Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 30
S æl, Kristín. Ég er í stöðu sem ég hélt ég myndi aldrei finna mig í. Líklega martröð margra foreldra. Sonur minn er að leggja bekkjarfélaga sinn í einelti. Foreldrar bekkjar- félagans hafa sett sig í sam- band við mig og vilja hittast og ræða málin, en ég hef ekki eina einustu hugmynd um hvernig ég get tæklað þessar aðstæður. Sonur minn neitar að sjálfsögðu öllu, en starfs- menn í skólanum staðfesta að bekkjarfélaginn er að segja satt. Ég bara græt og græt og veit ekkert hvað ég á að gera, eða hvað ég gerði vitlaust í uppeldinu. Ertu með einhver ráð fyrir mig? Kveðja, eyðilögð móðir Sýna gott fordæmi Sæl, móðir. Orð eru svo áhrifarík. Þú mátt ekki trúa því að þú sért eyðilögð móðir, þú ert móðir sem finnur til vanmáttar, en ekki eyðilögð eða ónýt á nokkurn hátt. Þú hefur til að mynda viðleitni til þess að skrifa mér þessa spurningu og það segir mér að þú ert lausnamiðuð móðir sem vilt gera þitt allra besta til þess að syni þínum og bekkjarfélögum hans líði vel. Það er merki um móður sem er að gera rétt. Bara vel gert mamma, nú brettum við upp ermar og gerum eins gott úr þessu og hægt er. Þessi spurning er afar við- eigandi núna eftir mikla ein- eltisumræðu í samfélaginu. Sú umræða sýnir að við sem samfélag virðumst eiga erf- itt með að finna lausn þegar kemur að einelti barna, þó svo að ég trúi því að við séum öll af miklum vilja gerð hvað það varðar. Það sýnir okkur að þú ein, sem móðir, ert ekki að fara að leysa þennan vanda, en þú ert sannarlega mikilvægur hlekkur í átt að lausn. Þú nefnir að þú hafir ekki hugmynd um hvernig þú eigir að tækla aðstæður, en það eina sem þú gerir rangt er ef þú myndir ekki gera neitt. Ef þú sýnir syni þínum öryggi og gott for- dæmi í þessum aðstæðum, þá eruð þið bæði að fara að mokgræða á þessari reynslu. Úthrópum engan Þú nefnir að sonur þinn neiti allri sök og það má bara vel vera að hann eigi ekki sök á neinu. Aftur á móti getur „ekki neitt“ flokkast sem útskúfun, bekkjarfélaginn gæti verið að upplifa atburði á annan hátt en sonur þinn, eða að þarna spili aðrir ein- staklingar hlutverk sem ekki hefur komið fram. Ef for- eldrar bekkjarfélagans vilja hittast og ræða málin, er það ekki bara hið besta mál? Þar getur þú aðstoðað son þinn við að koma sínum sjónar- miðum á framfæri, fengið hina hlið málsins og áttað þig betur á stöðunni. Í því felst gríðarlegur lærdómur fyrir alla hlutaðeigandi í þessu máli. Það er gríðarlega mikil- vægt að úthrópa engan. Sonur þinn er ekki vondur ofbeldis- maður. Hann er barn sem er að læra á félagsleg samskipti, kannski er hann í flóknu, fé- lagslegu umhverfi og kannski þarf hann aðstoð við að tækla það, þannig að það birtist ekki sem ofbeldi eða einelti. Mögulega myndi þetta mál leysast farsællega ef þinn sonur fær réttan stuðning og hjálp við að finna bjargráð sem nýtast honum og skaða engan. Annar eins stuðningur er í boði innan skólakerfisins fyrir þá sem eiga erfitt með lestur eða stærðfræði, það sama á að sjálfsögðu að gilda um stuðning í félagsfærni og samskiptum. Afneitun foreldra algeng Fólk leggur mismunandi merkingu í orðið einelti. Það sem einn upplifir sem einelti getur annar upplifað sem grín. Nú veit ég ekki hvað sonur þinn er gamall en börn eru misfær eftir þroskastig- um til þess að setja sig í spor annarra og sjá þeirra hlið og upplifun. Einnig greinir okk- ur fullorðna fólkið á um það hvað sé rétt eða rangt, við- eigandi eða óviðeigandi, for- dómar eða fáfræði. Hvernig í ósköpunum eiga þá börn á grunnskólaaldri að gera það upp við sig? Besta mögulega útkoman í ykkar máli væri ef þið mæðginin, foreldrar bekkjarfélagans og skólinn gætuð myndað stefnu og sett markmið, sem miðar að því að báðum drengjunum líði vel í skólanum. Ég verð að hrósa þér fyrir eitt, þ.e. að þú orðar spurn- ingu þína eins og það versta sem þú getur hugsað þér sé að koma fyrir þig, það segir mér að það skiptir þig miklu máli að ala upp réttsýnan og siðprúðan einstakling sem er góður við annað fólk. Margir myndu frekar orða spurning- una líkt og þú ef þau væru hinu megin borðsins, sem er skiljanlegt því við erum van- máttug gagnvart börnunum okkar sem upplifa einelti í skóla. Eins er algengt að for- eldrar „gerenda“ rjúki upp í vörn og neiti að horfast í augu við vandann sem er kominn upp. Mér finnst þú einmitt sýna hugrekki, skilning og réttsýni, við að gangast við þeirri stöðu sem upp er kom- in og vilja með öllum þínum mætti finna farsæla lausn. Ef allir hugsuðu þannig, þá trúi ég því að við værum við einu skrefi nær eineltislausum heimi. Nú er lag að snúa vörn í sókn. Við erum öll voldug þegar kemur að því að hafa áhrif á líðan annarra. Þið mæðginin getið litið á þessa stöðu sem tækifæri til þess að stuðla að því að bekkjar- bræðrunum líði báðum vel í skólanum. Ef það tekst, mun það valdefla báða þessa drengi, sem og samfélagið í heild sem fær fordæmi um hvernig vel er staðið að svona málum. Gangi ykkur sem allra best, ég hef massatrú á ykkur. n Við hvetjum lesendur til að senda spurningar og vangaveltur sínar til Kristínar í tölvupósti á: hjonabandssaela@gmail.com. Spurningunum verður svo svarað hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf- sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði. Fjölskylduhornið Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi svarar spurningum lesenda um málefni er varða fjölskylduna, börnin og ástina í Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar Kristín spurningu lesanda sem á barn sem leggur í einelti. SONUR MINN LEGGUR Í EINELTI Sérfræðingur svarar MYND/GETTY Mér finnst þú sýna hug- rekki, skiln- ing og rétt- sýni við að gangast við þeirri stöðu sem upp er komin. 30 FÓKUS 6. NÓVEMBER 2020 DV

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.