Fjölrit RALA - 15.04.1996, Qupperneq 70
Korn 1995
60
Þusund korn, g Korn þe., hkg/ha
Sáð: 20.5. 7.5. 25.4. Mt. 20.5. 7.5. 25.4. Mt.
Skrið d.e. 30.júní: 35 28 21 35 28 21
Skorið 3.9. 10 17 24 17 5,0 11,6 19,8 12,1
Skorið 10.9. 14 21 28 21 8,5 15,6 24,3 16,1
Skorið 16.9. 16 25 31 24 13,6 22,6 27,4 21,2
Skorið 24.9. 20 26 33 26 16,3 23,8 30,7 23,6
Meðaltal 15 22 29 22 10,9 18,4 25,6 18,3
Skálínur í töflunni ofan frá talið og niður á við til vinstri sýna þroska og uppskeru eftir
jafnlangan sprettutíma í daggráðum talið. Þar sést, að vordagar nýtast vel, þótt svalir séu. Eins
má sjá, að frestun sáningar að vori verður seint unnin upp að hausti.
Niðurstöður tilraunarinnar sýna, að við þessi skilyrði skiptir öllu máli að sá snemma. Svo
virðist sem kornið geti spírað snemma vors við mjög lágt hitastig og geti þannig nýtt vorið
fyrir hinn eiginlega sprettutíma. Best reynist, að korn sé komið upp um miðjan maí. Þá er
hámarkshiti dagsins farinn að komast vel yfir 7 °C, en það eru líklega neðri mörk tillífunar.
Auk þess fer þá hætta á næturfrostum ört minnkandi, en uppkomið er kornið viðkvæmt fyrir
frosti, þótt það þoli næstum hvað sem er meðan það er að spíra.
Tilraun nr. 738-94. Bygg, gras og rauðsmári.
Hér er um að ræða tvær tilraunir. Sáð var í þá fyrri vorið 1994 og þá síðari nú í vor.
Fyrsta árið sýnir tilraunin, hvort svörðuneyti grass hefur áhrif á uppskeru og þroska korns.
Næstu tvö ár á eftir er fylgst með því, hver áhrif sambýlið við byggið hefur haft á gras og
smára. í sumar voru því tvær tilraunir í gangi, á fyrsta og öðru ári. I hvorri tilraun eru átta liðir,
en einungis sex koma við sögu í einu. Fyrsta árið eru ekki uppskerumældir reitir með grasi og
smára án korns. Annað og þriðja árið falla niður eðli málsins samkvæmt reitir, þar sem sáð var
komi einu.
Af grasi og smára voru notaðir stofnarnir Adda og Bjursele. í fyrra var notað
byggafbrigðið Lilly, en afbrigðið Nord í ár. Bæði árin var borið saman tvenns konar sáðmagn
af korni, 140 kg og 200 kg á ha.
Borið var á tilraunina frá í fyrra þann 23.5. Reitir með hreinu vallarfoxgrasi fengu
jafngildi 120 kg N/ha í Græði 6, en reitir með smára fengu 20N, 60P og 80K í sérstakri
blöndu. Slegið var 10.7. og 18.8. Samreitir voru þrír. I næstu töflu er heyuppskera úr þeirri
tilraun.