Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS
Sjónvarpið læst inni í skáp
til að virkja hugmyndaflugið
Anní Ólafsdóttir kvikmyndaleikstjóri ætlar sér stóra hluti. Eftir misheppnaða tilraun
til að skrá sig í danska herinn fór hún í Kvikmyndaskólann og er í dag með fjölda
verkefna í vinnslu svo sem kvikmynd um heimsfaraldurinn sem heimtar „afsakið hlé“.
A nní er alin upp við að hugmyndaflugið sé eins og vöðvi sem þurfi að
þjálfa og virkja. Hún er hug
rökk að eðlisfari og óhrædd
við að elta drauma sína. „Ég
ólst upp hér og þar, hef verið á
flakki síðan ég var pínkupons.
Bjó í Þýskalandi í nokkur ár
sem krakki, og svo á Sauðár
króki í nokkur ár líka og hef
búið í flestum sveitarfélögum
höfuðborgarsvæðisins. Ég hef
verið í Reykjavík núna í nokk
ur ár og farin að skjóta rótum.
Sem er góð tilfinning,“ segir
Anní, sem hefur menntað sig
í ýmiss konar listum. Hún er
annar leikstjóri Þriðja pólsins,
sem frumsýnd var síðsumars
og þykir hafa einstaka sýn
bæði sem leikstjóri og klipp
ari.
Vitlaus spóla
„Ég ætlaði alltaf í myndlistar
nám, gera skúlptúra, mála
myndir, og mun kannski ein
hvern tíma gera það. En þetta
var mjög tilviljanakennt, ég er
ekki mikill kvikmyndanörd,
eins og margir samnemendur
mínir voru í kvikmyndanám
inu, og í bransanum, en ég
ólst upp við Disneymyndir og
fantasíu. Þegar ég var lítil var
sjónvarpið læst inni í skáp, og
mikil áhersla lögð á að nota
hugmyndaflugið. Þannig að
kvikmyndaformið fyrir mér
var aldrei eitthvað sem ég
spáði mikið í, ég heillaðist af
hrollvekjum, útsendingu list
dansskauta á Ólympíuleikun
um og gullöld tónlistarmynd
banda. Ég var alltaf að skrifa
smásögur og teikna, kannski
svolítið föst í eigin heimi, þar
sem runnu saman tónlist, til
finningar, Disney, hrollvekjur,
dans, fegurð og drama. Þegar
ég var níu ára kom stjúppabbi
minn heim frá útlöndum og
hafði keypt, að hann hélt,
Spice Girls myndina, þegar ég
var svo búin að setja spóluna í
tækið og ýta á „play” byrjaði
eitthvað allt annað. Þetta var
mynd um gerð myndband
anna. Ég horfði á þessa spólu
aftur og aftur, ætli þar hafi
ekki litlu fræi verið sáð.“
Danski herinn
Anní er hálffæreysk og er því
Anní er aðeins
þrítug að aldri
en er nú þegar
á leið með
að verða ein
kröftugasta
kvikmynda-
gerðarkona
landsins.
MYND/SAGA SIG
6. NÓVEMBER 2020 DV
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
með tvöfaldan ríkisborgara
rétt, bæði í Danmörku og á
Íslandi. „Ég ætlaði að sækja
um í danska hernum en eftir
að hafa kynnt mér langt og
strangt inntökuferli með tak
mörkuðum möguleika á að
komast inn, tók óþolinmæðin
mig annað. Fljótlega eftir það
heyrði ég vin minn tala um
Kvikmyndaskólann, en hann
hafði verið að búa til tónlistar
myndband. Ég er mjög hvat
vís, greip þessa hugmynd og
skráði mig á handrita og leik
stjórnarbraut við Kvikmynda
skóla Íslands.
Anní var þar komin á sína
réttu hillu – langt frá danska
hernum. „Kvikmyndagerð er
svo víðtækt og opið listform,
en það hefur kannski örlítið
gleymst og grafist undir öll
um þessum gegnumsósuðu
Hollywood tæknibrelluhasar
myndum. Kvikmynd er lifandi
tvívíddarverk í ramma, með
endalausum möguleikum.
Hreyfimynd tilfinninga, sem
eins og önnur list eignast sitt
eigið líf í hugum þeirra sem
horfa.“
„Útlenskt“ ekki best
Anní segist vera bjartsýn
á íslenska kvikmyndagerð,
sem hafi sterka rödd. „Núna
í sumar var Ísland auðvitað
eina landið sem mátti vera í
tökum, sökum COVID19. Við
höfum nýtt okkur það mjög
vel, held ég. Kvikmyndasaga
Íslands er mjög stutt miðað
við nágrannalönd, og eins og
í flestöllu öðru, miðum við
okkur alltaf við Bandaríkin
eða Dani. Við setjum oft ein
hvern gæðastimpil á allt sem
okkur þykir virka „útlenskt“.
Íslenski stíllinn hefur samt
fengið mikla athygli og við
masterað einhvers konar sauð
kindamelankólíu.“
Hún nefnir að Ísland sé að
ala af sér hæfileikaríka leik
stjóra í hrönnum og það sé
bjart fram undan. „Vonandi
koma líka fleiri kvenleik
stjórar með verk, hvort sem
það eru karlar sem upplifa
sig sem kvenmann eða karlar
sem voru kvenmenn, eða bara
konur sem hafa alltaf verið
konur. Kvikmyndaheimurinn
hefur verið svo karllægur, og
margar konur sem leikstýra
eins og karlmenn. Mig langar
í kvenleikann. „Fleiri myndir
um konur, af konum!“ – Meiri
fjölbreytileika, takk.
Við eigum svo mikið af
flottum, eldri leikkonum, og
djúpan suðupott af ósögðum
sögum.“
Dofin og dekruð
Anní segist sakna þess að upp
lifunin að horfa á kvikmynd
sé viðburður í huga fólks, sem
notið sé í hóp. „Í byrjun þessa
árs sagði einhver við mig að
hann héldi að bíómyndin væri
að deyja út, mér þótti það
frekar langsótt, en núna er
það að gerast, öll bíó eru lok
uð, kvikmyndahúsin eru tóm,
ekkert popp að poppast. Það
er rosalegt að missa út bíóin,
og á sama tíma hefur eftir
spurnin eftir nýju efni sjald
an verið meiri, í þáttaformi
frekar en gamla kvikmynda
forminu. Á breyttum tímum
er mikilvægt að hugsa út frá
breyttum aðstæðum, fólk vill
horfa heima, horfa á netinu.
Kvikmyndahátíðir eru ekki
til þetta ár, því hvað er kvik
myndahátíð án áhorfenda?
Ég fór líka að hugsa hvað bíó
in voru einu sinni, eins og að
fara í leikhús, maður puntaði
sig. En núna ferðu í bíó þunn
ur í hettupeysu, þegar þú vilt
ekki rekast á neinn. Og þetta
helst í hendur við offramboð
á hasar og fjöldaframleiðslu,
við erum orðin dofin og dekr
uð. Kvikmyndin er orðin svo
sjálfsögð. Það þarf kannski
að nýta þessa bíópásu og
endurhugsa bíómenninguna.
Kannski eftir COVID verða
áhrifin þau að fólk þráir að
komast í bíó, punta sig, upp
lifa með öðrum í stað þess að
hanga inni hjá sér og horfa,
eitt í felum. Enginn veit hvað
átt hefur, fyrr en misst hefur.“
Að því sögðu er nýjasta
verkefnið hjá þessum fram
sækna leikstjóra stuttmyndin
Apausalypse. „Hún fjallar
um heimspásuna. Hvað það
þýðir þegar heimurinn stans
ar (og pásutakkinn kemur í
ljós), þetta er hybridheim
ildarmynd, sem er eins konar
bókmenntaverk þar sem
heimspekilegar og óritskoð
aðar hugsanir, spurningar
og vangaveltur fá að flæða,
jafnt í orðum og dansi, í miðri
fyrstu bylgju heimsfarald
ursins. Ég er mjög spennt
að klára hana, Ásta Fanney
Sigurðardóttir og Ryuichi
Sakamoto gera tónlistina,“
segir Anní, sem er með fjölda
járna í eldinum og er svo
sannarlega ekki á „pásu.“
„Svo er að hefjast vinna við
að gera mynd byggða á bók
eftir Andra Snæ, Tíminn og
vatnið. Svo er ég með ýmsar
hugmyndir á blaði, og líka
opin fyrir einhverju spenn
andi sem gæti vonandi bankað
upp á.“ n