Fréttablaðið - 09.10.2020, Síða 38
Það er mikilvægt að gleyma ekki gleðinni, náungakær-leikanum og samkenndinni
í óvissunni og óttanum sem ein-
kennt hefur síðastliðna mánuði.
Hér eru nokkrar hugmyndir að
gjöfum sem eru bæði hagnýtar og
hugulsamar á COVID-tímum.
Heilsubætandi gjafir
Það hefur aldrei verið mikilvægara
að huga að heilsunni og styrkja
ónæmiskerfið eins og um þessar
mundir. Heilsubætandi gjafir af
öllu tagi eru því tilvaldar í pakkann
þessi jólin. Eitt helsta heilsufars-
vandamál samtímans er streita en
langvarandi streita veikir ónæmis-
kerfið og eykur líkurnar á þróun
ýmissa sjúkdóma. Það væri þannig
hægt að gefa gjafir sem stuðla að
slökun á borð við baðsalt, andlits-
maska, naglasnyrtisett, djúp-
næringu í hárið, skrúbba og fleiri
snyrtivörur. Enn betra væri falleg
gjafakarfa með nokkrum litlum
hlutum sem nýtast í heimadekri.
Eitt helsta meðalið gegn streitu
er hreyfing og þar af leiðandi upp-
lagt að gefa vörur sem gerir fólki
kleift að stunda aukna hreyfingu.
Til dæmis er hægt að gefa góða
leikfimidýnu, æfingateygjur, ketil-
bjöllu, lóð eða annað sem gerir
fólki kleift að stunda líkamsrækt
heima, íþróttaskó eða útifatnað
sem nýtist í útiveru. Einnig væri
hægt að gefa vandaða fjölnota and-
litsgrímu, jafnvel með sóttvarna-
setti eða fallegt úr.
Fleiri hlutir sem eru hjálplegir
við slökun og vellíðan heima fyrir
eru til dæmis góður koddi, kósý-
teppi, náttsloppur, hlýir sokkar eða
inniskór. Auk þess væri hægt að
gefa gott te, vítamín, bætiefni, fal-
lega drykkjarflösku sem auðveldar
meiri vatnsdrykkju eða heyrnartól
sem nýtast vel við hreyfingu og
slökun.
Heimilisgjafir
Nú þegar fólk er hvatt til að halda
sig heima eftir fremsta megni er
líka þrælsniðugt að gefa gjafir sem
koma sér vel í heimaverunni. Það
getur verið eitthvað í eldhúsið sem
nýtist við matargerð eins og upp-
skriftabók, teketill, kaffivél (með
góðu kaffi að sjálfsögðu), vönduð
panna, vínflaska, matjurtir, kon-
fektkassi nú eða bara klassísk
matarkarfa með vel völdum sæl-
keravörum.
Aðrir hlutir sem stuðla að nota-
legri heimveru eru til að mynda
hátalari, planta í fallegum potti, vel
lyktandi ilmkerti eða lampi sem
gefa heimilinu hlýlegan og nota-
legan blæ. Þá er vitaskuld alltaf
sígilt að gefa bók sem hægt er að
gleyma sér í, púsl eða spil sem fjöl-
skyldan getur dundað sér við.
Táknrænar gjafir
Þá hefur jafnframt aldrei verið
jafnáríðandi að láta gott af sér
leiða eins og núna þegar mann-
kynið stendur frammi fyrir þessu
krefjandi og margþætta vandamáli
sem COVID er. Það er sælla að gefa
en þiggja og því upplagt í ár að slá
tvær flugur í einu flugi og gefa gjöf
sem raunveruleg þörf er á. Jólin eru
jú tíminn þar sem við hugum, eða
ættum í það minnsta að huga, að
náunganum og þá einkum okkar
minnstu systrum og bræðrum.
Því miður, líkt og spáð hafði
verið frá upphafi faraldursins,
hefur heimilisofbeldi aukist
gríðarlega samhliða vaxandi
atvinnuleysi og fátækt á heims-
vísu. Eymdin og vonleysið sem
fylgir fátækt og óstöðugleika bitnar
verst á konum og börnum sem eru
víða fullkomlega berskjölduð fyrir
ofbeldi.
Mikið úrval er af táknrænum
gjöfum hjá samtökum á borð
við Rauða krossinn, Unicef og
UN Women. UN Women bjóða
til dæmis upp á þrjár táknrænar
jólagjafir í ár sem miða að því að
hjálpa konum sem farið hafa illa út
úr faraldrinum. Gjafirnar eru sótt-
varnapakki fyrir konu í Bangladesh,
önnur er sæmdarsett fyrir konur
í Beirút og sú þriðja er styrkur til
sóttvarnaathvarfs fyrir þolendur
heimilisofbeldis í Eþíópíu. Sótt-
varnaathvarfið var stofnað sér-
staklega til að mæta vaxandi fjölda
kvenna sem hafa þurft að flýja
ofbeldi í kjölfar COVID.
Ef að óvissa ríkir um hvað skuli
gefa, ef viðtakandinn „á allt“ eða
bara ef vilji er fyrir hendi að hjálpa
bágstöddum og láta gott af sér leiða
þá eru gjafir af þessu tagi alltaf við-
eigandi og hægt er að vera fullviss
um að gjöfin hitti í mark.
Hagnýtar og hugulsamar gjafir
Nú líður senn að jólum og eflaust ýmsir sem spyrja sig hvað sé viðeigandi að gefa á þessum ein-
kennilegu COVID-tímum. Hér eru hugmyndir að gjöfum í takt við nýjan og breytilegan veruleika.
Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir
hjordiserna@frettabladid.is
Heimilis-
ofbeldi og
fátækt hefur
aukist marg-
falt um heim
allan í kjölfar
COVID.
Heilsubætandi
gjafir af öllu tagi eru
því tilvaldar í pakkann
þessi jólin.
EINSTÖK TILBOÐ
og ótal möguleikar í boði
• Gisting með morgunverði
• Gisting með morgunverði og kvöldverði
• Gisting með morgunverði, kvöldverði og spa
• Veitingar, kvöldverður eða brunch
• Reykjavík Spa meðferðir
• Sérsniðin gjafabréf
17 HÓTEL UM ALLT LAND
Komdu starfsfólki þínu skemmtilega á óvart
Gjafabréfin gilda á Fosshótelum,
Grand Hótel Reykjavík og Hótel Reykjavík Centrum
GJAFABRÉF ÍSLANDSHÓTELA
20 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR