Fjölrit RALA - 20.04.1999, Blaðsíða 67
59
Iðnaðarplöntur 1997
Línræktun (132-9342)
Sáðtímatilraun á Þorvaldseyri
Sáð var 21. apríl í og 20. maí. Reitastærð 10 m2 og var sáðmagn sem svarar til 120 kg/ha.
Samreitir voru fjórir. Úðað var með línúroni strax eftir sáningu, dreifing tókst illa eftir fyrri
sáðtímann vegna hvassvirðis. Aburður var 48 kg N/ha í Græði la. Slegið var 8. september og
uppskeran þurrkuð á þurrklofti í volgu lofti.
Uppskera, t/ha Hæð, sm
Sáð 21.4. Sáð 20.5. Sáð 21.4. Sáð 20.5.
Nike 10,9 7,1 104 98
Alba 10,8 8,7 96 95
Wiko 8,7 6,4 100 98
Meðaltal 10,1 7,4 100 97
Uppskeran fellur um fjórðung við að draga sáningu um einn mánuð. Lítill munur er á hæð
plantnanna eftir vöxt í 4 eða 5 mánuði. Plöntumar hafa náð fullri hæð fyrir blómgun í báðum
tilfellum. Uppskeraaukningin verður helst skýrð með auknum vexti styrktarvefja.
Alba sýnist vera það yrki sem þroskast hraðast og gefur mesta uppskera eftir styttri vaxtar-
tímann.
Samanburður yrkja
Á Norðurlandi vora reynd fjögur yrki á tveimur stöðum, að Þverá í Svarfaðardal og Ámesi í
Aðaldal. Artemida var í tilraunum á Korpu 1997. Belinka hefur verið í tilraunum og ræktun
hér á landi og reynst vel. Yrkið þroskaði gott fræ undir Eyjafjöllum árin 1992 og 1996. Elise
og Pro 953 era yrki, sem Hollendingar mæla með að við reynum. Elise mun vera betra en
Belinka að flestu leyti á suðlægari slóðum. Bjami E. Guðleifsson á Möðravöllum sá um
tilraunir fyrir norðan.
Sáð var 16. maí og uppskorið 6. október. Aðeins var einn reitur af hverju yrki, en gerðar tvær
mælingar í hveijum reit, hvor um sig af 1 m2 og mæld hæð og uppskera.
Þverá Árnes
Uppskera Hæð Uppskera Hæð
t/ha cm g/m2 cm
Artemida 4,0 82 4,0 80
Belinka 3,7 82 5,3 85
Elise 3,8 77 4,7 80
Pro 953 3,6 75 5,1 85
Athugasemdir á Þverá. Ljóst á lit, sennilega áburðarskortur stígandi frá norðri til suðurs, mest
vaxið syðst þar sem Pro 953 var. Línið sást fyrst spírað eftir 20 daga. í byrjun ágúst var það
um 20 cm hátt.
Athugasemdir íÁmesi. Allt jafnara en á Þverá. Pro 953 er fallegast.