Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 28
SIGRÚN AMMA VAR LÆRIMEISTARINN MINN Sigmundur Ernir Rúnarsson les mikið á hverjum degi. Hann segist alæta á bækur, en er hrifnastur af ljóðum. Fyrsta bókin sem hann kláraði spjald- anna á milli var ljóðaúrval Davíðs Stefánssonar. Grænn varstu dalur eftir Richard Llewellyn Útgáfuár: 1949 Haukur Morgan elst upp í stórri námumannafjölskyldu í litlum dal í Wales. Í dalnum er hvorki lög- regla né skóli en íbúarnir lifa eftir reglum Biblíunnar og refsa sjálfir hinum brotlegu. Á uppvaxtarárum Hauks verða miklar breytingar í dalnum. Verkfallsátök verða tíð og bræður hans boða breytta tíma. Farvegir eftir Stefán Hörð Grímsson Útgáfuár: 1981 Fjórða ljóðabók Stefáns sem er eitt af helstu ljóðskáldum okkar á 20. öld. Í auglýsingu um bókina þegar hún kom út sagði: „Lág- róma fáorð list Stefáns verður lesandanum hugstæðari sem hann kynnist henni betur. Ljóðin gerast í kynlegum ljósaskiptum, kvikna til lífs á frjálsum vett- vangi skynjunarinnar. Og leikur skáldsins að tíma og fjarlægðum er einatt heillandi í Farvegum.“ Veröld sem var eftir Stefan Sweig Útgáfuár: 1958 Austurríski gyðingurinn Stefan Zweig hóf ritun sögunnar árið 1934 þegar uppgangur nasista var í algleymingi og útþensla Þriðja ríkisins ásamt víðtækum gyðingaofsóknum blöstu við öllum sem höfðu augun opin. Zweig flýði heimaland sitt og hélt til Eng- lands og síðar Brasilíu. Þar lauk hann verkinu í febrúar 1942 og póstlagði handritið til útgefanda. Daginn eftir styttu Zweig-hjónin sér aldur, södd lífdaga í stríðs- hrjáðum heimi. Híbýli vindanna og Lífsins tré eftir Böðvar Guðmundsson Útgáfuár: 1995 og 1997 Í bókunum rekur Böðvar fjölskyldu- sögu vesturfarans Ólafs fíólíns og veitir lesendum einstaka innsýn í líf Íslendinga sem fluttust til Vestur- heims á seinni hluta 19. aldar; störf þeirra og kjör, vonir og þrár. Per- sónurnar eru margar og litríkar, og saga þeirra er skrifuð af næmum skilningi og fölskvalausri samúð. Að baki frásögnunum liggur umfangs- mikil heimildavinna og Íslandssag- an lifnar við í þessu magnaða verki. Ljóð muna rödd eftir Sigurð Pálsson Útgáfuár: 2016 Hér yrkir Sigurður um grundvall- aratriði lífsins: jörð, eld, loft og vatn, en líka raddir og skugga, ljós og myrkur, hvítar nætur og heilaga gleði. Hugarflugi og sköpunar- gleði er teflt af fullri einurð fram gegn valdi eyðingar og dauða og rödd ljóðsins ómar áfram í höfði lesanda lengi eftir lesturinn. Ljóð muna rödd er ein persónu- legasta og áhrifamesta ljóðabók sem Sigurður Pálsson hefur sent frá sér. 28 FÓKUS S igmundur Ernir Rún-arsson, sjónvarpsstjóri Hringbrautar, fagnar 40 ára rithöfundarafmæli í ár með útgáfu ljóðabókarinnar Skáldaleyfi. „Ég les feikilega mikið, blöð og bækur, alla daga og helst fram á nótt, en það er einkum að mín eigin skrif haldi mér frá lestri. Ég er alæta á bækur, en les þó helst ljóð, í talsvert ríkari mæli en skáldsögur – og er þess utan líka mjög hallur undir sagnfræði, landafræði og náttúrufræði, svo og þjóð- legan fróðleik. Það segir kannski sitt að fyrsta bókin sem ég las og kláraði spjaldanna á milli, svo ég muni, var ljóðaúrval Dav- íðs Stefánssonar, sem Sigrún amma hvatti mig til að lesa svo ég ætti auðveldara með að tileinka mér hrynjandina, en hún var fyrsti lærimeistari minn í þeim efnum, réri mér í gráðið við eldhúsborðið svo ég fyndi taktinn. Haustin eru náttúrlega upp- skerutími lestrarhesta – og þá kemur sér vel að geta lesið líka í vinnunni, til að undir- búa viðtöl mín í sjónvarpinu – og þá reyni ég að komast yfir allt það helsta af fersk- vörunni n Þorbjörg Marinósdóttir tobba@dv.is Umsögn: Fáum, ef nokkrum, evr- ópskum höfundum hefur tekist að miðla hlutskipti alþýðufólks síðustu aldar á hrifnæmari máta en þessum velska ritjöfri. Maður hverfur inn í þessa bók. Umsögn: Hér er komin ein stysta ljóðabók íslensks skálds, en svo innihaldsrík og efnismikil að orðið galdrar fær nýja merkingu. Lýríkin í bókinni er með því fágaðasta sem ég hef kynnst. Umsögn: Áhrifaríkasta ævisaga sem skrifuð hefur verið og fangar tíðaranda um og upp úr aldamót- unum 1900 með þvílíkum tilþrifum að maður situr orðlaus eftir. Ein besta bók allra tíma, punktur, basta. Umsögn: Áhrifaríkasti tvíleikur ís- lensks rithöfundar af Ólafi fíólín og öðrum vesturförum. Engar bækur hef ég átt erfiðara með að klára og leggja frá mér. Ég vildi ekki að þær kláruðust. Umsögn: Þessi bók er kórónan á rithöfundarferli Sigurðar heitins Pálssonar, sem ég dái og elska fyrir skrif sín af öllu tagi. Bókin fer ekki af náttborðinu mínu, enda fegurstu ljóðalok sem ég hef orðið vitni að. Sigmundur Ernir Rúnarsson segir haustin vera uppskerutíma lestrarhesta. MYND/STEFÁN 6. NÓVEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.