Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 23
19
mjög vel sýnin og flokka þau kerfisbundið þannig að
fóöurgerðarmenn geti sem best gert sér grein fyrir
samsetningu hráefnis út frá upplýsingum sem þeir fá um
uppruna þess. Veruleg vinna hefur verið lögó í
hráefnislista i helstu loðdýraræktarlöndum, en ekki er
sjálfgefið að efnasamsetning hráefnis sé sú sama þar og
hér. Ljóst er að margt hráefni sem kemur sterklega til
greina aó nota hér, er óvíða tiltækt erlendis og hefur því
lítið verið rannsakaö. Þar má nefna sel, karfa, steinbít,
grálúóu, hrossakjöt og úrgang frá slátrun sauöfjár.
Hráefni sem hentar vel x loðdýrafóður hentar einnig
vel, flest mjög vel, í fiskifóóur og því er rétt að sú
upplýsingaöflun sem á sér stað um hráefnið til loðdýraræktar
verði framkvæmd í samvinnu viö samsvarandi þjónustu fyrir
fiskiræktina. í því sambandi er rétt að undirstrika enn
nauðsyn þess að skipuleggja söfnun upplýsinga um
efnagreiningar á þann hátt, að þær séu notendum tiltækar
hvenær sem er.
4.3.3 Meltanleikarannsóknir
Melting loódýra (refa og minka) er verulega frábrugðin
meltingu þeirra húsdýra sem við þekkjum best og því ekki
hægt að draga ályktanir um meltingu loðdýra af upplýsingum
um önnur húsdýr.
Veruleg áhersla hefur verið lögð á meltanleikarann-
sóknir í nágrannalöndum okkar og því hægt að fá þaðan
mikilvæga þekkingu um ýmis hráefni sem sambærileg eru. Eins
er ^ hugsanlegt að hægt sé að fá þar gerðar rannsóknir á þeim
hráefnum sem ástæóa þykir til að skoóa sérstaklega.
Meltanleikarannsóknir á loódýrum eru hins vegar ekki
meira mál en svo aó ódýrara og tryggara er að koma upp
innlendri aðstöðu til þeirra hluta heldur en að treysta um
of á erlendar niðurstöður. Aö auki má benda á að meltanleiki
ákveóins hráefnis getur verið verulega háóur því hvernig
grunnfóðrið er samsett.
4.3.4 Lostætni
Við fóðrun loðdýra er oft þörf á verulegri
fóöurstýringu þ.e. aö hægt sé að stjórna áti dýranna.
Upplýsingar um áhrif mismunandi fóðursamsetningar á
átlyst eru litlar og ókerfisbundnar.
Rannsóknir sem gætu gefið verulegar upplýsingar um
áhrif ákveðins hráefnis á átlyst eru tiltölulega einfaldar
og^því sjálfsagt að framkvæma þær, bæöi á hefóbundnum
hráefnum og ekki síst á óhefðbundnum. Væntanlega ea; hægt að
samnýta aðstööu til meltanleika- og lostætniathugana i
verulegum mæli.