Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Blaðsíða 23

Rit Búvísindadeildar - 15.10.1996, Blaðsíða 23
4. UMRÆÐUR f tilraunum þeim, sem hér hefur verið greint frá, var gerður samanburður á verkun og fóðrunarvirði rúiluheys sem hirí var á tveimur mismunandi þurrkstigum. Annars vegar var hey hirt með 35-45% þurrefni (a-liður) en hins vegar hey hirt með 50-65% þurrefni (b- liður). Ferli heysins var fylgt frá slætti og þar til vetrarfóðrun lauk. Tilraunimar voru gerðar tvö ár í röð og seinna árið með tvenns konar hey; fyrri slægju og há. Ær voru aldar á heyinu til þess að meta fóðrunarvirði þess og framleiðslugetu. Atls komu um 100 rúllubaggar og 157 ær við sögu í hvorum lið. Afar margir þættir koma til álita þegar meta skal heildarhagkvæmní aðferðanna sem reyndar voru. Ýmsir þeirra ráðast af stað- og tímabundnum aðstæðum, t.d. veðri, og koma þvf ekki til fullra áhrifa í takmörkuðum fjölda tilrauna. Hér verða rædd nokkur aðalatriði niðurstaðnanna. Sé litið á heildarferil heysins frá slætti til gjafa reyndist mesta rýrnunin á mældu orkugildi þess verða fyrstu stundimar sem heyið lá til þurrks á vellí. f hlutföllum varð meðalbreyting á mældu orkugildi heysins þessi: a-liður b-liður við slátt 100 100 við bindingu 94 92 við gjafir 93 94 Geymsla heysins í böggunum tókst afar vel. Hins vegar þarf að leita leiða til þess að bæta verkun heysisns á vellinum þótt vera kunni að nokkuð af rýrnun orkugildis, sem þama mældist, sé óumflýjanleg vegna lífshræringa plöntuframanna allra fyrstu stundimar eftir sláttinn. Vönduð vinnubrögð við þurrkun heysins ættu þó að geta bætt úr. Forþurrkun heys, sem verka á í rúlluböggum, virðist hafa hagstæð áhrif á verkun þess og geymslu svo og notagildi til fóðrunar sauðfjár (Beaulieu et al. 1993; Bjami Guðmundsson 1991 og 1993). f heild styðja niðurstöður tilraunanna þessa reynslu. Virtist mikil forþurrkun heysins skila sér í bættri verkun þess, lystugra fóðri og líklega öllu meiri afurðum ánna. Við forþurrkun heysins verða baggamir léttari og meðfærilegri. Því reynir minna á flutningatækin sem notuð eru. Þéttleiki heysins í rúlluböggunum reyndist vaxa með þurrkstigi heysins upp að 55% þuirefni. Miðað við lauskjamabindivél var meðalþéttleiki heysins í a-Iið um 165 kg þe./m^ en 185 kg þe./m3 í b-lið, en það svarar til 580 og 450 kg baggaþyngdar. Spamaður í plast- og garnkostnaði ætti að svara til þessa mismunar. Við meðaluppskeru (4400 kg þe./ha) og núgildandi verðlag (1996) gæti umbúðaspamaðurinn numið 700-800 kriha (umbúðir um 2 bagga). Á móti þessum spamaði kemur kostnaður vegna lengri forþurrkunar. Er það bæði um beinan og óbeinan kostnað að ræða. Sá beini felst í kostnaði við einn aukasnúning heysins og hugsanlega einnig eina umferð við næturmúgun, sjá kafla 3.1. Eldsneyti og vinnulaun eru þar helstu útgjaldaliðir. Umbúðaspamaðurinn dugar ríflega fyrir þeim. Óbeini kostnaðurinn felst einkum í þeim áhrifum sem viðbótartíroi til forþurrkunar hefur á 17
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Rit Búvísindadeildar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rit Búvísindadeildar
https://timarit.is/publication/1498

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.