Fjölrit RALA - 20.04.1999, Page 60

Fjölrit RALA - 20.04.1999, Page 60
Kynbætur 1998 52 Stvtting kvnslóðabils Blómgun var ekki jafn góð í sumar eins og síðasta sumar og fengust ekki fræ nema af hluta lína. Til að reyna að fá áreiðanlegri blómgun á fyrsta ári og til að kanna hvort mögulegt er að fá tvær kynslóðir á ári verður reynd ræktun við lýsingu í gróðurhúsi á Korpu í vetur. Áhugaverðar plöntur hafa verið valdar til að rækta til frætekju í vetur. Framköllun stökkbrevtinga Dánartíðni þeirra plantna sem komu af fræi, sem geislað var til að framkalla stökkbreytingar, var mjög há. Eitt litarafbrigði hefur þó komið fram, ekkert fræ fékkst af þeirri plöntu. Fræ fékkst af 3 plöntum. Ræktunarprófanir á L. vohvhyllus Sætt afbrigði af L. polyphyllus (var. SF/TA), sem kom frá dr. Tadeuz Ansiewski í Joensuu í Finnlandi, virðist ekki eins þolið og L. nootkatensis. Því var sáð í reiti við mismunandi erfiðar aðstæður í Gunnarsholti, á Geitasandi og á Korpu árið 1997, en allar plöntumar dóu í vetur. L. nootkatensis lifði aðeins af á Geitasandi. Allar plöntur af þeim 39 afbrigðum af L. polyphyllus frá genbönkum í Bandaríkjunum, sem plantað var út í ræktunarprófanir, dóu. L. polyphyllus frá Alaska, sem plantað var út, vex vel, einnig L. polyphyllus (var. SF/TA). Margt bendir til að L. polyphyllus sé aðlagaður annars konar jarðvegi en L. nootkatensis frekar en að hann þoli illa veðurfar hérlendis. Til að afla frekari upplýsinga um vaxtarhætti þessara plantna var í sumar plantað út á Geitasandi og á Korpu fjórum afbrigðum af L. polyphyllus úr safni Óla Vals auk L. polyphyllus (var. SF/TA). Talsvert fræ fékkst í haust og var fræuppskera mæld á Korpu og Geitasandi. Beiskiuefnamælingar Ný aðferð til mœlinga á heildarinnihaldi beiskjuefna. Byrjað er að mæla með aðferð dr. von Baer. Vemlegar breytingar hefur þurft að gera á aðferðinni til að laga hana að mælingum á blaðmassa í stað fræs. Nauðsynlegt hefur reynst að bæta inn þrepi, þar sem litarefni í blaðmassa em skilin frá, til að fá áreiðanlegar mælingar á sýnum sem innihalda lítið af beiskjuefnum. Mcelingar á plöntum í akri. Mæld hafa verið nokkur afbrigði L. polyphyllus og L. nootkatensis með aðferð dr. von Baer. Einnig hefur nokkuð af plöntum verið mælt með Dragendorf aðferð. Frumathuganir á verkunaraðferðum Gerðar vom verkunartilraunir með úrskolun beiskjuefna í sumar en mælingum er ekki lokið. Athuganir á æxlunarkerfum L. nootkatensis Gróðursettar vom úti á Korpu plöntur með litarstökkbreytingum. Erfðir þessara stökk- breytinga em nokkuð vel þekkar og má telja víst að um víkjandi gen sé að ræða. Foreldrar þessara plantna uxu ýmist við náttúmlegar aðstæður eða höfðu verið fluttir á Korpu. Hlutfall plantna, sem halda litareinkennum sínum, gefur vísbendingu um hlutfall aðfrjóvgunar og sjálf- frjóvgunar.

x

Fjölrit RALA

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fjölrit RALA
https://timarit.is/publication/1497

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.