Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 39

Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 39
35 ffiskilegt er aö refir séu (desember), en hagkvæmast er minkalæóurnar inn í apríl. fluttir inn síöla hausts aö flytja hvolpafullu 6.1.3 Lengd sóttkvíartíma Um lengd sóttkvíartíma skal gilda eftirfarandi: Refir: Þegar ljóst þykir aö innfluttu dýrin séu heilbrigð og afkvæmi þeirra hafi reynst heilbrigð við skoöun og krufningu við pelsun haustið eftir aó foreldrarnir voru fluttir til landsins, má flytja lífdýr undan innfluttu dýrunum á sérstök einangrunar- og kynbótabú (sjá 5. kafla og síóar). Þetta er 12 mánuóum eftir innflutning. Á fengitíma um vorið, 16 mánuðum eftir innflutning, má einnig flytja sæði úr innfluttum refum á sóttkvíarbúinu í tófur á einangrunar- og kynbótabúum. Minkar: Flytja má paraðar læður af sóttkviarbúi yfir á einangrunarbú ári eftir innflutning enda hafi innfluttu dýrin reynst heilbrigð, átt heilbrigð afkvæmi og verið neikvæð í reglubundnú plasmacytosisprófi. Innflutningur kynbótadýra á 3-5 ára fresti ætti að fullnægja þörfum okkar. Þegar brýnt þykir að flytja inn ný dýr erlendis frá til kynbóta og ræktunar skal sóttkvíarbúið rýmt. Skal þaö gert á þann hátt að slátra öllum dýrum sem fædd eru á erlendri grund en flytja má önnur dýr yfir á einangrunar- og kynbótabú, ef æskilegt þykir aö nota þau áfram til undaneldis. Gert er sem sagt ráö fyrir að innflutt dýr fari aldrei út af sóttkvíarbúinu. Áður en ný dýr eru flutt inn skal þrífa og sótthreinsa búið mjög rækilega og láta það standa autt um nokkurn tima. Hugsanlega má skipta sóttkvíarbúi í smærri aðskildar einingar sem má þá rýma eftir þörfum ef nauðsyn þykir bera til tíóari innflutnings en gert er ráð fyrir hér aó framan. 6.1.4 Eftirlit Nauðsyn er á reglubundnu eftirliti með dýrum i sóttkvi. Halda þarf nákvæmar skýrslur um vanhöld og taka sýni til mótefnamælinga og snikjudýrarannsókna. Mikilvægur þáttur i heilbrigðiseftirliti er krufning á dýrum sem kunna að drepast i sóttkvinni og öllum dýrum sem eru pelsuð. 6.1.5 Aðstaða og fyrirkomulag Gera veröur talsvert meiri kröfur til aöstöðu og fyrirkomulags á sóttkviarbúi en almennt gerist á öðrum búum. Vera þarf minnst þreföld vörn gegn þvi að dýr geti sloppið úr haldi, þ.e. búr með öruggri læsingu, dýrheldur skáli með fordyri, þannig að ekki sé gengt beint inn i

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.