Samtökin '78 - Samtakafréttir - 15.08.2000, Blaðsíða 27

Samtökin '78 - Samtakafréttir - 15.08.2000, Blaðsíða 27
Alnæmi er veruleiki HIV -veiran, sem veldur alnæmi, fer ekki í manngreinarálit, hún berst milli fólks á öllum aldri, milli gagnkynhneigöra, samkyn- hneigára, tvikynhneigðra, og enginn er óhultur fyrir henni nema hann stundi öruggt kynlíf. Og HlV-jákvæða er ekki hægt að þekkja á útlitinu. HIV -veiran ræðst á ónæmiskerfi líkamans svo að eðlilegar varnir hans hrynja. Engin varanleg lækning er ennþá til við alnæmi en á síðustu árum hafa komið fram lyf sem gera veiruna óskaðlega ónæmiskerfinu og auka lífslíkur manna til muna. Slík lyfjagjöf reynist þó flestum erfið og henni fylgja ýmsar aukaverkanir. HIV -veiruna er hægt að forðast með því að nota smokk. Með því að nota hann undantekningarlaust við samfarir er auðvelt að forðast smit af völdum HlV-veirunnar. Þú átt ekki að sjá ástæðu til að spyrja þá sem þú hefur mök við hvort þeir séu HlV-jákvæðir því að svörin veifa enga tryggingu gegn smiti. Abyrgt kynlíf felst í því að haga sér eins og allir kunni að vera HlV-jákvæðir og nota smokkinn undantekningarlaust. Settu þér einfaldar og öruggar reglur i kynlifi sem þú víkur aldrei frá. Mundu að nofkun áfengis og vímuefna veikir dómgreindina og býður hæftunni heim. Oruggur ástarleikur er skemmtilegur leikur. SAMTAKAFRÉTTIR 27

x

Samtökin '78 - Samtakafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtökin '78 - Samtakafréttir
https://timarit.is/publication/1492

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.