Fréttablaðið - 09.10.2020, Síða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —2 1 7 . T Ö L U B L A Ð 2 0 . Á R G A N G U R F Ö S T U D A G U R 9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0
Nýr e-up!
Sparaðu pening og umhverfið
HEKLA · Laugavegur 170 · Sími 590 5000 · www.hekla.is/volkswagensalur
*m.v. bílalán í reiknivél Arion banka, 08.10.2020, 20% útborgun 678.000 kr. eða í formi uppítökubíls og láns til 84 mánaða
Frá 39.353 kr. á mánuði*
260 km.
drægni!
VIÐSKIPTI Auðvelda þarf f leiri
atvinnugreinum en ferðaþjónust-
unni að leggjast í híði þegar hert er
á sóttvarnaaðgerðum stjórnvalda,
að mati Konráðs Guðjónssonar,
aðstoðarframkvæmdastjóra Við-
skiptaráðs.
„Það þarf að endurhugsa aðgerðir
stjórnvalda til fyrirtækja í vanda
vegna faraldursins. Staðan í dag er
allt önnur en fyrir einungis tveimur
vikum,“ segir Konráð. Líkt og greint
var frá í blaðinu í gær útilokar fyrir-
komulag lokunarstyrkja bætur til
fjölmargra fyrirtækja og er óljóst
hvort þjónustuiðnaður á Íslandi
komi til með að þola aðra umferð
takmarkana.
„Þegar við nálguðumst þetta í
vor þá virtust f lestir búast við því
að þetta yrði vont högg í skamman
tíma. Núna horfir þetta öðruvísi við
því að þetta gæti verið viðvarandi
og sveif lukennt ástand í marga
mánuði. Það kallar á aðra nálgun,“
segir Konráð.
„Það er vonandi enginn að tala
um að opna ríkissjóð upp á gátt, það
þarf að fara vel með almannafé. Það
eru færri skot eftir í byssunni núna
en í vor. Það sem við þurfum nú er
að skerpa á áherslum og aðgerðum.“
Konráð telur að stjórnvöld þurfi
að þróa áfram úrræðin sem hafa
verið í boði, þar á meðal hlutabóta-
leiðina, brúarlánin og lokunar-
styrki.
„Þegar hlutirnir verða betri þá
þurfa að vera forsendur fyrir því
að hægt sé að opna á ný staði sem
þurfti að loka. Þeir þurfa að geta
haldið ráðningarsambandi við
starfsfólk til dæmis, þannig að
þegar við komumst út úr þessu
séum við með fyrirtæki sem séu
ekki hálf lömuð og geti ekki veitt
þjónustuna sem við þurfum frá
þeim, sama í hvaða geirum það er,“
segir Konráð.
„Það hefur verið talað um að
ferðaþjónustan þurfi að leggjast
í híði, það þarf kannski að horfa
sömu augum á fleiri geira.“
Hann telur að grípa megi tæki-
færið nú þegar ríkisfjármálin eru
í deiglunni og vinna við fjárlög í
fullum gangi til að líta til þess þar
sem líklegt sé að meiri hömlur verði
á næsta ári en margir héldu fyrir
stuttu.
„Ein stærsta aðgerðin hefur verið
hlutabótaleiðin, það er búið að
skala hana niður og búið að draga
lærdóm af henni. Augljósast er að
fara í einhvers konar útvíkkun á
því úrræði fyrir fyrirtæki sem lenda
hvað verst í þessari bylgju.“
Fram kom í gær að dæmi væru um
að minni fyrirtæki hefðu þurft að
verja stórum hluta lokunarstyrks-
ins í lögmannskostnað til að harka
út styrkina frá skattinum.
„Ef rétt er þá er úrræðið fallið um
sjálft sig. Það þurfa að vera skýr
skilyrði fyrir styrkjum, ef kerfið
er orðið of f lókið þá erum við ekki
að nýta peninga skattgreiðenda
vel. Þetta þarf að vera einfalt og
sveigjanlegt til að styrkirnir renni
til sjálfra fyrirtækjanna og starfs-
fólks þeirra.“ – ab
Fleiri atvinnugreinar þurfa í híði
Fleiri atvinnugreinar en ferðaþjónustan þurfa að leggjast í híði þegar hert er á sóttvarnareglum að mati aðstoðarframkvæmdastjóra
Viðskiptaráðs. Staðan sé önnur en fyrir stuttu og telur hann að stjórnvöld þurfi að aðlaga úrræðin sem standi fyrirtækjum til boða.
Það eru færri skot
eftir í byssunni
núna en í vor. Það sem við
þurfum nú er að skerpa á
áherslum og
aðgerðum.
Konráð
Guðjónsson,
aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Viðskiptaráðs
Íslendingar unnu glæsilegan 2-1 sigur á Rúmenum í undanúrslitum umspils fyrir EM 2020. Gylfi Þór Sigurðsson skoraði bæði mörk Íslands í fyrri hálf leik en Rúmenar minnkuðu muninn
í síðari hálf leik úr umdeildri vítaspyrnu. Sigurinn þýðir að Íslendingar mæta Ungverjum í hreinum úrslitaleik um sæti á EM þann 12. nóvember næstkomandi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK