Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 22
18
Til þess aó framkvæma rannsóknir í rannsóknahúsi þarf
um þaö bil 1/2 aðstoðarmannsstarf. Efnagreiningar verði
gerðar á þeim rannsóknastofum sem fyrir eru, en þær þurfa ef
til vill aukna fjárveitingu til þess.
4.2.4 Fj ármagnsþörf
Rekstrarkostnaður á ári (verðlag 1985 )
Sérfræöingur, hálft starf
Aðstoóarsérfræðingur, fullt starf
Aðstoðarmaður, 1 1/2 starf
Ferðakostnaður
Efnagr.kostn. (200 sýni á ári)
Ötgáfukostnaður
Tölvuvinnsla
Annar rekstur
kr. 320.000
" 560.000
" 510.000
" 200.000
" 300.000
" 50.000
" 50.000
" 200.000
6 mannmánuðir
12
18
kr. 2.190.000
Fjárfestingar:
Á skólabúum v. tilrauna kr. 300.000
Rannsóknahús RALA " 500.000
kr. 800.000
4.3 Greinargerð
4.3.1 Almennt
;— . íö
Loðdyrarækt er mjög ung bugrem, samanborið við
hefðbundnar greinar. Petta á við hvort sem litið er fjær eða
nær. Af því leiðir að tiltæk þekking í greininni er mun
minni en í öðrum greinum. Þörfin fyrir þekkingu er þó engu
minni. Þekkingu á fóðrun loódýra er einnig ábótavant, m.a.
vegna þess aö þau eru fyrst og fremst kjötætur og 'verulega
ólik því búfé, sem bændur hafa reynslu af.
4.3.2 Samsetning fóðurs
Hráefni þaó sem notað er í loðdýrafóöur er verulega
breytilegt. Sumpart stafar það af árstíðasveiflum, en
sumpart byggist það einnig á þvi að um aukaafurðir er að
ræða aö verulegu leyti. Efnasamsetning fiskúrgangs er til
dæmis háð þvi frá hvaða vinnslu hann kemur, auk þess sem
munur getur verið umtalsverður milli verkunarstöðva að þvi
er v'arðar nýtingu hráefnis. Ljóst er einnig að
efnasamsetning margra fisktegunda er breytileg eftir
árstiðum. Efnasamsetning sláturúrgangs er einnig mjög
breytileg.
Við efnagreiningu er þvi höfuðnauösyn að skilgreina