.is.
KYNNINGARBLAÐ 19 F I M MT U DAG U R 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 ENDURHÆFING