Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Þorbjörg
Marinósdóttir
tobba@dv.is
VENJULEGIR
KRAKKAR ERU
AÐ STRÖGGLA
13. NÓVEMBER 2020 DV
E va segir hópinn sem leiti í Bergið vera fjölbreytt-an en þó megi finna
samnefnara í vissum erfiðleik-
um sem hann sé að glíma við.
„Hluti hópsins, um 40 prósent,
er ungt fólk og börn sem búa
við flókinn vanda heima fyrir,
svo sem að foreldri eða systkin
séu í neyslu og/eða með geð-
rænan vanda. Hinn hópurinn
sem leitar mikið til okkar
núna eru ungmenni sem vita
ekki hvernig þau eiga að díla
við þennan einmanaleika. Við
fullorðna fólkið getum tæklað
þetta betur,“ segir Eva Rós.
Eva Rós Ólafsdóttir, félagsráð-
gjafi hjá Berginu, segir mikla
aukningu í ráðgjafarþjónustu.
Ýmislegt sé að valda ungu fólki
vanlíðan og mun oftar mætti
spyrja það hvernig því líði.
Frammi stöðukvíði, einmanaleiki
og einangrun ungmenna sem búa
við erfiðar aðstæður eru meðal
helstu ástæðna.