Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 27
23
landinu, er jafnvel nauósynlegra en ella að kynbætur séu
efldar til muna og er ætlunin að taka kynbótastarfsemi innan
annarra búgreina til fyrirmyndar.
5.2.2 Innflutningur og notkun kynbótadýra (verkefni nr. 2)
Auk kynbótakerfis þess, sem getur i undirkafla 5.2.1,
er nauósynlegt aó flytja annaó slagið til landsins
úrvalskarldýr af sömu afbrigðum og fyrir eru í landinu, bæði
til þess að koma í veg fyrir of mikla skyldleikarækt, en
einnig munu kynbætur gerast hraðar með þessu móti og verða
árangursríkari.
Þá er áríðandi, að aðstaða sé til þess að flytja til
landsins ný afbrigói blárefa, silfurrefa og minka, til þess
að Islendingar geti fylgt eftir þeim breytingum, sem á hinum
alþjóðlega skinnamarkaði veróa. 1 slikum tilvikum yrði aó
flytja inn úrvalsdýr af báóum kynjum.
Til aó hægt veröi að sinna þörfinni fyrir innflutning,
þarf aó koma upp sóttkvíarbúi fyrir innflutt dýr.
Framræktun innfluttra dýra fari fram á sérstökum
einangrunar- og kynbótabúum.
5.2.3 Ræktun islenska melrakkans (verkefni nr. 3)
Eins og getið var i inngangi þessa kafla, eru afkvæmi
silfurrefs og hvits fjallrefs með mjög verómæt skinn, sem
ganga undir markaðsnafninu "Golden Island". Til þess að
feldgæói þessara blendinga séu að ööru leyti fyrsta flokks,
þarf að kynbæta hvita, islenska refi, og er slikri
kynbótaáætlun lýst nánar i greinargerðinni hér á eftir.
Mikill breytileiki er i lit islenskra refa af mórauða
litarafbrigðinu, allt frá gulu i svart. Erfðafræði þess
breytileika hefur ekki verió rannsökuð, en það þyrfti að
gera hið bráðasta.
Rannsóknir á erfóaeðli melrakkans verði gerðar á
sérstöku tilraunabúi, og framræktun verömætra afbrigða fari
fram á einangrunar- og kynbótabúum.