Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 31
27
Þegar ljóst þykir, að innfluttu dýrin séu heilbrigð,
enda hafi þau átt heilbrigó afkvæmi samkvæmt
heilbrigóisskoóun og krufningu vió pelsun ári eftir að dýrin
voru flutt til landsins, má flytja lífdýr undan þeim á
sérstök einangrunar- og kynbótabú (sjá undirkafla 5.2.2 og
mynd 5.1). Þetta er 12 manuðum eftir að dýrin voru flutt
til landsins. Á fengitíma um vorið (16 mánuðum eftir
innflutning) má einnig flytja sæði af sóttkvíarbúinu á
einangrunar- og kynbótabúin, bæði úr innfluttum refum og
afkomendum þeirra.
5.4.2.2 Einangrunar- og kynbótabú
Einangrunar- og kynbótabú verði tvö til að byrja með,
en stefnt skal aó þvi, aó þau verði 5 í allt innan fárra ára
(sjá 6.2.3).
Á einangrunar- og kynbótabúunum yrðu dýr, fædd á
sóttkvíar- og tilraunabúum, tekin til frekari ræktunar og
kynbóta, auk þess sem tófur þar yrðu sæddar með sæði úr
refum af sóttkvíar- og tilraunabúum.
Af einangrunar- og kynbótabúunum yrðu fluttir hvolpar
og sæói til loðdýraræktenda (sjá mynd 5.1). Hvolpana mætti
flytja þaóan 12 mánuðum eftir aó foreldrar þeirra kæmu
þangað (í desember), en sæði fyrr, þ.e.a.s. úr feðrunum 4
mánuðum eftir að þeir kæmu á einangrunar- og kynbótabúin.
Fyrstu hvolparnir út af innfluttu dýrunum gætu þannig fæðst
hjá hinum almenna loðdýraræktanda 18 mánuðum eftir
innflutning og fyrstu skinnin farið á markaó 2 árum eftir
innflutning.
Mynd 5.2 sýnir mögulegan feril eins innflutts refs (A)
og nokkurra afkomenda hans í karllegg. Synir A eru B og C,
sem fæðast á sóttkvíarbúinu. A má ekki flytja af búinu og B
er haldið áfram á sóttkvíarbúinu til undaneldis og til
sæðinga á einangrunar- og kynbótabúum. C er fluttur 6
mánaða gamall á einangrunar- og kynbótabú. Synir hans eru
D, E, F og G. D er haldið áfram á einangrunar- og
kynbótabúinu til undandeldis og sæðinga hjá
loðdýraræktendum. E er fluttur 6 mánaða gamall á loðdýrabú
og notaður þar til undaneldis. F og G fæddust báóir hjá
loðdýraræktanda, eftir að mæóur þeirra höfðu veriö sæddar
með sæði úr C, fluttu af einangrunar- og kynbótabúinu. F er
notaður til undaneldis, en G er pelsaður, 2 árum eftir
innflutning A, sem var afi hans.