Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Blaðsíða 24

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Blaðsíða 24
gæði heysins og framleiðslukostnað. Kemur þar tvennt til: • Hver spilda kann að kalla á meira af tiltækum heyskaparlíma því lengri tíma sem það tekur að ná æskilegu þurrkstigi heysins. Þetta getur dregið úr heildarafköstum við heyöílun á búinu og aukið kostnað vegna kjörtímaáhrifa á val sláttutíma (Witney 1988). • Tekin er meiri áhætta vegna veðurs - lengri forþurrkunartíma fylgir hætta á rýrnun heygæða vegna regns og óhagstæðs heyskaparveðurs. Þetta hvort tveggja kann að auka beinan en fremur þó óbeinan framleiðslukostnað heysins. Niðurstöður tilraunanna benda til þess að rýmun heygæða vegna lengri forþurrkunartíma sé lítil í sæmilegri heyskapartíð, sjá kafla 3.1. Á nokkurn mismun er einnig að ganga í þurrefnisáti ánna því af þurrlega heyinu (b-lið) átu þær um það bil 12% meira en af því þvala (a-lið). Heyið reyndist allt étast vel og sumt mjög vel, ekki síst háin, sem verkaðist prýðilega. Bendingar komu fram um að æmar gerðu í áti þeim mun meiri mun á þvala rúlluheyinu (a) og því þurrlega (b) sera þær vom eldri og tækju þá þurrlega heyið fram yfir það þvala. Vel mætti gefa þessum mun gaum með frekari rannsóknum. Fijósemi ánna, sem fengu þurrlega heyið, reyndist að meðaltali meiri en hinna sem fengu það sem minna var forþurrkað (7. tafla). Munurinn var þó eindregnari hvað snerti fæðingarþunga lambanna, sem jafnan var meiri hjá þeim ám er aldar voru á þurrara rúlluheyinu. Sé þungi burðar ánna (fæðingarþungi lamba x frjósemi) notaður sem mælikvarði á afurðasemi þeirra, kemur í ljós að hún var að meðaltali 7% meiri í b- en a-lið tilraunanna. Allsterk línuleg fylgni reyndist vera á milli afurðasemi ánna, metinnar með þunga burðar, (y) og þurrefnisáts þeirra á tilraunaheyinu (x); r = 0,82, p < 0,05. Það skiptir því iniklu máli að heyið sé verkað þannig að það étist vel. Á milli tilraunaliða reyndist munur á þunga burðar og fjölda fæddra lamba hverra 100 áa vera heldur minni en mismunur á heyáti ánna. Má þvf álykta sem svo að þvala rúlluheyið (a-liður) hafi nýst ánum vitund betur til „afurðamyndunar“ - miðað við gefið þurrefnismagn - heldur en heyið sem meira var forþurrkað. Þar sem tún eru takmörkuð og heyframleiðsla dýr gæti mikil forþurrkun heysins því orkað tvfmælis. Niðurstaða tiiraunanna bendir hins vegar til þess að þar sem tún eru næg sé ábati af því að forþurrka hey, sem verka á í rúllum handa ám, tiltölulega mikið; allt að 50-65%, enda leyfi veður það að þurrkun heysins á velli gangi hratt og taki helst ekki lengri tíma en tvo samfellda þurrkdaga. 5. ÞAKKIR Fjölmargir komu að vinnu við þá rannsókn sem hér hefur verið greint frá. Nefna ber fyrst starfsmenn Hvanneyrarbúsins og Bútæknideildar Rala, sem önnuðust heyöflun. Bútæknideild lagði fram hluta þess vélakosts sem nota þurfti. Þá lögðu starfsmenn deildarinnar lið við mælingar og frumvinnu uppgjörs. Allar efnagreiningar voru gerðar á rannsóknastofu Bændaskólans. Sérstök ástæða er til að nefna fjárhirðana á Hvanneyri bæði tilraunaárin, þá Jón E. Einarsson frá Mófellsstaðakoti og Vagn H. Sigtiyggsson frá 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Rit Búvísindadeildar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.