Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 60
VIÐ VILDUM ENDI-
LEGA AÐ LANDS-
BYGGÐIN ÖLL OG ÞEIR SEM EKKI
EIGA HEIMANGENGT GETI TEKIÐ
ÞÁTT Í HÁTÍÐINNI.
Þetta leggst mjög vel í mig, segir Hrönn Mar-inósdóttir stjórnandi k v i k my nd a hát íða r-innar RIFF sem hefst í sautjánda skipti í dag.
Þrátt fyrir að aðdragandinn hafi
verið óeðlilegur spruttu margar
nýjungar upp í ár.
„Við þurftum auðvitað að fara í
plan B og vinna hátíðina á COVID-
vænan hátt svo sem flestir geti tekið
þátt. Það var auðvitað áskorun að
koma þessu saman, en það er engin
spurning að það hafa líka komið
upp frábærar nýjungar sem okkur
hefði aldrei dottið í hug nema vegna
kófsins.“
Ein helsta nýjungin hjá RIFF í ár
er möguleikinn á að horfa á myndir
í góðum gæðum í gegnum heima-
síðu hátíðarinnar, riff.is „Við vildum
endilega að landsbyggðin öll og þeir
sem ekki eiga heimangengt geti
tekið þátt í hátíðinni. Fólk er mjög
spennt fyrir þessu og að það geti
upplifað eitthvað svona á þessum
erfiðu tímum.“
Hrönn segir að þótt hugmyndin
um að hýsa hátíðina að hluta til á
vefnum hafi sprottið úr kófinu, sé
hún vonandi komin til að vera. „Við
stefnum á að sýna áfram myndir í
gegnum vefinn á komandi hátíðum,
svo hægt verði að ná til fólks utan
höfuðborgarsvæðisins.“
Myndirnar í ár eru margar hverj-
ar splunkunýjar og koma beint frá
stærstu kvikmyndahátíðunum um
heim allan. „Við erum mjög stolt
af þessari dagskrá sem við höfum
unnið með nýjum dagskrárstjóra
hátíðarinnar, Frédéric Boyer. Sýn-
ingar eru takmarkaðar og miða-
verð ódýrt svo það er um að gera að
tryggja sér miða sem fyrst í gegnum
vefinn.“
Bíóbíllinn slær í gegn
Nýjungarnar í ár eru ekki allar staf-
rænar, en til að hita upp fyrir hátíð-
ina var útbúinn svokallaður bíóbíll
sem heimsótti landsbyggðina í vik-
unni sem leið. „Viðtökurnar við Bíó-
bílnum hafa verið vonum framar.“
segir Hrönn. „Við erum strax farin
að fá fyrirspurnir um hvort það sé
hægt að fá hann aftur, og þá sem
fyrst. Það eru svo fá kvikmynda-
hús eftir á landsbyggðinni, svo það
er virkilega gaman að endurvekja
bíóstemninguna þar.“
Þá verður einnig skellt í eitt
stærsta bílabíó sem sést hefur á
landinu. „Þetta á að verða skemmti-
leg upplifun og við vildum endilega
færa þetta upp á næsta stig,“ segir
Hrönn. „Til dæmis verðum við með
sýningu á Hárinu þar sem fólk er
hvatt til að mæta í hippafötum.
Þar verða svo matarvagnar og leik-
arar og dansarar sem munu skapa
stemningu í kringum sýninguna.“
arnartomas@frettabladid.is
RIFF rúllar af stað
Kvikmyndahátíðin RIFF hefst í sautjánda skipti í dag. Sumar
lausnir sem urðu til vegna kófsins eru komnar til að vera.
Bíóbíllinn fékk góðar viðtökur um land allt.
Hrönn mælir með að þeir sem ekki eigi heimangengt taki þátt í hátíðinni gegnum vefinn. MYND/VALGARÐUR GÍSLASON
ANDRÉ OG ÓLÍFUTRÉÐ/
ANDRÉ AND HIS OLIVE
TREE
Afar áhuga-
verð heim-
ildarmynd
leikstjórans
Josiah Ng. Í
myndinni er
sögð saga
Michelin
stjörnu-
kokksins
André
Chiang, þar
sem hann er að undirbúa lokun
veitingastaðarins sem jafn-
framt var á lista yfir 50 bestu
veitingastaði í heimi. Fylgst er
með þessum einstaka kokki; við
kynnumst vinnubrögðum hans
í eldhúsinu, stjórnunarstíl og
fáum innsýn í samband hans við
eiginkonu sína.
HIRÐINGJALAND/
NOMADLAND
Meðal stórmynda í sýningu í
Bíó Paradís er Hirðingjaland/
Nomadland í leikstjórn kín-
verska leikstjórans Chloe Zhao
sem nýverið hlaut aðalverð-
laun kvikmyndahátíðarinnar í
Feneyjum. Hér segir frá konu
á sjötugsaldri sem hefur misst
allt sitt í fjármálakreppunni og
heldur í ferðalag um ameríska
vestrið þar sem hún dregur fram
lífið í sendiferðarbíl sem nú-
tímahirðingi.
PUNTA SACRA
Myndin er í leikstjórn Francescu
Mazzoleni og vann til verðlauna
á svissnesku kvikmyndahátíð-
inni Visions du Réel nú nýlega.
Varpað er ljósi á hóp kvenna
sem býr á jaðri samfélags sem
er við það að hverfa í úthverfi
Rómar er kallast Punta Sacra.
HELMUT NEWTON:
THE BAD AND THE
BEAUTIFUL
Áhugaverð
heimildar-
mynd um einn
helsta tísku-
ljósmyndara
heims og
m.a. rætt við
konurnar sem
sátu fyrir hjá
honum um
samstarfið.
Í leikstjórn
Gero von Boehm. Myndin er
sýnd í Bíó Paradís og á netinu.
NÓTT KONUNGANNA /
NIGHT OF THE KINGS
Myndin kemur beint af kvik-
myndahátíðinni í Feneyjum,
einni elstu og virtustu hátíð í
heimi. Leikstjóri myndarinnar
Philippe Lacote ólst upp í Abidj-
an á Fílabeinsströndinni þar
sem myndin gerist, en sögusvið
hennar er hið alræmda La Maca
fangelsi þar sem fangarnir ráða
ríkjum. Í Nótt konunganna segir
frá ungum manni sem lendir í
fangelsinu og er úthlutað hlut-
verki sögumanns. Samkvæmt
reglum í La Maca mun hann ekki
geta flúið örlög sín en reynir
hvað hann getur með því að láta
söguna endast til morguns.
SPUTNIK
Þessi mynd
er uppáhald
dagskrár-
stjórans Fré-
déric Boyer
og frumraun
leikstjór-
ans Egor
Abramenko
á þessu sviði.
Hrollvekj-
andi spennu-
mynd sem
gerist á
hátindi
kalda stríðsins. Áætlað var að
frumsýna myndina á Tribeca
hátíðinni í apríl síðastliðnum,
en hún er nú komin út í Rúss-
landi og hefur hlotið góða
dóma gagnrýnenda. Hér segir af
leiðangursstjóra sovésks geim-
skips sem kemst einn lífs af eftir
misheppnaðan leiðangur. Í kjöl-
far þess að þekktur rússneskur
sálfræðingur er fenginn til að
meta andlega heilsu leiðangurs-
stjórans, verður ljóst að eitt-
hvað hættulegt gæti hafa fylgt
honum aftur til jarðar. Myndin
verður sýnd í Bílabió RIFF um
helgina.
2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M M T U D A G U R32 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
LÍFIÐ