Fjölrit RALA - 10.06.1985, Blaðsíða 61
57
Ef innfluttu dýrin reynast laus vió sjúkdóma, veróur
leyft aó selja hvolpa og sæói frá einangrunar- og kynbóta-
búunum til loðdýrabænda. Fyrstu sæðingahvolpar út af
innfluttum refum fæöast þá hjá hinum almenna loðdýrabónda 1
1/2 ári eftir innflutning, og bændur eiga kost á að kaup
lifdýr út af þeim um 20 mánuðum eftir innflutning. Bændur
munu eiga kost á að kaupa lífdýr út af innfluttum minkum um
1 1/2 ári eftir innflutning, enda er gert ráð fyrir að
fluttar verói inn hvolpafullar minkalæður.
Hugmyndir hafa komið fram um að gera skólabúin á
Hvanneyri og Hólum að einangrunar- og kynbótabúum. Það hefur
vissulega ýmsa annmarka i för meó sér. Skólabúin þurfa að
vera kennslubú i einhverjum mæli og jafnvel tilraunabú. Á
þaö ber hins vegar aó lita að einangrunar- og kynbótabúin
eru fyrst og fremst hugsuó sem eins konar öryggisventill,
áöur en afkvæmum innfluttra dýra er hleypt út á almennan
markaó. Skólabúin eru einnig af ýmsum ástæðum betur i stakk
búin heldur en önnur bú til að mæta þeim kröfum, sem gera
verður til búa sem þessara.
12.3.3 Eftirlit og rannsóknir.
A sóttkviartimanum þarf að vera virkt eftirlit meö
innfluttu dýrunum og m.a. reglubundin sýnataka. Tilrauna-
stöóin á Keldum hefur til þessa annast eftirlit með
innflutningi og rannsóknir sem þvi tengjast fyrir hönd
landbúnaðarráðuneytisins og yfirdýralæknisembættisins. Þar
er nú fyrir hendi allnokkur sérþekking og rannsóknaaðstaða.
Með auknum umsvifum i loðdýrarækt og eftirliti vegna
innflutnings, sæðingum og jafnvel útflutningi lifdýra þarf
þó að stórefla þessa starfsemi. Það verður ekki gert nema
meó auknum mannafla og fjármagni frá hinu opinbera eða
samtökum loðdýrabænda (sjá 12.5).
12.4 Smithætta og smitleiðir innanlands
12.4.1 Smithætta af völdum sæðinga
Ef Islendingar ætla sér aó verða samkeppnisfærir við
aðrar þjóöir i loðdýrarækt verður fljótlega að koma af stað
sæðingum hér á landi. Þróunin á þessu sviði hefur oröið svo
hröð i nágrannalöndum okkar að þar jaðrar við að allt
skipulag hafi farió úr skorðum. I Noregi hafa t.d. komið upp
legbólgufaraldrar i tófum sem hefur beinlinis verið hægt að
rekja til sæðinga. Hafa þá afköstin og hrein gróðasjónarmið
verió látin ráða ferðinni, en ekki verið gætt viðhlitandi
sóttvarnarsjónarmiöa. Einnig hefur þetta haft i för með sér
óhóflega notkun lyfja, m.a. hormónalyfja, sem eru
varhugaverö frá kynbótasjónarmiði.
Við ættum aö geta dregið nokkurn lærdóm af reynslu
annarra i þessum efnum. Þvi er lagt til, að sæðingar verði