Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 24
24 FÓKUS Samvera með fjölskyldunni um jólin Mikil óvissa ríkir um desembermánuð vegna sam- komutakmarkana og kórónuveirufaraldursins. Er ekki tilvalið að nýta tímann með fjölskyldunni til hins ýtrasta og njóta samverunnar í desember? KOSTAR EKKI NEITT • Búa til snjókarl • Horfa á jólamynd • Skreyta jólatréð • Lita jólamyndir/perla jólamyndir • Fara í bíltúr og skoða jólaljós og skreytingar • Spila saman • Kveikja á kertum, fara öll undir teppi og lesa saman bók • Skreyta saman • Leika í snjónum • Gönguferð í myrkrinu með vasaljós KOSTAR LÍTIÐ • Baka piparkökur • Fara í göngutúr og fá svo heitt kakó • Baka smákökur • Föndra jólaskraut • Velja hvað er í kvöldmatinn og hjálpa til við að elda KOSTAR MEIRA • Kaupa jólatré • Náttfataísbíltúr • Pítsupartí Það er hægt að útfæra pítsupartí á nokkra vegu. Það er hægt að kaupa tilbúnar pítsur, en það er lítil samvera í því. Það er hægt að kaupa tilbúinn pítsubotn, búa til pítsubotn eða nota tortillakökur sem pítsubotn. Svo er sniðugt að setja rifinn ost, álegg og græn- meti á borð og allir geta sett á sínar pítsur sjálfir. Skemmtileg samvera þó hún verði aðeins sóðalegri svona. 13. NÓVEMBER 2020 DV Samverudagatöl eru snið-ug leið til að verja meiri tíma með börnunum og gera eitthvað skemmtilegt í leiðinni. Einnig góð leið til að tempra æsinginn sem byggist upp í börnunum með hverjum deginum sem líður nær jólum. Við tókum saman nokkrar hugmyndir að samveru sem er hægt að eiga með fjölskyld- unni á tímum COVID. Þetta þarf ekki að vera flókið eða kosta mikið, það þarf bara að vera samvera. Skipulag Það er hægt að hafa dagatalið rafrænt, en við mælum með að henda nokkrum límmiðum á blað og föndra dagatalið. Börn gera ekki himinháar kröfur um útlit svo þú getur ekki klikkað. Það er sniðugt að skipu- leggja þetta þannig að það sem er einfaldast og tekur skemmstan tíma sé á virkum dögum eða á dögum þar sem þú veist að mikið verður að gera, eins og að búa til snjó- karl, fara í gönguferð eða lita jólamyndir. Svo er hægt að sameina ýmislegt, eins og að fara í náttfataísbíltúr og horfa svo á jólamynd, eða skreyta saman og kveikja svo á kertum og lesa bók saman. n Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is FLEIRI HUGMYNDIR FYRIR SAMVERUDAGATAL FYRIR PÖR EÐA FJÖLSKYLDUR MEÐ ELDRI BÖRN MÁLAÐU EINS OG BOB ROSS Þessi samvera er örugglega sú dýrasta á listanum. Kaupa þarf striga og málningu, svo bara fara á YouTube og leita að „Bob Ross tu- torial“ og þá finnurðu fjölda mynd- banda þar sem listamaðurinn Bob Ross leiðbeinir þér í rólegheitum með silkimjúkri rödd sinni um hvern- ig þú málar flott málverk frá a til ö. Hann er meira að segja með nokkur myndbönd með jólaþema. Tilvalið fyrir pör til að gera eina kvöldstund og opna rauðvínsflösku með. Líka skemmtilegt fyrir fjöl- skyldur með eldri börn. Það er hægt að gera þetta að keppni, í lokin verður flottasta málverkið valið og verðlaun fyrir sigurvegarann. Þú þarft ekki að spreða og kaupa rándýran striga og málningu, þú getur til dæmis farið í Søstrene Grene, Verkfæralagerinn eða aðrar verslanir sem selja ódýrar málningarvörur. DÝRMÆTAR FJÖLSKYLDUSTUNDIR SKREYTA PIPARKÖKUHÚS Undanfarin ár hefur verið hægt að kaupa tilbúin piparkökuhús í IKEA, eina sem þú þarft að gera er að setja það saman. Svo er hægt að búa til eða kaupa tilbúinn glassúr, eitthvað nammi og skraut og öll fjölskyldan getur dúllað sér við þetta eina kvöldstund. GISTIPARTÍ Hugmyndin er fengin frá móður í Facebook-hópnum Mæðra Tips. Hún og fjölskylda hennar gistu öll saman í stofunni eitt kvöldið. Það er tilvalið að blása upp vindsæng- ur eða fara með dýnur, sængur og kodda fram í stofu, horfa á jóla- mynd og vera þar yfir nótt. Af öllu í samverudagatalinu þennan desembermánuð segir móðirin að gistipartíið hafi staðið upp úr hjá börnunum. LEIKSÝNING Nú þegar ekki er hlaupið í leik- hús eða á jólasýningar er tilvalið að halda sýningu heima. Það fer eftir aldri barnanna hvaða leikrit eða saga er valin. Foreldri getur hjálpað til við að búa til búninga, æfa leikritið og þess háttar. Svo er hægt að halda sýninguna fyrir framan foreldra en einnig fyrir ömmur og afa, frænkur og frænda og vini í gegnum fjar- fundabúnað. MYNDIR/GETTY

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.