Fjölrit RALA - 15.06.2002, Blaðsíða 36
Ræktun lúpínu 2001
28
Tilraun nr. 788-01. Sláttutími á lúpínu, Geitasandi.
Gróðursett var í 9 reiti, 3><8 m hver. Aætlun hefur verið breytt og er landinu skipt í 28 reiti.
Þegar hefja átti slátt samkvæmt þessari nýju áætlun 13.8. kom í ljós að vöxtur lúpínu hafði
stöðvast, að líkindum vegna þurrks, sjá tilraun nr. 784-98. Þá var horfið ffá þeirri áætlun, sem
hafði verið gerð, aðeins 6 reitir slegnir og seinni sláttutímum sleppt þetta ár. Slegið var í um
10 sm hæð, að mestu ofan lággróðurs og sinu. Sumar plöntumar vom svo smáar að lítið sem
ekkert slóst af þeim. Uppskera mældist 12,5±2,4 hkg þe./ha. Af 33 plöntum, sem áttu að vera
í hverjum uppskerureit, vantaði 4-9 plöntur, að meðaltali vantaði 5,3 plöntur.
Tilraun nr. 785-99. Áburður á lúpínu, Geitasandi.
Gróðursett var í 32 reiti vorið 1999 á snauðu landi þar sem lúpína hefur ekki náð að breiðast
út þótt hún vaxi í grennd. Reitir em 2x5 m og 33x50 sm milli plantna, þ.e. 60 plöntur í reit.
Gróðursett var í eyður sumarið 2000 og hefur það tekist vel.
Borið er á tvo tilraunaliði árlega frá upphafi tilraunarinnar:
a. P 20 kg/ha
b. P 20 kg/ha, N 33 kg/ha
Borið var á 11.5. Töluverður sjónarmunur er á reitum eftir áburðarmeðferð. Ráðgert er að
hefja uppskerumælingu 2003 og bera þá á fleiri tilraunaliði.