Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.2020, Qupperneq 31
Í Monroe-sýslu í Michigan var lengi haldið árlegt hrekkjavökupartý sem
ungt fólk sóttist mjög eftir
að komast í. Maður að nafni
Michael Williams hélt þessi
partý á búgarði móður sinn-
ar. Þar tróðu upp hljómsveitir
og stór varðeldur var kveikt-
ur er leið á kvöldið. Hundruð
manna skemmtu sér saman
úti undir beru lofti.
Chelsea Bruck var ein af
þeim sem var mjög hrifin
af þessum hrekkjavöku-
partýum. Haustið 2014 hlakk-
aði hún mikið til partýsins,
sem þá var haldið laugar-
dagskvöldið 25. október.
Chelsea var þá 22 ára gömul,
yngst fimm systkina, bjó í
smábænum Maybee, ekki
langt frá búgarðinum, og
vann á veitingahúsi.
Chelsea fór með vinkonu
sinni Beccy í partýið og þær
voru báðar í flottum hrekkja-
vökubúningum. Þær urðu
viðskila í mannhafinu, en
um 700 manns sóttu partýið
að þessu sinni, sem var met-
fjöldi. Þegar leið að lokum
gleðskaparins fundu vinkon-
ur Chelsea hana ekki, þeirra
á meðal stúlka sem hafði
lofað henni bílfari heim. Vin-
konan Beccy var með síma
Chelsea í sínum fórum. En
hún fann hana hvergi.
Einhverjar sögur voru af
því að sést hefði til Chelsea
við varðeldinn, hafði hún
verið ein síns liðs og grátið,
að virtist af ótta við að hún
fengi ekki far heim.
Umfangsmikil leit
Þegar Beccy kom heim til
sín sendi hún móður Chel-
sea textaskilaboð þess efnis
að hún væri með síma Chel-
sea og hann mætti sækja til
hennar þegar hentaði. Það
var síðan seint á sunnudags-
kvöldinu sem Cassy, systir
Chelsea, sendi Beccy skila-
boð þess efnis að Chelsea
hefði aldrei skilað sér heim.
Mánudagurinn rann upp án
þess að Chelsea hefði skilað
sér. Lögreglu var gert við-
vart og mikil umræða fór af
stað á Facebook um horfnu
stúlkuna. Á þriðjudag hófst
formleg lögreglurannsókn á
hvarfi Chelsea.
Málið vakti óhug og athygli
og mikið var fjallað um það
í fjölmiðlum. Partýhaldarinn
Michael Williams var niður-
brotinn og sagðist vera með
sektarkennd vegna hvarfs
stúlkunnar. Aldrei áður hefði
neitt slæmt hent í hrekkja-
vökupartýunum hans.
Svæðið í kringum bú-
garðinn var fínkembt af
lögreglumönnum og stórum
leitarsveitum sjálfboðaliða.
Húsleit var gerð á búgarðin-
um en ekkert fannst sem gat
varpað ljósi á hvarf Chelsea.
Aðrir partýgestir sem lög-
regla ræddi við reyndust ekki
hafa mjög gagnlegar upplýs-
ingar.
Þó voru nokkur vitni sem
sögðust hafa séð Chelsea yfir-
gefa svæðið á fjórða tímanum
um nóttina, í fylgd dökk-
hærðs manns með gleraugu.
Útlitslýsing hans var fremur
almenn en þó var gerð teikn-
ing af manninum og lýst eftir
honum.
Straumhvörf í málinu
Seint í mars árið 2015 hafði
kona ein samband við lög-
reglu og sagðist hafa fundið
stakan kvenskó á lóðinni
sinni. Rannsókn leiddi í ljós
að skórinn var af Chelsea.
Þetta var í rúmlega 3 km fjar-
lægð frá búgarðinum þar sem
partýið hafði verið haldið.
Mánuði síðar fannst
hrekkjavökubúningur Chel-
sea í yfirgefinni byggingu í
um 16 km fjarlægð frá partý-
svæðinu. Búningurinn var
rifinn og tættur og á honum
voru blóðblettir úr Chelsea og
ókunnum manni.
Þann 24. apríl 2015 fundust
síðan líkamsleifar Chelsea í
skóglendi í um 10 km fjarlægð
frá búgarðinum. Líkið var svo
illa farið að tanngreiningu
þurfti til að bera kennsl á
Chelsea. Krufning leiddi í
ljós að hún hafði látist vegna
áverka á höfði eða hálsi.
Lykillinn að lausn málsins
fólst í því að finna manninn
sem blóðið á búningnum til-
heyrði. Það gerðist ekki fyrr
en árið 2016, tæplega tveimur
árum eftir hvarf Chelsea.
Leiddur í gildru lögreglu
Maðurinn sem átti erfðaefnið
á búningi Chelsea virtist í
fyrstu fremur tilkomulítill
afbrotamaður. Hann var
handtekinn vegna íkveikju-
tilraunar og vegna meðlags-
skulda. Hann hét Daniel Clay
og var 28 ára, atvinnulaus og
óstaðsettur í hús.
Í yfirheyrslum neitaði
Daniel því fyrst að hafa nokk-
urn tíma hitt Chelsea, hvað
þá gert henni mein. Hann ját-
aði hins vegar að hafa verið
í partýinu örlagaríka. Hann
hafði ekki skýringu á því
hvers vegna blóð úr honum
var á hrekkjavökubúningi
stúlkunnar.
Í yfirheyrslum lögðu lög-
reglumenn gildru fyrir
Daniel. Þeir sögðu að Chel-
sea hefði verið með beina-
sjúkdóm sem olli því að bein
hennar brotnuðu auðveld-
lega. Hún hefði getað dáið
fyrir slysni. Daniel breytti
þá sögu sinni og sagðist hafa
hitt Chelsea og haft kynmök
við hana í bíl sínum. Hann
hefði tekið hana kverkataki í
samförunum. Þetta hafi verið
með samþykki Chelsea, en
hún hafi óvart látist við þess-
ar aðfarir. Þegar Daniel var
bent á að kinnbein hennar
hefðu verið brotin, sagði hann
að það hlyti að hafa gerst þeg-
ar hann losaði sig við líkið.
Daniel Clay bað fjölskyldu
Chelsea Bruck innilega fyrir-
gefningar á því að hafa orðið
dóttur þeirra að bana, en hélt
sig við þann framburð að
atvikið hefði verið slys. En
honum var ekki trúað. Hann
var sakfelldur fyrir nauðgun
og morð og dæmdur í ævi-
langt fangelsi án möguleika
á reynslulausn. Dómarinn
var ómyrkur í máli er hann
kvað upp dóminn og kallaði
Daniel lygara, nauðgara og
morðingja.
Dauði Chelsea Bruck hefur
markað djúp og varanleg sár
í samfélaginu í smábænum
Maybee í Monroe-sýslu í Mic-
higan. Fram að dauða hennar
höfðu ofbeldisglæpir í þessu
litla samfélagi verið nánast
óþekktir. n
Ágúst Borgþór
Sverrisson
agustb@dv.is
SAKAMÁL
Daniel Clay varð a.m.k. tvísaga um málið. SKJÁSKOT/YOUTUBE
Partýhaldar-
inn Michael
Williams var
niðurbrotinn
og sagðist vera
með sektarkennd
vegna hvarfs
stúlkunnar.
STÚLKAN SEM HVARF Í
HREKKJAVÖKUGLEÐSKAP
Chelsea Bruck hvarf eftir fjölmennt hrekkjavökupartý á búgarði
í Michigan. Hún var 22 ára gömul, yngst fimm systkina. Mál
hennar vakti mikinn óhug og gerir það enn þann dag í dag.
Chelsea Bruck (t.v.) og vinkona hennar Beccy. MYND/FACEBOOK
FÓKUS 31DV 6. NÓVEMBER 2020