Fréttablaðið - 24.10.2020, Síða 18
Tryggðu þér skemmtilegri vetur á stod2.is
KÖRFUBOLTI Íslenska körfubolta-
samfélagið á þrjá fulltrúa í spænsku
efstu deildinni í körfubolta karla
þessa stundina. Martin Her-
mannsson gekk til liðs við Valencia
í sumar og Haukur Helgi Briem Páls-
son samdi við MoraBanc Andorra
fyrir nýhafið keppnistímabil. Þá er
Tryggvi Snær Hlinason á sinni ann-
arri leiktíð með Zaragoza.
Fréttablaðið fékk Craig Pedersen,
þjálfara íslenska karlalandsliðsins,
til þess að fara yfir stöðu mála hjá
þremenningunum sem leika í hinni
gríðarlega sterku deild.
„Hvað Martin varðar þá er mjög
gaman að sjá hann fara í lið þar
sem hann getur þróað feril sinn
enn frekar. Martin, Haukur Helgi
og Tryggvi Snær eiga það sameigin-
legt að þeir eru viljugir til að læra
af þjálfurum sínum, taka leiðbein-
ingum hratt og vel og eru fljótir að
læra nýja hluti,“ segir Craig um læri-
sveina sína hjá landsliðinu.
„Hauk Helga virðist líða mjög vel
í hlutverki sínu hjá nýja liðinu sínu.
Hann er í stóru hlutverki í sóknar-
leiknum, þar sem fjölhæfni hans á
þeim vettvangi fær að skína. Bæði
er hann að skjóta meira en hann
hefur gert hjá þeim liðum sem hann
hefur verið hjá upp á síðkastið,
sækja meira á körfuna og taka þátt
í pick og rolli. Það er mjög mikilvægt
fyrir okkur í landsliðinu að hann sé
að sýna þessa hlið á sér með félags-
liðinu, þar sem við þurfum á þessu
að halda í komandi verkefni. Martin
verður ekki með í næsta landsliðs-
glugga, þar sem hann verður að
spila með Valencia í Euro League á
sama tíma. Haukur Helgi þarf því að
vera í því hlutverki að sækja meira
á körfuna en þegar Martin er með,“
segir þjálfarinn um spilamennsku
Hauks Helga síðustu vikurnar.
„Hvað Tryggva Snæ varðar þá
er auðvitað ótrúlegt hversu langt
hann er kominn, miðað við í hversu
stuttan tíma hann hefur spilað með
liðum í hæsta gæðaflokki. Það sem
er sérstaklega skemmtilegt er að
sjá hversu mikið traust hann fær
frá þjálfaranum. Hann er að spila
rúmlega 20 mínútur í hverjum leik
og er inni á vellinum þegar mest
er undir. Til dæmis í leiknum sem
hann spilaði í vikunni, þá var hann
hluti af leikkerfinu sem sett var
upp í síðustu sókn leiksins í jöfnum
leik,“ segir hann um Bárðdælinginn.
„Tryggvi er stöðugt að bæta sig
bæði í sóknar- og varnarleik. Hann
les leikinn betur og betur á báðum
endum vallarins og er að verja eða
breyta skotum trekk í trekk. Þegar
kemur að sóknarleiknum þá er
hann að koma sér í góðar stöður,
klára færin betur og leikskilning-
urinn hvað leikkerfi varðar, batnar
með hverjum leiknum sem hann
spilar. Fyrir mér er Tryggvi Snær
á frábærum stað þessa stundina,
að spila í svona sterkri deild undir
stjórn þjálfara sem ber mikið traust
til hans,“ segir Craig, um stöðu mála
hjá Tryggva Snæ.
Tryggvi er á frábærum stað
Þrír af burðarstólpum karlalandsliðsins í körfubolta eru í lykilhlutverkum í sterkustu deild Evrópu á
Spáni. Haukur Helgi og Martin eru á fyrsta tímabili sínu á Spáni, en Tryggvi er kominn í stærra hlutverk.
Haukur Helgi og Tryggvi ásamt Jóni Arnóri og Hlyni fyrir leik gegn Portúgal á síðasta ári. FréTTAblAðið/Ernir
Martin Her-
mannsson
hefur haldið
sama takti
með stórliði
Valencia, eftir
vistaskipti frá
Alba berlin
síðasta sumar.
Mynd/Ernir
Tryggvi er á frá-
bærum stað að spila
í svona sterkri deild undir
þjálfara sem treystir honum.
Craig Pedersen, þjálfari landsliðsins
MannvIRKI Sveitarstjórn Skaga-
fjarðar samþykkti á fundi sínum í
vikunni að styrkja knattspyrnudeild
Ungmennafélagsins Tindastóls um
1.700.000 kr. vegna framúrskarandi
árangurs meistaraf lokks kvenna
í knattspyrnu, en liðið tryggði sér
sæti í efstu deild í fyrsta skipti í sögu
félagsins, á dögunum. Þetta kemur
fram í frétt á vefsíðunni feykir.is.
Þar segir enn fremur að sveitar-
stjórnin hafi bókað á fundi sínum
að farið verði í uppbyggingu á
stúku og viðeigandi aðstöðu við
KS-völlinn, heimavöll Tindastóls.
Sá völlur verði gerður þannig úr garði
að hann uppfylli skilyrði mann-
virkjanefndar KSÍ um leiki í efstu
deild, en gervigras er á vellinum.
Í frétt Feykis segir svo að heimildir
hermi að Fisk Seafood hafi tilkynnt
að fyrirtækið muni koma að fyrr-
greindu verkefni með myndarlegum
hætti. – hó
Framkvæmdir
við KS-völl
GOLF Mótanefnd Golfsambands
Íslands hefur ákveðið að Íslands-
mótið í golfi árið 2021 fari fram á
Jaðarsvelli á Akureyri, dagana 5.-8.
ágúst. Um leið var það tilkynnt að
ári seinna fari mótið fram í Vest-
mannaeyjum.
Íslandsmótið fór fram síðast á
Akureyri árið 2016, en á því móti
setti Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,
kylfingur úr GR, nýtt mótsmet í
kvennaflokki, þegar hún lék á sam-
tals 11 höggum undir pari vallarins.
Ólafía Þórunn fagnaði þar sínum
þriðja Íslandsmeistaratitli. Í karla-
flokki setti Birgir Leifur Haf þórs-
son, GKG, einnig vallarmet, en hann
fagnaði þar sínum sjöunda Íslands-
meistaratitli með eftirminnilegum
lokahring.
Frá því að keppt var fyrst á
Íslandsmótinu í golfi í karlaflokki
árið 1942 hefur Íslandsmótið farið
fram alls 17 sinnum á Akureyri.
Þetta verður í fimmta sinn sem
keppt verður í Vestmannaeyjum,
síðan völlurinn varð átján holu völl-
ur. Þar áður var Golfklúbbur Vest-
mannaeyja búinn að halda fimm
Íslandsmót á níu holu velli, fyrst árið
1959 þar sem Eyjamaðurinn Sveinn
Ársælsson sigraði. – hó
Íslandsmótið
fer norður og til
Vestmannaeyja
„Það að geta leitað til leikmanns
með þá eiginleika sem Tryggvi Snær
hefur, á ögurstundu í leikjum, er
gulls ígildi fyrir íslenska landsliðið.
Það að hann hafi bætt því í vopna-
búr sitt, að geta búið til eigin skot
og verið lokahnykkur á leikkerfum,
er mjög gott og gaman að sjá. Ég er
mjög spenntur að vinna áfram með
honum og taka þátt í þroskaferli
hans sem leikmanns,“ segir Kanada-
maðurinn um leikmann sinn.
Næsti verkefni Craig og leik-
manna hans hjá íslenska lands-
liðinu er for keppni HM 2023 sem
leikin verður með óvenjulegu sniði í
þetta skiptið vegna kórónaveirunn-
ar. Íslenska liðið heldur til Bratislava
í Slóvakíu í lok nóvember þar sem
liðið mætir Lúx em borg, Kósóvó og
Slóvakíu, dag ana 23. til 29. nóv em-
ber. hjorvaro@frettabladid.is
2 4 . O K T ó B e R 2 0 2 0 L a U G a R D a G U R18 S p O R T ∙ F R É T T a B L a ð I ð
sporT