Fjölrit RALA - 20.04.1999, Blaðsíða 37
29
Smári 1998
Hagnýting belgjurta (132-9360)
Árið 1998 fékkst styrkur frá Rannsóknasjóði íslands til rannsókna á hagnýtingu belgjurta til
fóðurs og iðnaðar. Verkefnið er tvíþætt: Annars vegar eru ræktunartilraunir með smára á
Korpu og Hvanneyri; tilraunir með einærar belgjurtir, ræktun rauðsmára hjá bændum og
beitartilraun með hvítsmára á Hvanneyri. Hins vegar eru tilraunir með lúpínu, kynbætur
lúpínu, ýmsar ræktunartilraunir og mælingar á uppskeru í gömlum lúpínubreiðum.
Þær tilraunir með smára, sem áður féllu undir verkefni 132-1049, falla nú undir þetta verkefni.
Tilraun nr. 724-96. Rauðsmári, svarðarnautar og nituráburður, Korpu.
Markmiðið með tilrauninni er að finna heppilega svarðamauta fyrir rauðsmára og kanna áhrif
mismunandi niturskammta á uppskeru og endingu smárans í sverðinum. Auk þess er íslenskur
rauðsmárastofn, Sámsstaðir, borinn saman við Betty (ferlitna Bjursele). Áburður við sáningu
var 50 kg N/ha í Græði la. Svarðamautar era Adda vallarfoxgras; FuRa 9001 rýgresi og
Salten hávingull. Áburðarskammtar era 0, 50 eða 100 kg N/ha. Rýgresið drapst allt veturinn
1998 og falla þeir reitir úr tilrauninni.
Tilraunaskipulag er með deildum reitum. Áburðarskammtar era á stórreitum og sáðblöndur á
smáreitum. Endurtekningar 3. Borið var á 18.5. 60 kg P, 83 kg K og 0, 50 eða 100 kg N/ha.
Slegið var 3. júlí og 10. ágúst.
Uppskera þe., hkg/ha
Gras og smári Smári Hlutfall smára af heild, %
0N 50N 100N Mt. 0N 50N 100N Mt. 0N 50N 100N Mt.
Betty-Adda 37,4 54,7 53,1 48,4 17,8 11,5 4,6 11,3 44 21 9 25
Sámsstaðir-Adda 34,8 52,4 57,0 48,1 12,9 10,7 5,9 9,8 37 20 10 23
Betty-Salten 61,5 73,0 74,0 69,5 13,4 7,7 8,3 9,8 22 11 11 15
Sámsstaðir-Salten 58,7 66,1 69,9 64,9 13,9 8,0 6,7 9,5 24 12 10 15
Meðaltal 48,1 61,6 63,5 14,5 9,5 6,4 32 16 10
Frítölur
Á stórreitum 4 3,60
Ásmáreitum 18 6,15
Staðalfrávik
4,85
3,96
8,2
5,5
Tilraun nr. 762-96. Fosfór og kalí á rauðsmára, Korpu.
Markmiðið með tilrauninni er að finna áburðarþörf rauðsmára í blöndu með vallarfoxgrasi.
Vorið 1996 var sáð í 72 reiti af rauðsmára, Bjursele, í blöndu með Öddu vallarfoxgrasi.
Áburður við sáningu var 50 kg N/ha í Græði la. Tilraunin hófst 1997.
Áburðarliðir era 12 (0N, 50N, 100N)x(20P, 40P)x(30K, 70K) og sláttumeðferð tvenns konar
á stórreitum. Annars vegar er tvíslegið, við skrið á vallarfoxgrasi og aftur í ágúst. Hins vegar
er slegið einu sinni, um 3 vikum eftir skrið.
Borið var á 15. maí og slegið annars vegar 26. júní og 13. ágúst, hins vegar 20. júlí. Mikið
illgresi kom í þann hluta tilraunarinnar, sem tvísleginn er. Uppskerutölumar era birtar hér,
þótt segja megi að þessir reitir séu ónýtir. Uppskeran er afar rýr og illgresi var 16-21%,
minnst í reitum sem fengu ekkert nitur.