Fjölrit RALA - 15.04.1996, Blaðsíða 39
29
Kalrannsóknir 1995
ísáning (185-1175)
Tilgangur þessara rannsókna er að kanna orsakir þess að ísáning mistekst oft. Vinnutilgátan er
sú að eitrun í jarðvegi kunni að hindra viðgang nýgræðings í túnunum. Gerðar voru fjórar
tilraunir, ein á túni, ein í pottum og tvær í plastboxum þar sem plöntur spíruðu á síupappír,
annars vegar á upplausnarvökva og hins vegar á jarðvegssýnum. Eru þessar tilraunir líkar
þeim sem greint var frá í jarðræktarskýrslu 1993. í vallartilrauninni eru plöntumar notaðar
sem endurtekningar, en annað uppgjör miðast við meðaltal plantna innan potta eða boxa.
1. Vallartilraun
Haustið 1994 var vallarfoxgrasi (Öddu) sáð í ræmu þvert yfir túnspilduna Miðmýri á
Möðruvöllum (haustsáning). Sáð var í nýja ræmu þvert yfir túnið 14. júní 1995 (vorsáning).
Eftir hinn snjóþunga vetur 1994-1995 þornaði túnið afar seint og var erfitt að finna eðlilega
fleti til nákvæmrar rannsóknar. Háði það tilrauninni nokkuð, en þó tókst að mestu að forðast
þennan skekkjuvald. Þann 16. júní voru girtir af tveir fletir á hvorri ræmu, annar vel gróinn,
hinn kalinn og vaxinn varpasveifgrasi. Helmingur hvers flatar var svo klipptur reglulega til að
halda vexti gróðurs niðri. Þann 24. júní var svo, þvert á klippingarreitina, helmingur hvers
flatar kalkaður með áburðarkalki (lkg/m2 Faxe kalk, 97% CaC03) og 8. júlí var svo miðja
hvers flatar úðuð með lyfi gegn smádýrum (Permetryn, 200 ml í 100 1 vatns/ha) og sveppum
(Orthocid 83, 150 g í 100 1 vatns/ha). Þessi hluti flatarins var aðgreindur frá öðrum hlutum
með 8 sm hárri plastgirðingu sem stungið var niður í jörðina, þannig að hlaupadýr fari ekki á
milli reita. Nokkrar fræplöntur, mismargar í hverjum lið, voru merktar með plastmerkjum og
nöglum og fylgst með vexti þeirra fram eftir sumri. Hæðarmælingar voru gerðar á þessum
nýgræðingi 25. júlí, 1. ágúst og 30. ágúst. Grösin voru yfirleitt rengluleg og í mörgum
tilvikum voru þau visin í oddinn.
Aðaláhrif eru þessi:
Graslengd, sm P-gildi
Tími 25. júlí 2,06 <0,001
1. ágúst 2,70
30. ágúst 4,10
Sáning Vorsáning 3,01 0,399
Haustsáning 2,87
Kal Ókalið tún 2,71 <0,001
Kalið tún 3,27
Kölkun Kalkað 2,98 0,754
Ókalkað 2,92
Úðun Úðað 3,40 <0,001
Ekki úðað 2,47
Sláttur Slegið 2,91 0,915
Óslegið 3,00
Samspil eftirtaldra þátta reyndist marktækt: Sáning x tími, Sáning x úðun, Kal x tími, Úðun x
tími, Sláttur x tími, Kal x kalk x úðun, Kal x úðun x sláttur, Sáning x úðun x tími.