Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 18
Í vor þegar heimsfaraldurinn skall á og atvinnulífið lamaðist að miklu leyti í einu vetfangi heyrðust raddir þess efnis að fresta ætti fyrirhuguðum launahækkunum þar til úr rættist. Verkalýðsforystan, öll sem ein, þvertók fyrir þessar hugmyndir og sló þær umsvifalaust út af borðinu. Hækkanir sem samið hafði verið um í hinum svokallaða Lífskjarasamningi við allt aðrar aðstæður rúmu ári fyrr skyldu taka gildi hvað sem tautaði og raulaði. Nú þegar ljóst er að áhrifa farald- ursins muni gæta mun lengur en von- ast var til í vor koma á ný fram hug- myndir um að fresta fyrirhuguðum launahækkunum. Og enn þvertaka forystumenn stéttarfélaganna fyrir að það verði gert. Í umboði hverra, spyr ég. Vissulega voru samningarnir samþykktir með atkvæðagreiðslu launafólks á sínum tíma, en síðan þá hafa forsendur gerbreyst. Heilu atvinnugreinarnar hafa nánast þurrkast út og tugþúsundir misst vinnuna. Ég var ekki spurður að því í vor hvort ég vildi fresta launahækk- unum til að létta fyrirtækinu sem ég vann hjá róðurinn. Mér fannst út í hött að fá launahækkun um leið og fyrirtækinu blæddi út og var nánast tekjulaust. Nær hefði verið að semja um tímabundna launalækkun til að auka líkurnar á því að fyrirtækið héldi lífi og ég héldi vinnunni. Vissu- lega er sárt að gefa eitthvað eftir sem barist hefur verið fyrir, en menn verða að gera sér grein fyrir því að ef mjólkurkýrin er svelt til dauða fást ekki mikil nyt úr henni. Sem betur eru enn atvinnugreinar og fyrirtæki sem blómstra, en sam- kvæmt almennum mælikvarða er skollin á kreppa sem sér ekki fyrir endann á. Það eru til fyrirtæki sem þola alveg að greiða hærri laun, en stór hluti þeirra er ekki í stakk búinn til þess. Og að hækka laun hjá því opinbera nú er bara að pissa í skóinn sinn við þessar aðstæður þar sem rík- issjóður er rekinn með bullandi tapi til að reyna að halda uppi atvinnu- stigi og grynnka með því kreppuna. Allt á sinn tíma og sinn stað. Bæði að draga línu í sandinn og að teygja sig yfir þá línu með útrétta sáttar- hönd heildinni til góða. Nú ríður á að allir rói í sömu átt. Ég legg til að verkalýðsleiðtogar sem þurfa ekki að hafa miklar áhyggjur af því að launa- greiðendur þeirra leggi upp laupana kanni hug félagsfólks síns til þess hvort það vilji frekar fresta fyrirhug- uðum hækkunum eða standa stíft á þeim og auka þar með líkurnar á því að það verði atvinnulaust. Í hvaða hliðræna veruleika lifir verkalýðsforystan? Adolf Ingi Erlingsson ökuleiðsögu­ maður Heimsbyggðin er að vakna til vitundar um auðlindir og æ f leiri gera sér grein fyrir þjóðhagslegu mikilvægi þeirra. Á Íslandi er umræðan snörp enda landið ríkt að auðlindum. Í aldanna rás hefur sjávarauð- lindin reynst okkur drjúg en framan af sigldu útlenskir kútterar með arð- inn úr landi. Þorskastríð voru háð, þjóðin stóð saman og hafði sigur. Í því ljósi eru ummæli Guðmundar Kærnested, eins þekktasta skipherra þorskastríðanna, eftirtektarverð. Hann kvaðst ekki hafa staðið í þess- ari baráttu hefði hann vitað hvernig staðan yrði nokkrum árum síðar og vísaði þá til úthlutunar kvóta. Í stjórnarskrá Íslands frá 1944 er hvergi minnst á auðlindir. Margar tilraunir ríkisvaldsins til að ráða bót á því hafa farið út um þúfur með einni undantekningu. Eftir hrunið 2008 var ákveðið að færa endurskoðun stjórnarskrárinnar út fyrir veggi alþingis. Fólkið í landinu gekk í verkið með þjóðfundi sem færði þjóðkjörnu stjórnlagaráði sín helstu áhersluatriði. Ráðið vann úr niðurstöðu þjóðfundar nýja stjórn- arskrá sem alþingi bar undir þjóð- aratkvæði 2012 og lögðu 2/3 hlutar kjósenda blessun sína yfir hana. Auðlindaákvæðið byrjar svona: Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameigin- leg og ævarandi eign þjóðarinnar. Þetta orðalag var samþykkt af 17 af hverjum 20 sem þátt tóku í þjóð- aratkvæðagreiðslunni 2012. Eftir yfirferð sérstaks lögfræð- ingateymis á vegum Alþingis var auðlindaákvæðinu hins vegar breytt í eftirfarandi: Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru háðar einkaeignarrétti, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Skýringar lögfræðingateymis- ins við ákvæðið eru á þessa leið: „Með ákvæðinu er ekki hróf lað við þeim eignarréttindum sem þegar kunna að vera fyrir hendi að auðlindum og þeim heimildum eig- enda sem slíkum eignarrétti fylgja.“ Og nokkrum línum neðar: „Með ákvæðinu er ekki hróf lað við þeim nýtingarleyfum eða óbeinu eignarréttindum sem þegar eru fyrir hendi.“ Þessar breytingar kollvarpa til- lögu stjórnlagaráðs og þá um leið forskrift þjóðfundarins sem gekk einmitt út á að geta hróf lað við núgildandi úthlutun aflaheimilda. Breytingar lögfræðingateymis- ins færa þannig umráðaréttinn frá þjóðinni til útvegsmanna. Það er í hróplegri andstöðu við þann skýra vilja sem fram kom á þjóðfundinum 2010, í stjórnlagaráði 2011 og í þjóð- aratkvæðagreiðslunni 2012. Næsta grein mun fjalla um hvers vegna alþingi kýs að vanvirða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl- unnar 2012. Vitundarvakning um mikilvægi auðlinda Lýður Árnason læknir og kvik­ myndagerðar­ maður Ólafur Ólafsson fyrrv. landlæknir Þorvaldur Gylfason hagfræði­ prófessor Lífeyrissjóðunum er gert að taka á sig tapið af nýjasta gengisfalli krónunnar með því að þeim er fyrirmunað að kaupa erlendan gjaldeyri til að ávaxta iðgjöld sjóð- félaga en þurfa þess í stað að kaupa eignir í íslenskum krónum. Fyrir aðeins ári síðan var hægt að kaupa einn dollar á 125 krónur sem í dag kostar 141 krónu. Þessi 12% hækk- un á verði erlends gjaldeyris (evra hækkað um 18%) leiðir svo aftur til hækkunar á verði innfluttrar vöru. Hér eru þau komin „breiðu bökin“ í samfélaginu, þeir sem þiggja lífeyri frá lífeyrissjóðum og almenningur sem þarf að borga nauðsynjavörur hærra verði. Hvort tveggja afleiðing- ar af því að Íslendingum er gert að búa við smæsta gjaldmiðil í heimi, örmynt sem er hvergi annars staðar gjaldgeng. Vantrú íslensku þjóðarinnar á eigin gjaldmiðli virðist ekki eiga sér nein takmörk. Nýjasta dæmið er þegar Costco auglýsti gullstangir til sölu, en þær eru algeng leið til að geyma verðmæti, þá seldust þær upp á augabragði. Sennilega er þetta ein mest afgerandi yfirlýsing sem hægt er að gefa um hversu lítið þjóðinni er í raun gefið um íslensku krónuna og treystir henni illa til að halda verðgildi sínu. Hvers vegna? Þrátt fyrir að þjóðin þekki af eigin raun hvernig verðlag á Íslandi hækkar endalaust og þrátt fyrir að verðlagshækkanirnar megi nær undantekningalaust rekja til hækk- ana á innfluttum vörum, sem verða stöðugt dýrari vegna verðhækkana á erlendum gjaldeyri, þá eru enn þá til aðilar sem telja að heppilegast sé fyrir íslenska þjóð að notast við íslenska krónu. Íslensk króna varð til sem sjálf- stæður gjaldmiðill um 1920. Fram að því var gengi hennar það sama og dönsku krónunnar. Frá þeim tíma Hundrað ára meinsemd Bolli Héðinsson hagfræðingur hafa þessar tvær myntir þróast með gjörólíkum hætti. Til dæmis hefur gengi danskrar krónu gagnvart dollar á þessum hundrað árum haldist innan við tíu krónur dansk- ar, á meðan gengi íslenskrar krónu gagnvart dollar fer yfir tíu þúsund íslenskar krónur, ef horft er fram hjá myntbreytingunni á íslensku krónunni 1980. Íslendingar hafa lært að lifa með hinni stöðugu gengislækkun en fórnirnar hafa verið miklar. Nær ógerlegt er að nefna allar þær ráð- stafanir fyrirtækja og heimila sem teknar voru til þess eins að reyna af veikum mætti að viðhalda raun- virði peninga í stað þess að verja fjármununum til arðbærra fjárfest- inga. Þannig var algengt, þegar vitað var að gengisfellingar vofðu yfir, að almenningur keypti heimilistæki sem vitað var að myndu hækka í verði, jafnvel eingöngu í þeim tilgangi að selja þau aftur á nýja verðinu. Einnig má nefna virðingar- leysið fyrir gjaldmiðlinum sem lýsir sér í að „eydd króna“ hefur alla tíð verið í meiri metum meðal þjóðar- innar en „geymd króna“. Þannig eru Íslendingar miklu meiri eyðsluklær en gengur og gerist þar sem vitað er að geymd króna rýrnar að verðgildi með hverjum deginum sem líður á meðan hún er í vasa þínum. „Svo gott að hafa krónuna“ Meðal þess sem haldið er fram þegar sagt er „það er svo gott að hafa krónuna“ er að hún geti jafnað út sveif lur í hagkerfinu. Reynslan hefur aftur á móti kennt okkur að hún jafnar ekkert út heldur við- heldur hún bara niðursveiflum og bætir svo í þær. Niðursveif lurnar rýra síðan afkomu alls almennings. Stöðugt fallandi króna er og verður fyrst og fremst tæki þeirra sem þurfa að f lytja fjármuni frá almenningi til fyrirtækja sem hafa ýmist komið sér sjálf í bobba eða fyrir tilstuðlan vanhæfra stjórn- málamanna eða vegna utanað- komandi áhrifa sem hægt er að glíma við með öðrum hætti en grípa til gengislækkunar. Gengislækkun er auðvelda leiðin út úr vandanum þar sem hún gerir minnstar kröfur til ráðamanna. Reyndar er þetta ástand fallandi krónu orðið svo inngróið í þjóðarsálina að margir álíta það óbreytanlegt. Hér er um að ræða „er þetta nokkuð fyrir okkur“-heilkennið sem byrgir mönnum sýn og ber fyrst og fremst vott um minnimáttarkennd þeirra sem því eru haldnir. Heilkennið er ótrúlega algengt meðal stjórnmála- manna hvort sem þeir telja sig vera til vinstri eða hægri. ✿ Gengi dollars í íslenskum og dönskum krónum 1914-2020 (áhrif myntbreytingar tekin út) 100.000 10.000 1.000 100 10 1 19 14 19 18 19 22 19 26 19 30 19 34 19 38 19 42 19 46 19 50 19 54 19 58 19 62 19 66 19 70 19 74 19 78 19 82 19 86 19 90 19 94 19 98 20 02 20 06 20 10 20 14 20 18 n Dollar/íslensk n Dollar/dönsk Kórónakreppan hefur reynt á þolrif norrænnar samvinnu með lokun landamæra sem valdið hefur óþægindum, einkum því fólki sem býr og starfar á landa- mærasvæðum. Samstarfið hefði óneitanlega mátt vera betra þegar neyðarástand myndaðist rétt eins og við svipaðar aðstæður víðar um heim. Það er auðvelt að vera vitur eftir á og segja hvernig löndin hefðu átt að vera samhentari í viðbrögðum sínum. En þá má ekki gleyma því að upp voru komnar alveg nýjar aðstæður sem kröfðust skjótra við- bragða án þess að nauðsynleg þekk- ing og reynsla væri alltaf fyrir hendi. Sem fulltrúar jafnaðarmanna í Norðurlandaráði erum við engu að síður sannfærð um að fram- tíðarhorfur í norrænu samstarfi og aldalöngum samskiptum þjóðanna eru bjartar svo framarlega sem við lærum af reynslunni áður en nýjar kreppur steðja að. Margt bendir til þess að sú sé raunin. Við höfum lært mikið af COVID-19 kreppunni, ekki síst að við getum hist rafrænt. Fundir í Norðurlandaráði eru haldnir sam- kvæmt áætlun þótt í netheimum sé og samstarfsráðherrar landanna ræðast við oft í viku. Ekki síst til að leysa vandræði þeirra sem ferðast á milli landa vegna vinnu og finna fyrir stjórnsýsluhindrunum sem upp koma í kreppunni. Við horfum einnig til framtíðar þegar faraldr- inum lýkur, því þá hefur ráðherra- nefndin mótað stefnu og sam- eiginlega framkvæmdaáætlun um viðbrögð við nýjum kreppum sem byggist á fenginni reynslu þjóðanna. Í Norðurlandaráði starfa saman Norðurlöndin fimm auk Álands- eyja, Færeyja og Grænlands. Saman vinnum við að því að gott sé að búa, lifa og starfa á Norðurlöndum. Margt sem okkur þótti sjálfsagt áður en far- aldurinn braust út, til dæmis að geta unnið hvar sem er á Norðurlöndum, er samstarfi í Norðurlandaráði að þakka. Enn sem fyrr er eitt helsta verkefni okkar að auðvelda fólki að ferðast og starfa yfir landamæri, sú vinna liggur ekki niðri. Meðal mála á borði ráðherranefndarinnar má nefna útgáfu rafrænna skilríkja sem gildi alls staðar á Norðurlöndum, gagnkvæma viðurkenningu starfs- réttinda og samræmingu byggingar- reglugerðar á Norðurlöndum svo fátt eitt sé nefnt. Í fyrra samþykktu samstarfsráð- herrarnir nýja framtíðarsýn um að Norðurlöndin verði sjálfbærasta og samþættasta svæði heims fyrir árið 2030. Þetta er markvisst langtíma ferli þar sem öll löndin taka þátt og leggja sitt af mörkum. Við jafnaðar- menn teljum ekki að COVID-19 muni skyggja á þá framtíðarsýn. Þvert á móti að við munum átta okkur betur á því að norrænt samstarf skiptir sköpum fyrir efnahagslegan bata í löndunum og að við getum tekist á við nýjar kreppur hvort sem þær verða af völdum heimsfaraldurs eða loftslagsógnar. En það er mikilvægt að samstarfið dragi lærdóm af krepp- unni og nýti haustið til að finna nýtt verklag til að taka ákvarðanir sem hafa áhrif á hreyfanleika fólks yfir landamærin. Við vitum ekki hvenær kóróna- kreppunni lýkur. Forsendur fólks til að hittast innan Norðurlanda breyt- ast vikulega. Núverandi aðstæður eru þolraun fyrir okkur öll. Við jafnaðar- menn í Norðurlandaráði höldum áfram að beita okkur fyrir afnámi stjórnsýsluhindrana, einnig eftir að faraldri lýkur. Markmið okkar er að Norðurlöndin verði áfram leiðandi á sviði velferðar, loftslagsmála og jafn- aðar í þeirri efnahagslægð sem fylgir í kjölfar COVID-19. Fyrir hönd jafnaðarmanna í Norðurlandaráði. COVID-19 getur eflt norrænt samstarf Reyndar er þetta ástand fall- andi krónu orðið svo inngró- ið í þjóðarsálina að margir álíta það óbreytanlegt. Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingar­ innar 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R18 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.