Fréttablaðið - 09.10.2020, Page 43

Fréttablaðið - 09.10.2020, Page 43
Þetta bitnar sér- staklega á fólki sem starfar í verslunum. kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a Hátíð í bæ KYNNINGARBLAÐ 25 F Ö S T U DAG U R 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 FYRIRTÆKJAGJAFIR Hvað leynist í jólapakkanum í ár? Fjölmörg fyrirtæki bregða á það ráð ár hvert að gleðja starfsfólk sitt með fallegum og skemmtilegum jólagjöfum. Þá er vinsælt að gefa eitthvað matarkyns eða fallegar íslenskar hönnunar- vörur. En hvað gáfu fyrirtækin fyrir jólin 2019? Bankarnir gerðu vel við sitt fólk. Starfsmenn Arion banka hlutu fjörutíu þúsund króna gjafabréf og teppi frá íslensku barnafataversl- uninni As we grow. Landsbankinn gaf bankastarfsmönnum 45 þús- und króna gjafabréf frá Icelandair. Það er vonandi að það hafi nýst einhverjum vel. Íslandsbanki gaf svo starfsfólki sínu þrjátíu þúsund króna gjafabréf í Smáralind. Stjórnendur Advania brugðu á það ráð að gefa starfsfólki tíu þúsund króna inneign í sænsku netverslunina getymygift.se eða val um að gefa sömu upphæð til valdra góðgerðamála. Torg gaf starfsmönnum sínum svo gjafaöskju með Omnom-súkku- laði og gjafakort í Samkaup upp á tuttugu þúsund krónur. Morgun- blaðið sendi hins vegar jólakveðju á starfsmenn þar sem greint var frá því að ekki væri gefin jólagjöf í ár vegna rekstrarörðugleika. Hvað gáfu fyrirtækin í fyrra? Það getur bitnað á andlegri heilsu að þurfa að hlusta á sömu jólalögin aftur og aftur og aftur. MYND/GETTY Það getur verið gaman að spila jólatónlist á vinnustaðnum til að skapa hátíðlega stemmningu og flestir eru hrifnir af jólalögum og tengja þau við góðar minningar. En það þarf samt að stilla jólagleðinni í hóf, því það getur það verið skaðlegt fyrir geð- heilsuna að heyra sömu lögin aftur og aftur. Sálfræðingurinn Linda Blair sagði frá þessu fyrir um þremur árum síðan og það er við hæfi að rifja þetta upp núna þegar það styttist í 1. nóvember, en þá verður löglegt að spila jólalög. Þetta bitnar sérstaklega á fólki sem starfar í verslunum þar sem sama jólatónlistin hljómar frá morgni til kvölds. Blair segir að þetta fólk þurfi að hætta að hlusta á tónlistina til að geta einbeitt sér en að það verði til þess að þau eyði allri orkunni sinni í að heyra ekki það sem er í gangi. Á móti kemur að skemmtileg jólatónlist og góð lykt fær við- skiptavini til að vilja eyða meiri tíma í verslunum, sem eykur sölu. En það má ekki bitna á heilsu starfsmanna. Þeir sem starfa á öðruvísi vinnustöðum þurfa líka að hafa þetta hugfast svo þeir angri ekki samstarfsfélaga sína of mikið. Stillið jólatónlist í hóf Ljúffengur hummus er tilvalinn í matarkörfu grænmetisætunnar jafnt sem kjötætunnar. MYND/GETTY Því getur fylgt ákveðinn haus-verkur að velja gjöf við flestra hæfi. Á það sennilega sjaldan betur við en þegar ákveðið er að gefa matarkörfur og taka þarf tillit til þeirra sem neyta ekki dýraaf- urða. Það þarf þó ekki að örvænta, bæði er margt í boði og þá eru líka ýmsar vörur án dýraafurða sem henta fleirum en einungis grænmetisætum. Meðal þess sem hægt er að gefa eru hnetur, ólífur, hummus, pestó, krydd, seitan- vörur, þurrkaðir ávextir, vandaðar olíur og margar tegundir af víni og bjór. Þá er til mikið úrval af vegan súkkulaði og öðrum sætindum ásamt vegan osti af ýmsu tagi sem hægt er að para saman við vel valið kex og sultu. Sama hvað verður fyrir valinu þá mun viðleitnin vera afskaplega kærkomin. Vegan matarkarfa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.