Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 27
FÓKUS 27DV 6. NÓVEMBER 2020 LINDT SÚKKULAÐIDAGATAL Svissneski súkkulaðirisinn Lindt er þekktur fyrir hágæða súkku- laði sem kætir svo sannarlega í dimmum desember. Á heimkaup. is er að finna fjöldann allan af dagatölum fyrir alla fjölskylduna. Lindt súkkulaðidagatalið er þar á meðal auk dagatala með vegan súkkulaði, Kit Kat, Thorntons, Maltesers, Galaxy, Quality Street og margt fleira. Verð: 1.399 kr. BEFITICELAND ÍÞRÓTTAFATNAÐUR Fyrir þá sem elska íþróttafatnað og æfingar gæti þetta reynst hin mesta snilld. Dagatalið inniheldur 10 veglegar gjafir sem opnast 15.-24. desember. Meðal innihalds er fatnaður og fylgihlutir, en kaupendur velja stærðir fatnaðar við kaup á dagatalinu. Dagatalið fæst á befiticeland.is og er virði innihaldsins metið á 70.000 samkvæmt síðunni. Verð: 39.990 kr. ESSIE NAGLALÖKK Þeir sem elska naglalökk verða ekki sviknir af þessu krútti. Í dagatalinu er að finna bæði lítil og stór nagla- lökk í bland við annað fínerí. Essie er eitt mest selda naglalakk á landinu og þykir sérstaklega endingargott. Dagatalið fæst bæði á heimkaup.is og á beautybox.is. Verð: 12.990 kr. BODY SHOP HÚÐ- OG SNYRTIVÖRUR Body Shop dagatalið er eitt það allra besta að mati margra, en það kemur í þremur stærðum í ár og og er stútfullt af gleði. Body Shop vörurnar eru litríkar og skemmtilegar og hafa fest sig í sessi meðal margra. Krem, baðbombur, maskar, varasalvar, hárvörur og annað gúmmelaði í bland við snyrtivörur, eru meðal þess sem dagatalið inniheldur. Verð: 14.490, 19.490 og 29.990 kr. BAREMINERALS SNYRTIVÖRUR bareMinerals dagatalið inniheldur bæði húð- og snyrtivörur svo sem varaliti, gloss, kinnaliti, augn- skugga og púður, í bland við krem og maska. bareMinerals-vörurnar eru vegan og án aukefna. Daga- talið er fáanlegt á beautybox.is og í Hagkaup. Verð: 23.900 kr. ENGLISH TEA SHOP LÍFRÆNT TE-JÓLADAGATAL Dagatalið er með 25 gluggum þar sem má finna mismunandi te bragðteg- undir. Líklega eitt hollasta dagatalið á markaðnum. Jafnvel Bretadrottning sjálf myndi breika af gleði ef hún fengi þetta krútt að gjöf. Dagatalið kemur í tveimur útgáfum og mun fást í Fjarðarkaupum. Verð: 700-800 kr. LAKKRIDS LAKKRÍSDAGATAL Lakkrísdagatalið frá konungi sparilakkríssins, Johani Bülow, er tilvalin leið til að telja niður dagana til jóla og gera smá vel við sig í leiðinni. Ef þú elskar lakkrís munt þú öskra af gleði til jóla! Dagatalið fæst í Epal. Ath. lakkrís er ekki góður fyrir þá sem eru með háan blóðþrýsting svo betra er að gefa ekki háþrýstingsfólki þennan gleðikassa. Verð 5.500 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.