Samtökin '78 - Samtakafréttir - 15.08.2000, Blaðsíða 23
Undanfarna mánuSi hefur sam-
starfsnefnd á vegum fimm
félagasamtaka lesbía og
homma unnib að undirbúningi
hátíðahalda á þessu ári undir heitinu
Hinsegin dagar 2000 í Reykjavík. Þessi
félög eru Samtökin '78; FSS, Félag
samkynhneig&ra og tvíkynhneigðra stúd-
enta; Stonewall, félag samkynhneigðra
nemenda i framhaldsskólum; MSC-lsland
og Jákvæði hópurinn. Hlutverk nefndar-
innar er að vinna með hugmyndir og fá
fólk til starfa. Umfang hátíðarinnar ræðst
af þátttöku og áhuga okkar homma og
lesbía á að minna á tilvist okkar og
hvers við erum megnug.
Opnunarhátíð Hinsegin daga var
haldin 25. maí í Islensku óperunni. Eftir
litríkan og fjörugan inngang steig ást-
ralski leikarinn Stephen Sheehan á svið
og flutti einleikinn Go by Night eftir
Stephen House við mikla hrifningu leik-
húsgesta. Sagan handan af hnettinum
um piltinn Johnny Boy hitti áhorfendur
svo sannarlega i hjartastað, vel samið
og glæsilega fram flutt. Sömu helgi flutti
svo Felix Bergsson einleik sinn Hinn
fullkomni jafningi undir merkjum Hinsegin
daga, en hann gerði garðinn frægan í
London í lok apríl þar sem hann lék verk
sitt á ensku við afbragðs undirtektir.
Anægjulegt var að sjá þá glæsilegu
kynningu sem Felix og verk hans hlaut í
Gay Times að því tilefni. Til hamingju,
Felixl
Hinn 1. júlí var síðan haldið málþing
um mannréttindi í Norræna húsinu undir
yfirskriftinni Samkynhneigðir á alda-
mótum. Málþingið var haldið í samvinnu
við Mannréttindaskrifstofu Islands. Heiðurs-
gestur þess var Kim Friele, brautryðjandi
í mannréttindamálum samkynhneigðra á
Norðurlöndum sem flutti áhrifamikið
erindi, en auk hennar töluð þau Olafur
Þ. Harðarson, Rannveig Traustadóttir,
Jóhanna K. Eyjólfsdóttir og Haukur F.
Hannesson. Fundarstjóri málþingsins var
Ragnar Aðalsteinsson lögmaður. Vonandi
verður framhald á jafn vandaðri umræðu
um líf samkynhneigðra og tilveru í næstu
framtíð.
Hápunktur Hinsegin daga 2000 er
laugardaginn 12. ágúst. Þá leggjum við
undir okkur Ingólfstorg með útiskemmtun
og nú er unnið að því að skipuleggja
fjölmenna og litríka skrúðgöngu um mið-
bæinn. Þar þurfa margar hendur að
koma að verki svo hátíðin verði sem best
úr garði gerð. Hinsegin dagar þurfa á
öllum vinnufúsum höndum og hugum að
halda því hátíðahöld okkar verða aldrei
stærri og merkilegri en sá kraftur sem við
leggjum sjálf í þau. Hittumst undir regn-
boganum í sumar!
SAMTAKAFRÉTTIR 23