Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 25
Kári í gegnum árin
Kári Stefánsson hefur verið áberandi í baráttuni við COVID-19
á Íslandi. En Kári engan veginn ókunnugur því að vekja athygli.
Það hefur
líklega
sjaldnast verið
lognmolla
í kringum
Kára enda
þolir hann illa
að láta sér
leiðast.
MYND/TIMARIT.IS
TÍMAVÉLIN
Þ að er nánast eins og Guð sé kominn heim; dálítið sposkur á svip,
örlítið framandlegur með vel
snyrt skegg og ber sig heims-
mannslega,“ svo skrifaði Ill-
ugi Jökulsson í Dag í febrúar
árið 1998. „Ég á við Kára
Stefansson sem sneri heim
frá Bandaríkjunum fyrir ör-
fáum misserum og virðist
á ótrúlega skömmum tíma
hafa byggt upp risafyrirtæki
á sviði erfðagreiningar; risa-
fyrirtæki á okkar mælikvarða
hér á Íslandi og jafnvel þótt
víðar væri leitað í veröldinni
að fyrirtækjum á því sviði þar
sem hann er að hasla sér völl.“
Kári Stefánsson var snúinn
aftur heim til Íslands eftir
tveggja áratuga fjarveru.
Hann var ekki þjóðþekktur
maður þegar hann hélt utan,
en á örskömmum tíma eftir
endurkomuna kannaðist nán-
ast hver einasti Íslendingur
við nafn hans og hafa þeir
gert það allar götur síðan.
Kári Stefánsson fæddist
í Reykjavík 6. apríl 1949.
Foreldrar hans voru Stefán
Jónsson, fréttamaður, al-
þingismaður og rithöfundur
og Sólveig Halldórsdóttir, og
Kári var næstyngstur fjög-
urra bræðra í fimm systkina
hópi.
Kári keisari
Hann ólst upp í Norðurmýri
og Vesturbæ, gekk í Haga-
skóla og síðar í Menntaskól-
ann í Reykjavík.
Kári var strax þá farinn
að láta á sér kveða. Þó ekki á
sviði erfðafræðinnar heldur í
leiklist. Hann tók þátt í upp-
setningu Hagaskóla á leik-
ritinu Gullna hliðið, þar sem
Kári lék sjálfan Jón, en leik-
ritið snýst um baráttu konu
Jóns fyrir því að koma sál
hans inn í himnaríki.
Í framhaldsskóla hafði
áhuginn á leiklistinni ekki
dvínað og tók Kári þátt í
uppsetningu leikfélags MR,
Herranótt, á leikritinu Bubbi
kóngur, sem ungur Davíð
Oddsson fór með aðalhlut-
verkið í og fékk þaðan viður-
nefnið Dabbi Kóngur. Kári
lék þar Alexander Rússlands-
keisara og sagði um leik hans
í Skólablaðinu: „Kári Stef-
ánsson lék afkáralegan, en
ofurhlýlegan Rússakeisara
og svipti Bubba sprota veldis-
ins á fyndinn hátt, góðlátur
gamlingi andspænis fulltrúa
grimmdarinnar.“
Persóna Kára svipti per-
sónu Bubba valdi sínu í leik-
ritinu en sögum fer af því að
innan veggja Menntaskólans
hafi hið gagnstæða átt sér
stað. Kári tók það á sig að
tryggja Davíð kjör í stöðu
inspector scholae, formanns
nemendafélagsins. Segir
sagan að Kári hafi leitað að
FÓKUS 25
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
álitlegum vinstrimanni til að
bjóða sig fram í embættið og
hafi Davíð orðið fyrir valinu.
Davíð hafi spilað hlutverk
vinstri frambjóðandans, en
komið út úr skápnum sem
hægri maður um leið og hann
hafði náð kjöri.
Kári á undanþágu
Næst lá leið Kára í læknis-
fræðina við Háskóla Íslands.
Framan af hafði Kári haft
hug á því að verða skáld, en
gerðist þó fyrst sinn eigin
harðasti gagnrýnandi og
ákvað að helga öll sín skáld-
verk skúffunni.
Fer sögum af því að hann
hafi fyrir algjöra tilviljun og
hvatvísi skráð sig í læknis-
fræði með félaga sínum, en
fljótlega varð ljóst að Kári
hafði fundið sína hillu í lífinu.
Kári fór ekki hljóðlátlega
í gegnum læknisfræðina í
Háskólanum. Hann var lítið
hrifinn af kennsluaðferð-
unum og ekkert hrifinn af
hinum og þessum reglum sem
nemendum bar að fara eftir.
Hann var gjarn á að sækja
um undanþágur frá reglum,
samnemendum sínum til lít-
illar hrifningar. Sem betur
fer átti Kári sér hauk í horni.
Össur Skarphéðinsson skrif-
aði svo í DV 1998: „Kári hefur
alltaf storkað heiminum. Á
einum af fyrstu fundunum eft-
ir að ég kom í Stúdentaráð Há-
skólans var eitt umræðuefna á
dagskrá bréf, sem prófessor í
læknadeild hafði skrifað rekt-
or, þar sem krafist var að Kári
yrði rekinn. Jóhann Axelsson
var deildarforseti og varði
fóstra sinn. Seinna sagði hann
að þetta hefði verið þreytandi
tími. Hann hefði ekki mátt
bregða sér úr landi án þess
að læknadeild reyndi að reka
Kára!“
Þekkt er einnig að Kára
tókst að fá læknaleyfið þrátt
fyrir að hafa ekki lokið kandí-
datsári og tilskildu starfi sem
kandídat út á landi, eins og
reglur læknadeildar gerðu
kröfu um. Kári sótti um und-
anþágu og hét því að ljúka
þessu skilyrði þegar hann
snéri aftur úr sérnámi, gegn
því að fá leyfið strax. Hins
vegar hefur Kári enn ekki
komist í það verkefni, um
fjórum áratugum síðar.
Kári fór í sérnám í tauga-
lækningum, taugameinalækn-
ingum og taugavísindum við
Háskólann í Chicago. Síðar
starfaði hann hjá læknadeild-
inni áður en hann gerðist pró-
fessor við Harvard háskóla og
yfirlæknir taugameinalækn-
inga við sjúkrahús í Boston.
En Ísland kallaði hann
heim. Og hvílík heimkoma.
Kári í jötunmóð
Kári sneri aftur með fjár-
magn og háleitar hugmyndir
og fljótlega hafði Íslensk
erfðagreining hafið starfsemi
sína og vakið heimsathygli.
Kári varð nánast á einni
nóttu einn af umdeildustu Ís-
lendingunum, ekki síst vegna
þeirra sagna sem fóru af fasi
hans og persónu.
Össur skrifaði í grein sinni
1998: „Ferill og margslung-
inn persónuleiki Kára ein-
kennist af þverstæðum.
Vísindamaðurinn sem vildi
verða skáld er í dag ein skær-
asta stjarna landsins á sviði
viðskipta.
Á dögum Víetnamstríðsins
barðist hann sem ungur sósí-
alisti gegn heimsvaldastefnu
Bandaríkjanna en sækir nú
styrk sinn til Wall Street.“
Aðeins nokkrum árum eftir
heimkomu Kára var gefin út
bók um ævi hans og afrek.
Höfundur bókarinnar, sem
hafði gefið hana út í óþökk
Kára, var ungur sagnfræð-
ingur, Guðni Th. Jóhannes-
son, sem í dag er forseti Ís-
lands. Bókin kallast Kári í
jötunmóð og vísar þar titill-
inn bæði til ofurmannlegs
metnaðar þessa merkilega
manns sem sagður er búa
yfir „storkandi greind“, sem
og skaps Kára sem mörgum
sögum hefur farið af í gegn-
um tíðina.
Kári varð fljótlega þekktur
fyrir óheflaða framkomu,
einkum í garð fjölmiðla.
Margir blaðamenn sem tóku
hann tali gátu ekki stillt sig
um að hefja greinar sínar
á ítarlegum lýsingum á því
hvernig Kári tók á móti þeim,
eins og til dæmis í viðtali
Kára við DV árið 2013:
„Þú skalt ekki halda það í
eina sekúndu að þú skiptir
mig nokkru máli,“ segir Kári
Stefánsson, forstjóri De-
Code, hastarlegur og hvass-
brýndur við ljósmyndara DV
við upphaf viðtals blaðsins
við hann.“
Í sama viðtali var Kári
spurður út í sögur af skap-
ofsanum og þeim orðrómi að
fólk væri upp til hópa hrætt
við hann.
„Ég er bara svona skrítinn
maður. Ég nota sjálfsagt
skringilegt hegðunarmynst-
ur til að skemmta sjálfum
mér meira en öðrum með
þessu, það mætti segja mér
það. [...] Hvernig getur fólk
verið hrætt við þennan ljúfa
mann? Já, ég er alltaf að grín-
ast, langoftast er þetta bara
húmor. Mér þykir vænt um
fólk. En mér finnst skelfileg
tilhugsun að leiðast.“ n
DV 6. NÓVEMBER 2020
Ungur og
metnaðar-
fullur Kári í
framhalds-
skóla.
MYND/TIMARIT.IS