Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 13.11.2020, Blaðsíða 26
26 FÓKUS GÓMSÆT TILBOÐ TIL AÐ TAKA MEÐ HEIM Veitingahúsaflóran okkar er dásamleg og henni viljum við halda gangandi. DV bendir lesendum hér á nokkur frábær og skemmtileg tilboð. Stönd- um saman og styðjum við veitingahúsin í kófinu. 13. NÓVEMBER 2020 DV SÆTA SVÍNIÐ Hafnarstræti 1-3, Reykjavík Sæta svínið er gastropub þar sem þú getur komið við í hádeginu, í eftirmið- daginn eða á kvöldin í drykk og hágæða mat í skemmtilegri og afslappaðri stemningu. Ýmis tilboð eru í gangi hjá Sæta svíninu. Má þar einna helst nefna súper Take away tilboð í hádeginu þar sem hægt að fá geggjaða rétti á 1.500 krónur og það fylgir dós af gosi með. Réttir á þessu tilboði eru til dæmis andasalat, BBQ vegan borgari og grillaður lax. Súper take away hádegistilboðin gilda alla daga frá 11.30-15.00. 27 MATHÚS & BAR Víkurhvarfi 1, Kópavogur Veitingahús með útsýni yfir Elliðavatn. Fjölbreyttur matseðill, veganseðill, barnaseðill og taka-með seðill. Happy á hverjum degi. Reykofninn er hjarta eldhússins – hann er ættaður frá Tennessee í Bandaríkjunum, og er allt kjöt eldað í ofninum. „27 veisla fyrir fjóra“ samanstendur af súpu dagsins, heilum sítrónukjúkl- ingi eða kóreskum kjúklingi, tveimur hliðarréttum og súkkulaðimús. Á sér- stöku tilboði á taka með-matseðli kostar þetta nú 7.990 í stað 11.900 kr. Þá er líka hægt að fá BBQ-veislu fyrir fjóra af taka með-matseðli. Veislan samanstendur af súpu dagsins, pastrami, beinlausum rifjum, pulled pork, grilluðum kjúklingaspjótum, tveimur hliðarréttum og belgískri súkkulaðimús á 12.900 kr. í stað 19.900 kr. áður. Hjá 27 mathús & bar er lokað á mánudögum og þriðjudögum í samkomu- banni. ÍTALÍA Laugavegi 11, Reykjavík Veitingastaðurinn Ítalía er rótgróinn í hjarta Reykjavíkur. Á matseðlinum er að finna úrval ítalskra rétta, allt frá forréttum til fisk- og kjötrétta. Lögð er mikil áhersla á pastarétti og pitsurnar eru eldbakaðar. Ítalía býður nú 20% afslátt af öllum sóttum réttum. Lasagna bolognese kostar þá 2.680 kr. í stað 3.350 kr., Pizza al formaggi – ostapitsa með mozzar ella, gráðosti og camembert – kostar sömuleiðis 2.680 kr. í stað 3.350 kr. Líka er hægt að fá fjölskyldutilboð á 6.990 kr. sem samanstendur af tveimur fullorðinsréttum og tveimur barnaréttum. BREWDOG Frakkastíg 8a, Reykjavík Spennandi veitingastaður með mikið og fjölbreyttu úrval af bjór. Brewdog var fyrst opnað í Skot- landi af tveimur félögum sem höfðu fengið leið á fjöldafram- leiddum lagerbjórum og óvönduðu öli. Þar er líka boðið upp á góm- sætan mat. Á Brewdog er nú boðið upp á geggjaðan matarpakka – Brew- dog family mix – sem hægt er að sækja eða fá sent heim. Pakk- inn kostar 9.990 kr. fyrir fjóra og 13.990 kr fyrir sex. Í pakkanum er: „Southern fried” kjúklingur, alvöru spare rif í kóreskri BBQ- sósu, buffalo kjúklingavængir, steikarsamloka, stökkar franskar, bjórsýrðar gúrkur, gráðaostasósa, tómatsósa og sterkt majónes. DUCK AND ROSE Austurstræti 14, Reykjavík Duck & Rose er nýr veitingastaður sem var opnaður í lok maí. Þar er einblínt á létta og heiðarlega matargerð, með áhrifum frá Frakklandi og Ítalíu. „Heima með Duck & Rose“ er nýmæli þar sem þú getur sótt hálfeldaða rétti og klárað að elda þá heima. Það eina sem þarf að gera er að hita upp eða steikja. Hægt er að elda alla heima-réttina á innan við 15 mínútum. Við mælum með Confit andalæri með gljáðum gulrótum, sætum lauk og smælki á 3.000 kr. Þá er fjöldi Take away tilboða hjá Duck & Rose, svo sem klístraðir BBQ andarvængir á 1.032 kr. og burrata-ostur með fíkjum á 2.392 kr. MYND/SÆTA SVÍNIÐ FACEBOOK MYND/DUCK&ROSE FACEBOOK MYND/27 MATHÚS & BAR FACEBOOK MYND/BREWDOG MYND/ÍTALÍA FACEBOOK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.