Fréttablaðið - 09.10.2020, Síða 40
Skemmtilegar hefðir eru eitt af því besta við jólin og það er um að gera að skapa
skemmtilegar jólahefðir innan
vinnustaða til að kæta mannskap-
inn og hrista hann saman. Það
veitir nú heldur ekkert af öllu sem
hressir fólk við á þessum síðustu
og verstu tímum.
Farið yfir árið
Það er hægt að setja saman spurn-
ingaleiki með spurningum um það
sem gerðist í sögu fyrirtækisins á
árinu og láta fólk keppast um að
sýna þekkingu sína. Það þarf ekki
að vera mikið í húfi og það er hægt
að gefa fólki glaðning fyrir að vera
með í stað þess að láta fólk keppa
um verðlaun.
Það er líka hægt að setja saman
svipmyndir og klippur frá starfi
ársins í skemmtilegt myndband og
njóta þess saman.
Uppákomur og ferðir
Það er erfitt að skipuleggja ferðir
eða samkomur núna vegna covid,
en á litlum vinnustöðum þurfa
sóttvarnarreglur kannski ekki
að vera mikil fyrirstaða og það er
líka alltaf hægt að hittast á netinu.
Á netinu er hægt að spjalla, spila
tölvuleiki saman, borða saman
eða jafnvel fá sér í glas og ef það er
hægt að hittast í eigin persónu er
hægt að fara í alls kyns borðspil og
leiki, á kaffihús eða veitingahús
eða njóta þess að horfa saman á
jólamynd.
Hver á ljótustu peysuna?
Ljótupeysukeppni er klassísk
skemmtun fyrir jólin, enda bjóða
jólapeysur almennt upp á meiri
fjölbreytni í ljótleika en fyrirfinnst
annars staðar. Þetta getur verið
leið til að breyta til, létta stemmn-
inguna og fá fólk til að taka upp á
alls kyns frumlegum lausnum til
að vinna.
Skreytið saman
Það getur verið gaman að skreyta
vinnustaðinn saman með fallegu
jólaskrauti. Það er tilbreyting
og getur búið til skemmtilega
jólastemmningu. Það er til
dæmis hægt að hvetja fólk til að
koma með heimagert jólaskraut
eða halda keppni í hvaða ein-
staklingur eða deild skreytir best.
Vinningurinn getur verið fallegt
jólaskraut fyrir heimilið, eða jóla-
skrautskeppni næsta árs.
Gjöf til góðgerðamála
Það er hægt að safna ýmsu saman
og gefa til góðgerðamála eða bara
einfaldlega leggja saman í púkk
til að styrkja gott málefni. Það eru
alltaf einhverjir sem þurfa hjálp
við að eiga gleðileg jól, ekki síst á
covid-tímum.
Leynivinaleikir
Allir setja nafnið sitt í skál og svo
dregur hver og einn nafn og þarf
þá að kaupa jólagjöf handa við-
komandi. Það getur síðan verið
gaman að giska á hver gaf hverjum
hvað. Það er samt gott að koma sér
saman um verðmæti gjafanna, svo
einn kaupi ekki iPhone á meðan
aðrir koma með tekönnu eða hekl-
aðan ofnhanska.
Jólaveislur eru alltaf fjör
Jólaveislur eru auðvitað klassískar,
en þær verða trúlega með öðru
sniði en vanalega þetta árið. En
þær standa alltaf fyrir sínu og ef
fólk getur komið saman á öruggan
hátt geta þær verið mikilvægur
þáttur í að byggja upp góðan
starfsanda með því að leyfa fólki
að eyða tíma saman utan vinnu-
staðarins.
Jólahefðir fyrir vinnustaði
Skemmtilegar hefðir geta verið mikilvægar til að skapa góðan vinnuanda og styrkja liðsheildina
á vinnustað. Hér eru nokkrar hugmyndir um leiðir til að njóta aðdraganda jólanna saman.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@frettabladid.is
Ljótupeysu-
keppni er klass-
ísk skemmtun
fyrir jólin. Hún
getur verið
skemmtileg leið
til að breyta
til og létta
stemmninguna
á vinnustaðn-
um. MYND/GETTY
Það er hægt að setja
saman spurninga-
leiki með spurningum
um það sem gerðist í
sögu fyrirtækisins á
árinu.
22 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR
Gefðu hlýju í jólagjöf
Notaleg upplifun með heitum náttúrulaugum, gufuböðum og sauna að nnskri
fyrirmynd er það sem Fontana býður uppá. Laugarvatn Fontana er staðsett í
miðri náttúruparadís við Laugarvatn með útsýni y r vatnið og fjöllin allt í kring.
Við setjum saman gjafabréf sem hentar þínu starfsfólki best.
Öll gjafabréf gilda fyrir tvo fullorðna og frítt er fyrir 12 ára og yngri.
www.fontana.is
sales@fontana.is