Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Blaðsíða 31
Í Monroe-sýslu í Michigan var lengi haldið árlegt hrekkjavökupartý sem ungt fólk sóttist mjög eftir að komast í. Maður að nafni Michael Williams hélt þessi partý á búgarði móður sinn- ar. Þar tróðu upp hljómsveitir og stór varðeldur var kveikt- ur er leið á kvöldið. Hundruð manna skemmtu sér saman úti undir beru lofti. Chelsea Bruck var ein af þeim sem var mjög hrifin af þessum hrekkjavöku- partýum. Haustið 2014 hlakk- aði hún mikið til partýsins, sem þá var haldið laugar- dagskvöldið 25. október. Chelsea var þá 22 ára gömul, yngst fimm systkina, bjó í smábænum Maybee, ekki langt frá búgarðinum, og vann á veitingahúsi. Chelsea fór með vinkonu sinni Beccy í partýið og þær voru báðar í flottum hrekkja- vökubúningum. Þær urðu viðskila í mannhafinu, en um 700 manns sóttu partýið að þessu sinni, sem var met- fjöldi. Þegar leið að lokum gleðskaparins fundu vinkon- ur Chelsea hana ekki, þeirra á meðal stúlka sem hafði lofað henni bílfari heim. Vin- konan Beccy var með síma Chelsea í sínum fórum. En hún fann hana hvergi. Einhverjar sögur voru af því að sést hefði til Chelsea við varðeldinn, hafði hún verið ein síns liðs og grátið, að virtist af ótta við að hún fengi ekki far heim. Umfangsmikil leit Þegar Beccy kom heim til sín sendi hún móður Chel- sea textaskilaboð þess efnis að hún væri með síma Chel- sea og hann mætti sækja til hennar þegar hentaði. Það var síðan seint á sunnudags- kvöldinu sem Cassy, systir Chelsea, sendi Beccy skila- boð þess efnis að Chelsea hefði aldrei skilað sér heim. Mánudagurinn rann upp án þess að Chelsea hefði skilað sér. Lögreglu var gert við- vart og mikil umræða fór af stað á Facebook um horfnu stúlkuna. Á þriðjudag hófst formleg lögreglurannsókn á hvarfi Chelsea. Málið vakti óhug og athygli og mikið var fjallað um það í fjölmiðlum. Partýhaldarinn Michael Williams var niður- brotinn og sagðist vera með sektarkennd vegna hvarfs stúlkunnar. Aldrei áður hefði neitt slæmt hent í hrekkja- vökupartýunum hans. Svæðið í kringum bú- garðinn var fínkembt af lögreglumönnum og stórum leitarsveitum sjálfboðaliða. Húsleit var gerð á búgarðin- um en ekkert fannst sem gat varpað ljósi á hvarf Chelsea. Aðrir partýgestir sem lög- regla ræddi við reyndust ekki hafa mjög gagnlegar upplýs- ingar. Þó voru nokkur vitni sem sögðust hafa séð Chelsea yfir- gefa svæðið á fjórða tímanum um nóttina, í fylgd dökk- hærðs manns með gleraugu. Útlitslýsing hans var fremur almenn en þó var gerð teikn- ing af manninum og lýst eftir honum. Straumhvörf í málinu Seint í mars árið 2015 hafði kona ein samband við lög- reglu og sagðist hafa fundið stakan kvenskó á lóðinni sinni. Rannsókn leiddi í ljós að skórinn var af Chelsea. Þetta var í rúmlega 3 km fjar- lægð frá búgarðinum þar sem partýið hafði verið haldið. Mánuði síðar fannst hrekkjavökubúningur Chel- sea í yfirgefinni byggingu í um 16 km fjarlægð frá partý- svæðinu. Búningurinn var rifinn og tættur og á honum voru blóðblettir úr Chelsea og ókunnum manni. Þann 24. apríl 2015 fundust síðan líkamsleifar Chelsea í skóglendi í um 10 km fjarlægð frá búgarðinum. Líkið var svo illa farið að tanngreiningu þurfti til að bera kennsl á Chelsea. Krufning leiddi í ljós að hún hafði látist vegna áverka á höfði eða hálsi. Lykillinn að lausn málsins fólst í því að finna manninn sem blóðið á búningnum til- heyrði. Það gerðist ekki fyrr en árið 2016, tæplega tveimur árum eftir hvarf Chelsea. Leiddur í gildru lögreglu Maðurinn sem átti erfðaefnið á búningi Chelsea virtist í fyrstu fremur tilkomulítill afbrotamaður. Hann var handtekinn vegna íkveikju- tilraunar og vegna meðlags- skulda. Hann hét Daniel Clay og var 28 ára, atvinnulaus og óstaðsettur í hús. Í yfirheyrslum neitaði Daniel því fyrst að hafa nokk- urn tíma hitt Chelsea, hvað þá gert henni mein. Hann ját- aði hins vegar að hafa verið í partýinu örlagaríka. Hann hafði ekki skýringu á því hvers vegna blóð úr honum var á hrekkjavökubúningi stúlkunnar. Í yfirheyrslum lögðu lög- reglumenn gildru fyrir Daniel. Þeir sögðu að Chel- sea hefði verið með beina- sjúkdóm sem olli því að bein hennar brotnuðu auðveld- lega. Hún hefði getað dáið fyrir slysni. Daniel breytti þá sögu sinni og sagðist hafa hitt Chelsea og haft kynmök við hana í bíl sínum. Hann hefði tekið hana kverkataki í samförunum. Þetta hafi verið með samþykki Chelsea, en hún hafi óvart látist við þess- ar aðfarir. Þegar Daniel var bent á að kinnbein hennar hefðu verið brotin, sagði hann að það hlyti að hafa gerst þeg- ar hann losaði sig við líkið. Daniel Clay bað fjölskyldu Chelsea Bruck innilega fyrir- gefningar á því að hafa orðið dóttur þeirra að bana, en hélt sig við þann framburð að atvikið hefði verið slys. En honum var ekki trúað. Hann var sakfelldur fyrir nauðgun og morð og dæmdur í ævi- langt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Dómarinn var ómyrkur í máli er hann kvað upp dóminn og kallaði Daniel lygara, nauðgara og morðingja. Dauði Chelsea Bruck hefur markað djúp og varanleg sár í samfélaginu í smábænum Maybee í Monroe-sýslu í Mic- higan. Fram að dauða hennar höfðu ofbeldisglæpir í þessu litla samfélagi verið nánast óþekktir. n Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is SAKAMÁL Daniel Clay varð a.m.k. tvísaga um málið. SKJÁSKOT/YOUTUBE Partýhaldar- inn Michael Williams var niðurbrotinn og sagðist vera með sektarkennd vegna hvarfs stúlkunnar. STÚLKAN SEM HVARF Í HREKKJAVÖKUGLEÐSKAP Chelsea Bruck hvarf eftir fjölmennt hrekkjavökupartý á búgarði í Michigan. Hún var 22 ára gömul, yngst fimm systkina. Mál hennar vakti mikinn óhug og gerir það enn þann dag í dag. Chelsea Bruck (t.v.) og vinkona hennar Beccy. MYND/FACEBOOK FÓKUS 31DV 6. NÓVEMBER 2020

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.