Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Síða 16

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Síða 16
Fyrra árið gekk töluvert úr rúlluheyinu við gjafir, einkum því þvala, og f því bar töluvert á mygluðum böggum. Seinna árið nýttist heyið í báðum liðum hins vegar mjög vel, ekki síst úr hánni þar sem hver tugga var gefin. Það ár voru baggar hjúpaðir sexföldu plasti með 50% skörun laga strax að lokinni bindingu. Fyrra árið fór hjúpun bagganna fram heima við stæðu - eftir heimflutning sem eðlilega tók nokkurn tíma. Það ár var plastnotkunin heldur minni en seinna árið (sjá 1. töflu). Kann þetta tvennt að skýra mun á mygluskemmdum á milli ára. 3.3.2 Sýrustig heysins Sýrustig heysins er nokkur mælikvarði á það hvemig geijun þess hefur tekist. Á 2. mynd hefur verið steypt saman mæligildum þurrefnisprósentu heysins við hirðingu (bindingu) og sýrustigs úr öllum mæliböggum nema einum sem henda varð vegna mikillar myglumyndunar. 2. mynd. Áhrif þurrkstigs við hirðingu á sýrustig fullverkaðs heys. Sennilegasta fylgnilína fellur vel að alkunnri reglu. Línunni má lýsa þannig: y = 1,57 + 0,131x - 0,001x2 R2 = 0,80 p < 0,001 Hér er y sýrustig í fullverkuðu heyi en x þurrefnisprósenta heysins við hirðingu. í þurrlegu og þurm heyi (x > 45...50% þurrefni) hefur sýmstig heysins fallið mjög lítið enda afar takmarkaðrar gerjunar að vænta í því. Gildin dreifast nokkuð um meðallínuna. Sveiflustuðlar sýrustigs a-liðar heys voru jafnhærri en sveiflustuðlar b-liðar heysins. Bendir það til þess að heyið hafi orðið jafnara að verkun eftir því sem það var þurrara við hirðingu. Hærri gildi sýmstigs miðað við þurrefni voru oftast úr böggum þar sem myglu hafði orðið vart. Þá virtist svo sem a-liðar háin hefði súmað meira en fyrrisláttarhey með sambærilegu þurrefni. 10

x

Rit Búvísindadeildar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.