Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 44

Fjölrit RALA - 10.06.1985, Page 44
40 Tafla 7.1 Kostir og gallar Alaskarefa og fjallrefa. Alaskarefur Fjallrefur Kostir: Stór, frjósamur Feldur ljós og fingerður (aðallega undirhár). Hreinn litur, stundum silfraður. Gallar: Feldur of brúnleitur Litill. Litt frjósamur. og dökkur. Striðhærður. í meðan það var Norðmönnum kappsmál að rækta "hreinan stofn" blárefa, hirtu þeir litt um þá einstaklinga af óvenjulegum lit, sem annaö slagið litu dagsins ljós (5). Það var ekki fyrr en um 1940, sem loðdýraræktendur gerðu sér almennt' grein fyrir, að sjaldgæfir litir gætu verið verðmætir, en á striðsárunum var markaóur takmarkaður, loödýrabændur héldu stofnum sinum i lágmarki og fáir treystu sér til aó taka áhættu. Þegar lifnaði yfir skinnasölu á ný og fjölga tók refum á loödýrabúum, fóru ný afbrigði að koma á markaðinn. Þetta stafar af þvi, að menn höfóu augun opin fyrir þeim, en einnig eru stökkbreytingar eðlilega algengari i stórum stofni en litlum. Tafla 7.2 sýnir þau afbrigði af bláref, sem orðið hafa til við stökkbreytingu á Norðurlöndunum siðan i striðslok. Islenski refurinn hefur, eins og áður sagói, ekki verið ræktaður nema að mjög takmörkuóu leyti, enda gekk erfiðlega aö fá dýr, sem tekin höfóu verið á grenjum, til aó timgast i haldi (7) (sjá einnig Vióauka II). Af þessum sökum hafa blæbrigói hinna mórauðu, islensku refa litt verið könnuð. Theódór Gunnlaugsson (8) nefnir 5 meginblæbrigði mórauðra dýra á Islandi og eru þau eftirfarandi: 1. Grátt. 2'. Blátt. 3. Gult. 4. Svart. 5. Mórautt. Af þessum fimm blæbrigðum segir Theódór, að hið gula og hið svarta séu sjaldgæfust, en hann hafði séð tvo refabelgi

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.