Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Page 25
Kári í gegnum árin Kári Stefánsson hefur verið áberandi í baráttuni við COVID-19 á Íslandi. En Kári engan veginn ókunnugur því að vekja athygli. Það hefur líklega sjaldnast verið lognmolla í kringum Kára enda þolir hann illa að láta sér leiðast. MYND/TIMARIT.IS TÍMAVÉLIN Þ að er nánast eins og Guð sé kominn heim; dálítið sposkur á svip, örlítið framandlegur með vel snyrt skegg og ber sig heims- mannslega,“ svo skrifaði Ill- ugi Jökulsson í Dag í febrúar árið 1998. „Ég á við Kára Stefansson sem sneri heim frá Bandaríkjunum fyrir ör- fáum misserum og virðist á ótrúlega skömmum tíma hafa byggt upp risafyrirtæki á sviði erfðagreiningar; risa- fyrirtæki á okkar mælikvarða hér á Íslandi og jafnvel þótt víðar væri leitað í veröldinni að fyrirtækjum á því sviði þar sem hann er að hasla sér völl.“ Kári Stefánsson var snúinn aftur heim til Íslands eftir tveggja áratuga fjarveru. Hann var ekki þjóðþekktur maður þegar hann hélt utan, en á örskömmum tíma eftir endurkomuna kannaðist nán- ast hver einasti Íslendingur við nafn hans og hafa þeir gert það allar götur síðan. Kári Stefánsson fæddist í Reykjavík 6. apríl 1949. Foreldrar hans voru Stefán Jónsson, fréttamaður, al- þingismaður og rithöfundur og Sólveig Halldórsdóttir, og Kári var næstyngstur fjög- urra bræðra í fimm systkina hópi. Kári keisari Hann ólst upp í Norðurmýri og Vesturbæ, gekk í Haga- skóla og síðar í Menntaskól- ann í Reykjavík. Kári var strax þá farinn að láta á sér kveða. Þó ekki á sviði erfðafræðinnar heldur í leiklist. Hann tók þátt í upp- setningu Hagaskóla á leik- ritinu Gullna hliðið, þar sem Kári lék sjálfan Jón, en leik- ritið snýst um baráttu konu Jóns fyrir því að koma sál hans inn í himnaríki. Í framhaldsskóla hafði áhuginn á leiklistinni ekki dvínað og tók Kári þátt í uppsetningu leikfélags MR, Herranótt, á leikritinu Bubbi kóngur, sem ungur Davíð Oddsson fór með aðalhlut- verkið í og fékk þaðan viður- nefnið Dabbi Kóngur. Kári lék þar Alexander Rússlands- keisara og sagði um leik hans í Skólablaðinu: „Kári Stef- ánsson lék afkáralegan, en ofurhlýlegan Rússakeisara og svipti Bubba sprota veldis- ins á fyndinn hátt, góðlátur gamlingi andspænis fulltrúa grimmdarinnar.“ Persóna Kára svipti per- sónu Bubba valdi sínu í leik- ritinu en sögum fer af því að innan veggja Menntaskólans hafi hið gagnstæða átt sér stað. Kári tók það á sig að tryggja Davíð kjör í stöðu inspector scholae, formanns nemendafélagsins. Segir sagan að Kári hafi leitað að FÓKUS 25 Erla Dóra Magnúsdóttir erladora@dv.is álitlegum vinstrimanni til að bjóða sig fram í embættið og hafi Davíð orðið fyrir valinu. Davíð hafi spilað hlutverk vinstri frambjóðandans, en komið út úr skápnum sem hægri maður um leið og hann hafði náð kjöri. Kári á undanþágu Næst lá leið Kára í læknis- fræðina við Háskóla Íslands. Framan af hafði Kári haft hug á því að verða skáld, en gerðist þó fyrst sinn eigin harðasti gagnrýnandi og ákvað að helga öll sín skáld- verk skúffunni. Fer sögum af því að hann hafi fyrir algjöra tilviljun og hvatvísi skráð sig í læknis- fræði með félaga sínum, en fljótlega varð ljóst að Kári hafði fundið sína hillu í lífinu. Kári fór ekki hljóðlátlega í gegnum læknisfræðina í Háskólanum. Hann var lítið hrifinn af kennsluaðferð- unum og ekkert hrifinn af hinum og þessum reglum sem nemendum bar að fara eftir. Hann var gjarn á að sækja um undanþágur frá reglum, samnemendum sínum til lít- illar hrifningar. Sem betur fer átti Kári sér hauk í horni. Össur Skarphéðinsson skrif- aði svo í DV 1998: „Kári hefur alltaf storkað heiminum. Á einum af fyrstu fundunum eft- ir að ég kom í Stúdentaráð Há- skólans var eitt umræðuefna á dagskrá bréf, sem prófessor í læknadeild hafði skrifað rekt- or, þar sem krafist var að Kári yrði rekinn. Jóhann Axelsson var deildarforseti og varði fóstra sinn. Seinna sagði hann að þetta hefði verið þreytandi tími. Hann hefði ekki mátt bregða sér úr landi án þess að læknadeild reyndi að reka Kára!“ Þekkt er einnig að Kára tókst að fá læknaleyfið þrátt fyrir að hafa ekki lokið kandí- datsári og tilskildu starfi sem kandídat út á landi, eins og reglur læknadeildar gerðu kröfu um. Kári sótti um und- anþágu og hét því að ljúka þessu skilyrði þegar hann snéri aftur úr sérnámi, gegn því að fá leyfið strax. Hins vegar hefur Kári enn ekki komist í það verkefni, um fjórum áratugum síðar. Kári fór í sérnám í tauga- lækningum, taugameinalækn- ingum og taugavísindum við Háskólann í Chicago. Síðar starfaði hann hjá læknadeild- inni áður en hann gerðist pró- fessor við Harvard háskóla og yfirlæknir taugameinalækn- inga við sjúkrahús í Boston. En Ísland kallaði hann heim. Og hvílík heimkoma. Kári í jötunmóð Kári sneri aftur með fjár- magn og háleitar hugmyndir og fljótlega hafði Íslensk erfðagreining hafið starfsemi sína og vakið heimsathygli. Kári varð nánast á einni nóttu einn af umdeildustu Ís- lendingunum, ekki síst vegna þeirra sagna sem fóru af fasi hans og persónu. Össur skrifaði í grein sinni 1998: „Ferill og margslung- inn persónuleiki Kára ein- kennist af þverstæðum. Vísindamaðurinn sem vildi verða skáld er í dag ein skær- asta stjarna landsins á sviði viðskipta. Á dögum Víetnamstríðsins barðist hann sem ungur sósí- alisti gegn heimsvaldastefnu Bandaríkjanna en sækir nú styrk sinn til Wall Street.“ Aðeins nokkrum árum eftir heimkomu Kára var gefin út bók um ævi hans og afrek. Höfundur bókarinnar, sem hafði gefið hana út í óþökk Kára, var ungur sagnfræð- ingur, Guðni Th. Jóhannes- son, sem í dag er forseti Ís- lands. Bókin kallast Kári í jötunmóð og vísar þar titill- inn bæði til ofurmannlegs metnaðar þessa merkilega manns sem sagður er búa yfir „storkandi greind“, sem og skaps Kára sem mörgum sögum hefur farið af í gegn- um tíðina. Kári varð fljótlega þekktur fyrir óheflaða framkomu, einkum í garð fjölmiðla. Margir blaðamenn sem tóku hann tali gátu ekki stillt sig um að hefja greinar sínar á ítarlegum lýsingum á því hvernig Kári tók á móti þeim, eins og til dæmis í viðtali Kára við DV árið 2013: „Þú skalt ekki halda það í eina sekúndu að þú skiptir mig nokkru máli,“ segir Kári Stefánsson, forstjóri De- Code, hastarlegur og hvass- brýndur við ljósmyndara DV við upphaf viðtals blaðsins við hann.“ Í sama viðtali var Kári spurður út í sögur af skap- ofsanum og þeim orðrómi að fólk væri upp til hópa hrætt við hann. „Ég er bara svona skrítinn maður. Ég nota sjálfsagt skringilegt hegðunarmynst- ur til að skemmta sjálfum mér meira en öðrum með þessu, það mætti segja mér það. [...] Hvernig getur fólk verið hrætt við þennan ljúfa mann? Já, ég er alltaf að grín- ast, langoftast er þetta bara húmor. Mér þykir vænt um fólk. En mér finnst skelfileg tilhugsun að leiðast.“ n DV 6. NÓVEMBER 2020 Ungur og metnaðar- fullur Kári í framhalds- skóla. MYND/TIMARIT.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.