Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 24.09.2020, Blaðsíða 34
 Markmiðið er að hjálpa einstakling­ um svo þeir verði hæfari til að fást við eigin líðan. Í endurhæfingar- ferlinu sjáum við oft gífurlegar framfarir, það er að sjálfsögðu mjög gefandi og gerir starfið skemmtilegt. Á Háls- og bakdeildinni er veitt greining og sérhæfð meðferð vegna vandamála í stoðkerfi, baki og hálsi. Á deildinni starfa sjúkraþjálfarar, hjúkrunar- fræðingar og aðrir starfsmenn. „Markmiðið er að hjálpa einstakl- ingum svo þeir verði hæfari til að fást við eigin líðan og geti stjórnað eigin verkjum, en láti ekki stjórn- ast af þeim, og verði þannig virkari í sínu daglegu lífi,“ segir Lucia, sem hefur unnið við deildina frá upphafi. „Hingað kemur fólk með verki frá hálsi- og eða baki. Stundum eftir slys eða annað slíkt og hefur ekki fengið bót sinna meina. Flestir hafa þjáðst af langvinnum verkjum sem hafa varað jafnvel í mörg ár. Við fáum til okkar fólk alls staðar að á landinu og jafnvel frá útlöndum,“ segir Hrefna Frímannsdóttir, yfirsjúkraþjálfari. Til að komast í meðferð á Háls- og bakdeildinni þarf að fá tilvísun frá lækni, sem síðan er metin af sérfræðingum deildarinnar. „Þetta er dagdeild með gistingu og við getum tekið við ellefu einstakl- ingum hverju sinni. Hér er fólk á hlutlausum stað með takmörkuðu áreiti og hefur möguleika á að ein- beita sér að sjálfu sér. Um leið fær fólk tækifæri til að hugleiða hverju það þurfi að breyta í sínu lífi. Það er nefnilega hægt að gera eitt og annað til að fá meiri gæði í líf sitt,“ segir Lucia. Einstaklingsmiðuð meðferð Fólk á öllum aldri hefur notið þjónustu Háls- og bakdeildarinn- ar. Meðferðin tekur tvær vikur, að helgarleyfi undanskildu, sem sagt tíu daga. Meðferðin er einstakl- ingsmiðuð, enda mismunandi hvað hentar hverjum og einum. Á deildinni er einnig boðið upp á sér- hæfða meðferð við hryggskekkju sem kallast Schroth Best Practice og er gagnreynd og árangursrík meðferð fyrir börn, unglinga og fullorðna einstaklinga með hrygg- skekkju og/eða kyphosis . „Flestir sem koma til okkar hafa þurft að takast á við verki í nokkur ár. Við kennum fólki liðkandi æfingar og samhliða því að styrkja þá vöðva sem þarf að styrkja til að bæta hreyfistjórn og líkams- beitingu. Fólk lærir fjölbreyttar æfingar þar sem unnið er með eigin líkamsþyngd. Svo eru sumir sem þurfa að fara í sérhæfðari verkjameðferð. Hún er í umsjón Bjarna Valtýssonar læknis, sem er með mikla reynslu af verkja- meðferð í kringum hryggsúluna. Hann starfar í Corpus Medica og við erum í góðu samstarfi. Bjarni er einnig í verkjateymi Landspítal- ans.“ segir Lucia. „Þar fyrir utan erum við með fræðslu um svefn og streitu, verki og líkamann í daglegu lífi. Hér er hópmeðferð, slökun og sund. Bjarni heldur einnig fræðslufundi fyrir sjúklinga sem snúast um verki og verkjameðferð. Það er ýmislegt sem fólk getur gert sjálft til að komast út úr þessu ástandi,“ segir Hrefna. Þær minna á að hreyfing sé eitt af því sem skipti mestu máli þegar kemur að heilsufari. „Rannsóknir sýna að almenn hreyfing, svo sem göngur, sund, útivist, jóga, teygjur og jafnvel veiði, valdi minna álagi og færri líkamlegum einkennum en ef fólk stundar enga hreyfingu. Það er öllum til góðs að hreyfa sig og liðka,“ segja þær Lucia og Hrefna að lokum. Sérhæfð meðferð háls- og bakverkja Háls- og bakdeild St. Fransiskuspítala, HVE, í Stykkishólmi var stofnuð árið 1992 af Jósep Blöndal lækni og Luciu de Korte sjúkraþjálfara. Þar hafa fjölmargir fengið bót meina sinna. Á Háls- og bakdeildinni starfar samhentur hópur að því að bæta heilsufar fólks og lina verki. MYND/AÐSEND Rætt var við Ídu Brögu Ómarsdóttur yfirsjúkra-þjálfara Grensásdeildar. Á Grensás koma einstaklingar á öllum aldri sem eiga það sam- eiginlegt að þurfa á þverfaglegri endurhæfingu að halda. „Hér hjá okkur í sjúkraþjálfun hefur skapast í gegnum tíðina mikil sérhæfing í meðferð á sjúklingum með áverka eða sjúkdóma í mið- taugakerfinu. Það geta verið til dæmis heilablóðfall og áverkar á mænu. Einnig sinnum við þeim sem fá fjöláverka í slysum og þeim sem missa útlim og eru að læra að ganga á gervifæti.“ „Öll endurhæfingin á Grensási er unnin í þverfaglegum teymum þar sem margar fagstéttir koma að meðferð.“ Ída segir starfsemina afar þýð- ingarmikla, en þeir einstaklingar sem þurfa á henni að halda standa oftar en ekki frammi fyrir því að þurfa að aðlaga sig að miklum breytingum á lífi sínu í kjölfar alvarlegra veikinda eða slysa. Hér fer fram mikil þjálfun á færni þar sem fólk þarf að aðlagast alveg breyttum aðstæðum í sínu lífi og mikilvægt að huga að öllum þáttum, líkamlegum, sálrænum og félagslegum. Gefandi að sjá árangur Oft er talað um hálfgerð krafta- verk í endurhæfingu, en Ída segir að það sé ekki rétta orðið til að lýsa þeim árangri sem sumir nái, enda feli endurhæfing í sér mikla og krefjandi vinnu, auk þess sem það er mismunandi á milli ein- staklinga hversu miklum bata er hægt að ná. „Mér finnst alltaf svolítið erfitt að tala um kraftaverk af því að sumir sem koma hingað ná sér að mjög miklu leyti á meðan ein- hver annar er með mikinn skaða og leggur mikið á sig, en býr við mjög breyttar aðstæður og þarf að aðlaga sig þeim,“ útskýrir hún. „Endurhæfingin er vinna allan sólarhringinn fyrir þá einstakl- inga sem dvelja hjá okkur. Þegar vel gengur reynist starfið afar gefandi. „Í endurhæfingarferlinu sjáum við oft gífurlegar framfarir, það er að sjálfsögðu mjög gefandi og gerir starfið skemmtilegt. Aukin vitund um heilaskaða Blaðamaður spyr Ídu hvort þau verði í sínu starfi vör við auknar af leiðingar streitu og kuln- unar sem mikið hefur verið rætt undanfarin ár. „Þetta er ekki sá hópur sem við erum að sinna á Grensási, en þeim er sinnt á sjúkraþjálfunarstofum og öðrum stofnunum. Aftur á móti hefur orðið aukning á að ungir ein- staklingar leiti til okkar eftir af leiðingar höfuðhöggs. Það hefur gerst í kjölfar aukinnar umræðu í þjóðfélaginu um af leiðingar höfuðhögga, íþróttafélögin eru að gefa þessu meiri gaum og fylgjast meira með,“ segir Ída. „Það er alltaf að verða til meiri og meiri þekking hjá fagfólki um af leiðingar höfuðhöggs og meðferðin orðin árangursríkari. Umræðan er orðin meiri í fjöl- miðlum, sem gerir það að verkum að fólk leitar frekar til fagfólks. Fólk hefur kannski ekki alveg vitað hvert það ætti að leita til að fá stuðning áður.“ Stækkun Grensásdeildar Þá segir hún mikla eftirvæntingu ríkja eftir nýju og endurbættu húsnæði, en sú vinna er þegar hafin. „Við erum í gömlu hús- næði sem var ekki byggt á sínum tíma fyrir endurhæfingu, en núna síðastliðna mánuði er hafin vinna Stór hlekkur í heilbrigðisþjónustu Á endurhæfingardeild Grensás Landspítala fer fram þverfaglegt starf með einstaklingum sem flestir hafa orðið fyrir alvarlegum veikindum eða slysum. Deildin hóf starfsemi sína árið 1973. Ída Braga segir mikla eftir- væntingu ríkja eftir nýju og endurbættu húsnæði. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR við stækkun á Grensási. Við lítum á þetta sem stórt framfaraskref í endurhæfingu. Áhersla verður á stórbætta aðstöðu þar sem allir fá einstaklingsherbergi. Svo verður gjörbreytt aðstaða fyrir alla þjálf- un, stækkuð og bætt og hönnuð með þarfir endurhæfingar í huga,“ segir Ída glöð í bragði. „Við lítum björtum augum til framtíðarinnar og hlökkum til að viðbyggingin hérna á Grensási verði að veruleika. Það er búið að bíða eftir þessu í svo of boðslega mörg ár.“ 12 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . S E P T E M B E R 2 0 2 0 F I M MT U DAG U RENDURHÆFING
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.