Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 36
Hjálpartæki eru í
margra huga vörur
em enginn vill nota og
senda skilaboð um að
eitthvað ami að. Þessu
viðhorfi þarf að breyta
því fyrir þann sem notar
hjálpartæki skiptir
sköpum að hafa hjálpar-
tæki við hæfi.
Fagmennska og umhyggja eru þættir sem Stoð hefur að leiðarljósi í sinni starfsemi,“
segir Karen Bjarnhéðinsdóttir,
sjúkraþjálfari og deildarstjóri hjá
hjálpar tækjadeild Stoðar.
„Vörur og þjónusta Stoðar snú
ast um heilsu og líkama fólks. Það
skiptir öllu að þjónustan sem fyrir
tækið veitir sé alltaf á faglegum
grunni, unnin af starfsfólki sem
hefur til þess þekk ingu, reynslu og
menntun,“ útskýrir Karen.
„Einnig er mikilvægt að hafa
í huga að margir viðskiptavina
Stoðar eru að ganga í gegnum
erfiðleika og áföll vegna sjúkdóma,
slysa, fötlunar eða skertrar færni.
Við reynum okkar besta til að þeir
einstaklingar upplifi nærgætni og
umhyggju í samskiptum sínum við
starfsfólk Stoðar,“ segir Karen og
heldur áfram:
„Okkur er einnig umhugað um
öryggi og aðbúnað aldraðra sem
þurfa oft að nota hjálpartæki sem
gera þeim kleift að búa lengur
heima, með því að veita aukið
sjálfstæði og öryggi. Sem dæmi má
nefna hjálpartæki á baðherbergi,
sjúkrarúm, göngugrindur og hjóla
stóla.“
Hjálpartæki veita tækifæri
Hjálpartækjadeild Stoðar býður
fjölbreytt úrval hjálpar tækja,
allt frá hækj um og sturtustólum
til f lókinna rafmagnshjóla stóla.
Stoð er með samninga við Sjúkra
tryggingar Íslands sem í mörgum
tilfellum greiða kostnað við kaup á
hjálpartækjum.
„Í hjálpartækjadeild Stoðar
starfar hópur fagfólks, svo sem
sjúkraþjálfarar, iðjuþjálfi, þroska
þjálfi og heilbrigðisverkfræðing
ur, sem hafa mörg hver áralanga
reynslu af ráð gjöf og þjónustu sem
tengist hjálpartækjum,“ upplýsir
Karen.
Hjá Stoð í Hafnarfirði er
sýningarsalur þar sem hægt er að
skoða og prófa flest þau hjálpar
tæki sem fyrirtækið selur og fá
ráð gjöf fagfólks við val og útfærslu.
Innan deildarinnar er einnig
Fagmennska og umhyggja
Stoð er traust og rótgróið hjálpar- og stoðtækjafyrirtæki með faglega þjónustu og fjölbreytt úr-
val af vörum sem bæta lífsgæði og fyrirbyggja eða draga úr heilsufarstengdum vandamálum.
Í hjálpartækjadeild Stoðar starfar fagfólk sem veitir hlýlega og persónulega þjónustu. Frá vinstri: Rannveig, Aron, Nanna, Magnús, Heimir, Einar, Bára, Karen og Kristina. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
verkstæði sem sér um þjónustu og
viðgerðir tækjanna.
„Hjálpartæki eru í margra huga
vörur sem enginn vill þurfa að
nota og senda þau skilaboð að eitt
hvað ami að. Þessu viðhorfi þarf
að breyta því fyrir þann sem notar
hjálpartækið skiptir sköpum að
hafa hjálpartæki við hæfi. Eða eins
og einn af okkar viðskiptavinum
orðaði það: „Ég er ekki bundinn
við hjólastól en ég væri hins vegar
mjög bundinn ef ég hefði ekki
hjólastólinn til að komast um.“
Hjálpartæki veita því í f lestöllum
tilfellum aukið sjálfstæði, aukin
tækifæri og bæta lífsgæði þess sem
nota þau,“ segir Karen.
Stoð er í Trönuhrauni 8 í Hafnar-
firði og á Bíldshöfða 9 í Reykjavík.
Sími 565 2885. Allar nánari upp-
lýsingar á stod.is
Stoð býður fjölbreitt úrval hjálpartækja eins og hjólastóla, göngugrindur og baðhjálpartæki fyrir fullorðna og börn.
14 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RENDURHÆFING