Fréttablaðið - 09.10.2020, Qupperneq 52
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Elsku besti eiginmaður minn, faðir,
sonur, bróðir, tengdasonur og
hjartkær vinur,
Halldór Erlendsson
lést af slysförum
sunnudaginn 4. október.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Linda Björk Jóhannsdóttir
Sigurrós Björg Halldórsdóttir Rix
Erlendur Halldórsson
Þorgerður Sveinbjörnsdóttir
Ástkær móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Signý Egilsdóttir
Bláskógum 13, Hveragerði,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási,
Hveragerði, þriðjudaginn 6. október.
Elsa Backman Rúnar Skarphéðinsson
Helgi Backman
Marteinn Friðriksson Íris Blandon
Katrín Friðriksdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Sýningin En hilsen over havet – Kveðja yfir hafið – var tilraun til að takast á við þær nýju aðstæður sem komu upp í kjölfar heimsfaraldursins,“ segir
Heiðar Kári Rannversson, sýningar-
stjóri Nordatlantens Brygge og lýsir
tildrögunum nánar.
„Þegar COVID-19 faraldurinn
stóð sem hæst hér í Kaupmanna-
höfn síðasta vor og enginn gat
komist milli landa með góðu móti,
fékk ég þá hugmynd að biðja lista-
menn frá Íslandi, Færeyjum og
Grænlandi að senda mér listræna
kveðju í formi hefðbundins póst-
korts. Hugmyndin fékk góðar við-
tökur, kortin hafa borist hingað frá
því í byrjun júní og eru orðin 75.
Þau eru sett upp jafnóðum þannig
að sýningin hefur vaxið og breyst en
nú fer henni að ljúka.“ Heiðar Kári
nefnir þekkta íslenska sendendur,
þeirra á meðal Hrein Friðfinnsson,
Eggert Pétursson, Rögnu Róberts-
dóttur, Helga Þorgils og Brynhildi
Þorgeirsdóttur. „Eitt kort er frá
Kristjáni Guðmundssyni, dagsett á
Hjalteyri 8. 6. 2020,“ bætir hann við.
Sýningin Kveðja yfir hafið hefur
verið ágætlega sótt, einkum síðsum-
ars, og meðal gesta verið nokkrir
Íslendingar, að sögn sýningar-
Listrænar kveðjur berast yfir hafið
Póstkort vestnorrænna listamanna hafa stöðugt bæst við á sýninguna En hilsen over havet á Nordatlantens Brygge í Kaupmanna-
höfn. Hún hefur staðið frá því snemmsumars en lýkur í þessum mánuði. Heiðar Kári Rannversson sýningarstjóri átti hugmyndina.
Heiðar Kári segir lífið smátt og smátt að komast í eðlilegt
horf í Kaupmannahöfn. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Eitt af spaugilegum póstkortum á sýningunni.
Kortin eru klemmd upp á snúru jafnóðum og þau koma og sýningarstjórinn segir sýninguna hafa vakið athygli.
Sýningarsalurinn var eitt sinn pakkhús fyrir hvallýsi og sútuð selskinn.
stjórans. „Ferðafólkið vantar samt í
borgina, rétt eins og á Íslandi,“ segir
hann. „Umferð um bryggjuna var
minni en undanfarin ár en frá því í
ágúst hefur hún verið að glæðast.“
Heiðar Kári hefur sloppið við
veiruna sem betur fer, ásamt fjöl-
skyldunni. „Við náðum blessunar-
lega að komast til Íslands í sumarfrí
í júlí, á milli bylgna.“ Hann segir lífið
smátt og smátt að komast í eðlilegt
horf í Kaupmannahöfn, enn séu
þó nokkrar takmarkanir í gildi og
búið að framlengja f lestar til loka
október. „Stofnanir á menningar-
sviðinu hafa fengið að halda opnu
síðan í júní sem er mjög gott. Hins
vegar er Nordatlantens Brygge háð
samstarfi þvers og kruss yfir Norð-
ur-Atlantshafið og við þurftum, því
miður, að fresta ýmsum viðburðum
og færa til aðra.“
En hvað er framundan? „Nú erum
við að undirbúa sýningu á sam-
tímalist frá Færeyjum. Svo munum
við sýna stórt verk eftir Hrafnhildi
Arnardóttur, Shoplifter, á næsta
ári, þeirri sýningu var frestað um
ár vegna COVID-19. Það er fyrsta
stóra einkasýning Hrafnhildar í
Danmörku og mun ef laust vekja
mikla athygli.“
gun@frettabladid.is
Hugmyndin fékk
góðar móttökur,
kortin hafa borist hingað frá
því í byrjun júní og eru
orðin 75. Þau eru sett upp
jafnóðum þannig að sýn-
ingin hefur vaxið og breyst.
9 . O K T Ó B E R 2 0 2 0 F Ö S T U D A G U R16 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT