Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 09.10.2020, Blaðsíða 44
Kíktu á ms.is og skoðaðu úrvalið - einfalt og fljótlegt. S É RVA LD IR Í S LE N S KIR OS TA R O G MEÐ L Æ TI Veldu milli sex mismunandi ostakarfa og bættu við annarri matvöru, víni eða g jafavöru. Frábær g jöf til viðskiptavina eða starfsmanna. Fjöldi ferðaþjónustufyrirtækja býður upp á köfunarferðir, meðal annars í Silfru á Þingvöllum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Jóhanna María Einarsdóttir johannamaria@frettabladid.is Mörgum fyrirtækjum tekst oft vel upp og starfsmenn opna fallegan jólapakka á aðfangadagskvöld og hugsa hlýtt til vinnuveitanda síns. En það er erfitt og jafnvel ómögulegt að hitta í mark hver einustu jól. Sérstaklega þegar fjöldi starfsmanna hleypur á hundruðum. Nú státa mörg fyrirtæki sig af því að fara eftir strangri umhverf- isstefnu og þá getur verið erfitt að réttlæta það að kaupa upp lager af gjafavöru eða nytjahlut sem mögu- lega 50% starfsfólksins er ánægt með á meðan afgangurinn reynir að losa sig við gjöfina með því að gefa hana áfram, eða geyma heima hjá sér þar til hún fer í Sorpu í næstu flutningum. Kolefnissporið sem hlýst af þessari einu fallegu hugsun, það er við það að búa hlutinn til og flytja hann á milli landshluta og jafnvel á milli landa, er gríðarstórt. Þegar svo ber undir að erfitt reynist að finna hentuga gjöf, þá er um að gera að leita á óhefð- bundnari slóðir. Því það er vel hægt að gera vel við starfsfólk sitt án kolefnisspors. Sífellt f leiri fyrir- tæki eru farin að sjá virði í því að gefa upplifanir í jólagjöf. Þá er að auki fjöldinn allur til af rafrænum gjöfum sem gaman er að gefa og það besta er að það þarf ekki að kosta neina mengun. Svo eru líka til skemmtilegir áskriftakostir á ýmsum matarpökkum, kaffi, sælkeravörum og fleiru sem senda heim að kantsteini einu sinni í viku, mánuði eða oftar. Hvað með að gefa áskrift af hljóðbókum? Til eru fjöldi streym- isveita sem bjóða upp á gott úrval af íslenskum og erlendum hljóð- bókum. Þar má nefna skáldsögur, heimspekibókmenntir, mann- kynssögu, sjálfshjálparbækur og svo mætti lengi fram telja. Þá er hægt að gefa starfsfólki ferðir með innlendum ferða- þjónustufyrirtækjum og styrkja í leiðinni íslenska ferðaþjónustu. Hversu margir í fyrirtækinu þínu geta til dæmis sagt að þeir hafi komið upp á jökul eða róið kajak við ströndina? Ávextir og grænmeti er eitthvað sem við ættum öll að borða meira af, enda stútfullt af vítamínum og steinefnum. Fjöldi fyrirtækja býður upp á hentugar áskrifta- leiðir þar sem maður fær vöruna alla leið heim að tröppum. Þess þá heldur er stórsniðugt að gefa starfsfólki kaffiáskrift þar sem nýtt og spennandi kaffi er annað hvort sent heim að dyrum eða það er sótt á næsta kaffihús. Einnig er fjöldi námskeiða í boði sem eru kennd um helgar eða á kvöldin. Námskeið eins og pastagerð, leirmótun, sushigerð, silkiprent og margt f leira. Það er líka sígilt að gefa gjafa- bréf í jólagjafir, hvort sem það er í leikhús, á tónleika, í óperuna, á veitingastað eða hvað sem er. Þá hafa mörg fyrirtæki brugðið á það ráð að gefa gjafabréf í verslun, oft eitthvað sem tengist starf- semi fyrirtækisins. Það hefur til að mynda verið vinsælt innan ferðaþjónustubransans að gefa gjafabréf sem gildir í einhverjum af þeim fjölda útivistaverslana hér á landi. Gjafabréf í þau fjölmörgu bað- hús sem finna má um land allt er líka sígild og falleg gjöf. Því hvað er notalegra en að eyða deginum í heitum böðum? Svo ef það á að gera sérlega vel við starfsmenn er hægt að bæta við dekri eins og fót- snyrtingu, axlanuddi eða andlits- meðferð. Áskrift að grænmeti er hugulsöm gjöf og hvetur fólk til þess að borða hollari mat. Námskeið í pastagerð er stór- skemmtileg gjöf fyrir starfsmenn sem hafa gaman af matargerð og eru ekki á ketó. MYND/GETTY. Gjafabréf í þau fjölmörgu baðhús sem finna má um land allt er líka sígild og falleg gjöf. 26 KYNNINGARBLAÐ 9 . O K TÓ B E R 2 0 2 0 F Ö S T U DAG U RFYRIRTÆKJAGJAFIR Öðruvísi jólagjafir Flestum reynist erfitt að velja jólagjafir. Hvað þá þegar fyrirtæki ætla að velja eina jólagjöf handa starfsliðinu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.