Fjölrit RALA - 20.04.1999, Blaðsíða 26
Túnrækt 1998
18
Tilraun nr. 744-95. Samanburður á grasflatargrösum, Korpu, Korpúlfsstöðum og
Hvanneyri.
Áburður var 240 kg N/ha í Græði 6. Á Korpúlfsstöðum var borið á 4 sinnum, 9.5., 19.6., 9.7.
og 26.8., fjórðungur áburðar í senn. Á Korpu var helmingurinn borinn á 4.5. afgangurinn
tvískiptur 9.7. og 26.8. Á Hvanneyri var aðeins borið á um vorið, 120 kg N/ha Á Korpu var
flötin slegin 9 sinnum frá 20.5. til 8.9. Slegið var þegar grasið var komið í um 10 sm hæð,
sláttuhæð um 3-4 sm.
Á golfvellinum á Korpúlfsstöðum var flötin slegin eins og holuvöllur, alls 42 sinnum í 12 mm
sláttuhæð á 18-19 vikna tímabili frá um 18.5. til um 22.9. (21.-39. vika). Slegið var þrisvar til
fjórum sinnum í viku frá um 6.7. til um 28.8. (28.-35. vika, fjórum sinnum í 30.-32. viku),
tvisvar í viku í tvær vikur á undan og eftir og einu sinni í viku fimm fyrstu vikumar og tvær
þær síðustu. Vökvað var 10 sinnum frá 11.6. til 29.7.
Allar einkunnir em á skalanum 0-10, nema á Korpu mosi 0-3 og heildareinkunn 1-5, og kal á
Hvanneyri var metið sem hundraðshluti flatar. Fleiri einkunnir vom gefnar en sýndar em. Á
Korpu var metin heildarþekja um vorið. Auk sáðgresis var jafnan metið annað gras og
illgresi. Látið er nægja að sýna meðaltal af einkunnum fyrir sáðgresi nema á Korpu, en á
Hvanneyri munar þó einnig nokkm á einkunnum vor og haust. Við mat á heildareinkunn á
Korpu var sleppt að meta língresis- og rýgresisreiti. Orðið var of áliðið til að meta língresi og
hlutur rýgresis var of lítill til að það tæki því að meta það.
Við útreikning á staðalskekkju og P-gildi var rýgresi jafnan sleppt og á Korpu einnig língresi.
Gmnur leikur á að ein einkunn fyrir grænan lit á Cindy á Korpúlfsstöðum hafi verið rangt
skráð og að slepptu þessu yrki lækkar skekkjan í 0,72 og P-gildið í 0,002.
Sveifgrasið Mardona var í fyrri tilraunaskýrslum kallað DP37-61,!.